Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1989, Blaðsíða 15
Wilhelm Norðfjörð sálfræðingur hiá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins
Fyrsta alþjóðlega ráðstefnan um stuðn-
ing við fjölskyldur tengdar fötlun
Dagana 14.-18. ágúst sl.
sótti sá er þetta ritar ráðstefnu
er bar ofanritað heiti.
Ráðstefnan var haldin í
Stokkhólmi. Á þessari ráð-
stefnu voru haldin hátt í 100 er-
indi af sérfræðingum, foreldr-
um fatlaðra og systkinum. Hér
var því um mikla fjölbreytni að
ræða með °sameiginlegan út-
gangspunkt í fjölskyldu hins
fatlaða. Heiti nokkurra erinda
gefa lesanda gleggri mynd af
innihaldi ráðstefnunnar t.d.
„Hvað er stuðningur við fjöl-
skyldu?“, „Félagslegur stuðn-
ingur við fötluð börn og fjöl-
skyldur þeirra", „Stuðningur
við fullorðið fólk, sem er þroska-
heft og foreldra þeirra, sem
komin eru á efri ár“, „Fjöl-
skyldumeðferð í þjónustu við
foreldrafatlaðrabama", „Líkan
af sálfræðilegum stuðningi til
foreldra", „Samvinna foreldra
og sérfræðinga" og „Samfélags-
leg hugmyndafræði og ábyrgð
foreldra".
Nokkuð mörg erindi voru um
þjónustu fyrir fatlaða í hinum
ýmsu löndum - m.a. frá for-
eldrum ýmissa þjóðlanda um
reynslu sína af uppeldi fatlaðra
þar. Einnig um hinar ýmsu teg-
undir fötlunar og hvernig
stuðningur henti þeim best,
einstaklingum sem foreldmm
(sjónskertir, einhverfir, down
syndrome o.s.frv.). Sömuleiðis
erindi um fræðslu til foreldra
fatlaðra bama og gullasöfnin
vom líka á sínum stað.
Undirritaður hefur undan-
farin ár ásamt Hugo Þórissyni
sálfræðingi verið með fræðslu-
námskeið um samskipti for-
eldraog barna. Þegarég byrjaði
svo að starfa í þágu fatlaðra fór
ég að starfa með góðu fólki í því
að koma upp fræðslunám-
skeiðum fýrir foreldra fatlaðra
Wilhelm NorðQörð
bama.
Öryrkjabandafag íslands
hefur stutt þessa þjónustu til
foreldra fatlaðra bama ásamt
Styrktarfélagi vangefinna,
Þroskahjálp, Styrktarfélagi
lamaðra og fatlaðra og Sjálfs-
björg landssambandi fatlaðra.
Á ráðstefnunni vom þessum
efnum gerð góð skil. Vil ég þar
nefna erindi um Frambu -
heilsumiðstöð í Noregi, þar sem
haldin hafa verið námskeið
foreldra fatlaðra bama undan-
farin 12 ár. Núna em haldin þar
nokkurra daga námskeið fýrir
yfir 30 mismunandi hópa. (For-
eldra, er eiga böm með svipaða
eða sömu fötlun) foreldra fatl-
aðra bama og þeirra fjölskyld-
ur. Meðan foreldrar sitja nám-
skeiðið sér starfsfólk um börn
þeirra.
í Agrensta - heilsumiðstöð í
Svíþjóð er unnið við spennandi
og skemmtilega hluti fýrir for-
eldra fatlaðra bama. Foreldri
sem eignast hefur fatlað bam
gefst kostur á að fara til eyjar-
innar og t.d. fá fræðslu um
hvemig hægt er að útbúa heim-
ilið sæmilega gagnvart fötlun
bamsins - hitta aðra foreldra,
sem eiga í svipuðum vanda - fá
viðtöl við sérfræðinga o.s.frv. Á
sumrin er boðið þar upp á
sumarbúðir. Hugmyndin er að
bjóða líka nemendum, sem t.d.
eiga við lestrar- og/eða skrift-
arerfiðleika að stríða að dvelja
þarna í sérstakri meðferðar-
áætlun í tengslum við leik í
náttúrulegu umhverfi.
í lokin vil ég aðeins minnast
á fýrirlestur um fræðslu fýrir
foreldra fatlaðra barna, sem
boðið er upp á í Stokkhólmi.
Tveir starfsmenn sjá um að
skipuleggja um 70 námskeið
árlega, þar á meðal em nám-
skeið fýrir foreldra sem em
þroskaheftir, foreldra þroska-
heftra og foreldra barna með
líkamlegar fatlanir. Hvert nám-
skeið er aðlagað að þörfum sér-
hvers hóps t.d. námskeið fýrir
foreldra er eíga einstaklfng á
sambýli. Á sum námskeið kem-
ur öll fjölskyldan með og á önn-
ur kemur sá starfsmaður með
sem mest vinnur með fatlaða
barnið.
Þar sem mitt áhugasvið
kristallast í eftirfarandi spurn-
ingu: Hvernig getum við boðið
foreldrum, fj'ölskyldum fatlaðra
barna leiðsögn í formi fræðslu-
námskeiða, þannig að þeim
nýtist hún, og auðveldi þeim að
takast á við þann vanda, sem
fýlgir því að eiga fatlað bam?
bar val mitt á fýrirlestrum
ráðstefnunnar þess merki. Það
er einmitt kostur yfirgripsmik-
illar ráðstefnu sem þessarar að
allir hafi möguleika á að velja
sitt áhugasvið, en um leið fýlgir
sá galli að dýpri nálgun við-
fangsefnanna verður að bíða
sérhæfðari ráðstefnu eða nám-
skeiðs. í heild tókst ráðstefnan
mjög vel og ekki sakaði hvað
mér fannst Stokkhólmur þægi-
leg og notaleg borg.
Wilhelm Norðflörð
15