Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1989, Blaðsíða 11
Haltur ríður hrossi
HkJVR
Höfundar handrits eru Dóra S. Bjarnason
og Sigrún Stefánsdóttir
FRiÉÐSHJ
VARP
Eins og áður hefur verið greint frá í
Fréttabréfi, var veittur styrkur að
upphæð 750.000 krónur af hálfu
Öryrkjabandalagsins til sjón-
varpsþáttagerðar Fræðsluvarps um líf
og starf fatlaðra. Ljóst er nú að því fé
var einkar vel varið, svo sem til hefur
tekist um gerð þessara þátta.
Eiga þær Sigrún Stefánsdóttir og
Dóra S. Bjamason mikla þökk fyrir
vandað verk og vel unnið, en á sér-
stökum fréttamannafundi Þroska-
hjálpar og Öryrkjabandalagsins voru
þessir þættir kynntir og þá fylgdi með
svohljóðandi fréttatilkynning um starf
þetta og þættina sjálfa, sem um gildir
að sjálfsögðu: Sjón er sögu ríkari.
„Öryrkjabandalag Islands og
Landssamtökin Þroskahjálp hafa í
samvinnu við Fræðsluvarp látið gera
fimm sjónvarpsþætti og ritað fræðslu-
efni um líf og aðstæður þess fólks sem
býr við andlega eða líkamlega skerð-
ingu en tekur samt virkan þátt í lífi og
starfi þjóðfélagsins og leggur þar sitt af
mörkum. Þetta efni er ætlað nem-
endum á grunnskólastigi, fram-
haldsskólastigi svo og nemendum í
ákveðnum greinum innan Háskóla
Islands, kennaraskólanemum og fleir-
um. Auk þess getur þetta efni gagnast
foreldrafélögum, félagasamtökum
fatlaðra og á vinnustöðum. Sjón-
varpsþættirnir verða á dagskrá
Fræðsluvarps næstu vikumar og verða
þeir sendir út með sérstökum texta
fyrir heymarskerta.
Meginuppistaða myndefnisins eru
viðtöl við fatlað fólk sem lifir inni-
haldsríku lífi, sjálfu sér og öðru til
gagns og ánægju og viðtöl við að-
standendur þess. Flestir viðmælendur í
þáttunum hefðu tæpast átt þess kost
fyrir einum til tveimur áratugum að
geta notað sér almenna þjónustu í sama
mæli og nú, sem bendir til þess að
ákveðnar breytingar hafi átt sér stað í
viðhorfum almennings til þeirra.
Margir af viðmælendunum eru for-
göngufólk annarra fatlaðra sem vilja
legga sitt af mörkum við hlið ófatlaðra
og njóta sambærilegra kjara og þeir.
Líf brautryðjenda er sjaldnast dans á
rósum. Þeir sem gáfu brot úr sögu sinni
til þessara þátta hafa ekki farið var-
hluta af ýmsum skrámum er tengjast
Svona er efnið kynnt.
fordómum og þekkingarleysi þeirra
sem telja sig ófatlaða.
Þáttaröðin og væntanleg bók um
sama efni hafa hlotið nafnið H ALTUR
RÍÐUR HROSSI. Fyrsti þátturinn
fjallar um viðhorf og viðmót gagnvart
fötluðu fólki í ljósi sögunnar, bók-
mennta, siðfræði og kristinnar trúar.
Síðari þættimir byggja hver um sig á
þessum fyrsta þætti. Þeir fjalla urn
heimilið, skóla og dagheimili, vinnu,
frístundir og vináttu. Hver þáttur er um
það bil 20 mínútur að lengd.
Dóra S. Bjarnason, lektor, er
höfundur bókar, en hún og Dr. Sigrún
Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri
Fræðsluvarps eru höfundarhandrits og
stjórnendur upptöku og vinnslu.
Þumall kvikmyndagerð annaðist
klippingu og framleiðslu. Þulur er
Róbert Amfinnsson leikari, en tónlist
er eftir I Ijálmar H. Ragnarsson og
Magnús Blöndai Jóhannsson.”
Undirritaður hefur hér engu við að
bæta, en endurtfekur aðeins: Hér hefur
fé verið vel varið.
£j
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
11