Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1989, Side 13
leshjálpartækjum leggja mikla
áherslu á að sjónskert fólk nýti
sjónleifar sínar eftir því sem
hægt er. Gallinn við lessjón-
varpstækin er sá að þau eru
nokkuð fyrirferðarmikil, en þau
fara ört minnkandi.
Þegar tölvutæknin fór að
ryðja sér til rúms, var farið að
athuga og gera tilraunir með
hvort tölvur gætu ekki þjónað
sjónskertu fólki á einhvem hátt.
Með þá staðreynd í huga að
tölvumar nota tölugildi til þess
að breyta rituðu máli yfir í
tölvutækt form, þá hlaut að vera
hægt að nota sömu eða svipuð
tölugildi til þess að breyta
venjulegu letri í blindraletur og
gervital. Menn fóru að fikra sig
áfram, vélrituðu texta inn á
tölvur og reyndu að láta hana
umbreyta textanum. Með
þrotlausri vinnu og athugunum
reyndist þetta kleift. Iæiðimar
virtust óþijótandi. Tclvan gat
breytt venjulegu letri í
blindraletur eða gervital og hægt
var að skrifa blindraleturstákn
inn á þar til gerðar tölvur með
blindraleturslyklaborði og fá
þetta tölvutæka blindraletur
yfirávenjulegtletur. Þátókst að
búa til sérstakt lestæki
svokallað Viewscan sem tók
mynd af textanum, aðeins einni
línu í einu og umbreytti yfir í
auðlesanlegt, stórt letur sem
kom fram á litlum skjá. Jafnvel
var hægt með þessu tæki að skrá
texta inn í tölvu en það var frekar
seinvirkt, Sem sagt, tölvutækn-
in opnaði blindu og sjónskertu
fólki nær ótakmarkaðan að-
gang að venjulegu rituðu máli.
Með þessu var málshátturinn
„blindur er bóklaus maður“
orðinn marklaus nema í þeirri
merkingu að bóklaus maður sé
andlega blindur.
Eitt fyrsta ritvinnslutæki
sem þróað var fyrir blinda var
svokallað Braillex frá þýsku fyr-
irtæki. Þetta tæki er byggt upp á
þann hátt að notandinn vélritar
texta inn á tækið. Lyklaborðið er
með sex tökkum eins og
blindraritvélar em, en í blindra-
letrinu em sex punktar eins og
áður er getið. Sem sagt, notand-
inn vélritar inn á Braillextækið
textann og getur svo lesið hann á
litlum fingraskjá sem er á
tækinu. Þá reyndist unnt að
tengja þetta tæki við venjulega
tölvustýrða ritvél og fá þannig
textann sem ritaður var í formi
blindraleturs vfir á venjulegt
letur. Þetta tæki og fleiri svipuð
urðu algjör himnasending fýrir
sjóndapra og breyttu möguleik-
um þeirra til allrar ritvinnslu.
Guðjón B. Ólafsson, núver-
andi forstjóri Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga, var
um árabil forstjóri dótturfyr-
irtækis Sambandsins í Banda-
ríkjunum. Systir Guðjóns,
Ásgerður Ólafsdóttir, sem var
blindraráðgjafi hjá Blindrafé-
laginu, en starfar nú sem um-
ferliskennari hjá Sjónstöð ís-
lands, hafði séð ritvinnslutæki
af tegundinni VersaBraille sem
var sérstaklega hannað fyrir
blinda. Hún vakti áhuga Guð-
jóns á þessu og afraksturinn
varð sá að dótturfyrirtæki Sam-
Sjá næstu síðu
Myndin sýnir konu Iesa á bók með hjálp lestækis. Sérstök myndavél varp
ar mynd af blaðsíðunni upp á skjáinn og er hægt að stækka myndina allt
að fimmtíu sinnum. Lestæki sem önnur les- og ritvinnsluhjálpartæki eru
fokdýr enda heimtar ríkið sitt.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
13