Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1989, Qupperneq 18
Hjálpartækjabankinn í nýju húsnæði
Hjálpartækjabankinn ílutt-
ist í nýtt húsnæði að Hátúni 12
í ágúst 1988, en formlega var
húsnæðið tekið í notkun hinn
7. jan. sl. með mikilli viðhöfn að
viðstöddu íjölmenni.
Eins og kunnugt er, þá eru
það Rauði kross íslands og
Sjálsbjörg sem standa að Hjálp-
artækjabankanum og hafa gert
með mikilli reisn og myndar-
skap, þó nú skapist nýir ogbetri
þjónustumöguleikar í nýju og
rúmgóðu húsnæði.
Það var heilbrigðis- og trygg-
ingaráðherra Guðmundur
Bjarnason sem lýsti húsnæðið
formlega opnað og bað starf-
seminni þar allrar blessunar.
Áður hafði Bjöm Tryggva-
son formaður stjómar Hjálp-
artækjabankans flutt greinar-
gott og fróðlegt yfirlit um sögu
Hjálpartækjabankans, sam-
skipti við opinbera aðila og reif-
að ákveðna framtíðarsýn varð-
andi starfsemina.
Ávörp vom einnig flutt af
fulltrúum eignaraðila; Jó-
hanni Pétri Sveinssyni form.
Sjálfsbjargar og Guðjóni
Magnússyni aðstoðarland-
lækni og formanni Rauða
kross íslands.
Á eftir var gestum boðið að
skoða húsnæðið og þau fjöl-
mörgu tól og tæki, sem þar em
á boðstólum svo og bauð Jó-
hann Pétur gestum að skoða
efri hæð hússins, en þar
verður félagsheimili Sjálfs-
bjargar. Það á hins vegar
alllangt í land, liðlega fokhelt
og mun fara eftir fjárveiting-
um og fjáröflun hversu
snemma það verður tekið í
fulla notkun. Ljóst er að við
þetta húsnæði mun félagsleg
aðstaða Sjálfsbjargar gjör-
breytast. Ekki er hér ætlunin
að greina í einstökum atriðum
frá þessum sérstæða en ágæta
banka, innstæðum hans og
útlánum en rétt gripið niður í
greinargóða skýrslu sem fýlgdi
með við opnunina.
Bankinn var stofnaður 30.
desember 1975 og regluleg starf-
semi hófst á miðju ári 1976 í þá-
verandi miðstöð Rauða krossins
við Nóatún og Skipholt í Reykja-
vík. Fýrsti starfsmaðurinn hóf
störf 1. mars 1978, en það var
einmitt Björgúlfur Andrésson
sem verið hefur forstöðumaður
bankans allt til þessa dags. Mik-
ið sjálfboðastarf var unnið af
Kvennadeild Reykjavíkurdeildar
R.K.Í.
Nú em ijórir fastráðnir starfs-
menn við bankann, tveir í fullu
starfi og tveir í hálfu starfi.
Starfssviðið er sala og leiga
hinna ýmsu hjálpartækja fyrir
fatlað fólk og aldrað og starfs-
svæðið er allt landið.
Helstu tæki á boðstólum eru:
Hjólastólar, göngugrindur,
göngustafir, hækjustafir, tæki til
notkunar í eldhúsi (sérútbúin
hnífapör, drykkjaráhöld),
sjúkrarúm, lyftur og margs
konar einnota hjálpartæki. Það
er mikils virði að hjúkmnar-
fræðingur og iðjuþjálfi em að
störfum alveg sér í lagi við aðstoð
og ráðgjöf. Hjúkmnarfræðingur
sér um útvegun á vömm fýrir
stomasjúklinga. Iðjuþjálfinn fer
árlega skemmri ferðir út á land til
að kynna það sem fram fer.
í hveijum mánuði leita 1000-
1200 manns til bankans. Reikn-
að er með að 10% landsmanna
hafi einhvem tíma á ævinni þörf
fyrir hjálpartæki.
Flest tækja bankans eru
greidd af sjúkratiyggingadeild
Tryggingastofnunar ríkisins
100% eða 70% fýrir einstaklinga
og þau yfirleitt skilaskyld.
Hjálpartækjabankinn er
sjálfseignarstofnun og eina
stofnun sinnar tegundar í land-
inu.
Eins og áður er frá greint er
bankinn nú til húsa í viðbygg-
ingunni við Hátún 12 - Sjálfs-
bjargarhúsinu - og er bankinn
með fyrstu hæðina og hálfan
18