Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1989, Page 26
MERKUR ÁFANGI
Vallholt 12 á Selfossi.
Það var býsna mikill hátíðarblær
yfir Selfossi í björtu norðan kulinu 20.
janúar s.l. og ekki að ástæðulausu.
AðVallholti 12þaríbæ vorusam-
an komnir allmargir gestir til að fagna
því að Hússjóði Öryrkjabandalags ís-
lands var formlega skilað af verktök-
um húsi sínu þar fullbúnu, húsi sem
Svæðisstjórn um málefni fatlaðra á
Suðurlandi mun svo taka til notkunar
og hafa alla umsjón með.
Forvígismaður verktaka - G-
verks á Selfossi, Guðmundur Ingv-
arsson, ávarpaði fyrst gesti og vakti
athygli á þeim methraða, sem húsið
var reist á, eða rétt um 13 mánuðum
frá því fyrst var hafist handa. Hann
greindi frá hönnunaraðila sem var
Tæknideild Húsnæðisstofnunar,
verkfræðiþáttinn sá Tæknistofan Óð-
instorg um og Rafhönnun sá um raf-
lagnir. Hann gat sérstaklega þess
gleðilega við það að öll vinna verk-
taka sem undirverktaka við húsið var
unnin af heimamönnum á Selfossi.
Húsið er fullbúið utan sem innan og
frágangurúti sem inni til fyrirmyndar.
Afhenti Guðmundur síðan Oddi Ól-
afssyni formanni Hússjóði Ö.B.Í.
lyklavöldin að húsinu.
Oddur þakkaði öllum aðilum er
þama höfðu lagt gjörva hönd að og gat
sér í lagi um hinn góða þátt Eggerts
Jóhannessonar við að hrinda þessu af
stað. Oddur kvað þetta hús gleðilegan
vott þeirrar stefnu, sem fylgt væri hjá
Hússjóði Ö.B.Í. að dreifa húsnæði
bandalagsins sem best og mest um
landið. Bað byggingu þessari
| 15 5
Guðmundur Kr. Ingvarsson hjá
G-verki afhendir Oddi Ólafssyni
lyklana að húsinu.
blessunar og að hún yrði fötluðum að
sem farsælustu liði.
Það var svo Loftur Þorsteinsson
varaformaður Svæðisstjómar Suður-
lands, sem tók við húsinu til notkunar
og færði Hússjóði Ö.B.I. og
forvígisfólki þareinlægarþakkir. Hann
kvað Svæðisstjóm mundi hafa umsjón
með rekstrinum, en í því em íbúðir fyrir
sjö fatlaða, 2 tvíbýli og 3 einbýli.
A biðlista voru 10, en þetta væri
verulegur áfangi til úrlausnar hús-
næðisvandanum.
Þá tók Eggert Jóhannesson við
stjóm og gaf Gyðu Sveinbjömsdóttur
formanni Þroskahjálpar á Suðurlandi
orðið, en hún flutti þakkir félagsins og
færði að gjöf 300 hundruð þúsund til
kaupa innbús í dagstofu hússins.
Amþór Helgason kvað það stefnu
Öryrkjabandalags Islands að ná til sem
flestra íbúa þessa lands sem á aðstoð
þyrftu að halda. Hann lauk lofsorði á
haganleika og vel unnið verk, en kvað
frábært starf Eggerts Jóhannessonar -
allt frá hugmynd til veruleika, ómet-
anlegt. I þessu húsi finn ég að rfkir
góður andi.
Alþingismenn þeir sem mættu, Jón
Helgason og Guðni Ágústsson, fluttu
báðir ámaðaróskir. Jón fagnaði þessu
mikilvæga starfi í dreifingu Lottó-fjár-
ins um landið.
Guðni kvað stjómmálamenn mega
af þessu framtaki læra rétt og skipuleg
vinnubrögð - þeir gerðu of mikið af því
að brjóta heilann um fortíðina - bölva
nútíðinni og skjálfa fyrir framtíðinni.
Hér væri unnið ákveðið án alls víls, án
alls hávaða. - Hlutimir framkvæmdir.
Guðmundur Gunnarsson forstöðu-
maður Tæknideildar Húsnæðisstofn-
unar flutti kveðjur Húsnæðisstofnun-
ar. Við svona verkefni væri ánægju-
legra að fást, en flest önnur.
Sem betur fer hefði lánareglum
stofnunarinnar verið breytt til þess að
þetta væri kleift, en hér væri einmitt
rétti farvegurinn fyrir lánsfjármagnið.
Sigríður Jensdóttir bæjarfulltrúi
flutti heillaóskir bæjarstjórnar
Selfossbæjar. Fyrir bæjarfélagið væri
ómetanlegt að eiga slíkt fólk að, sem
framkvæmdastjóra og fulltrúa
Svæðisstjómar.
Ragnar Magnússon bað húsinu
blessunar f.h. Blindrafélagsins.
Þá flutti Eggert Jóhannesson
framkvæmdastjóri Svæðisstjórnar
nokkur lokaorð.
Hér væri dæmi um eindæma vel
unnið verk, framúrskarandi samskipti
og samvinnu allra aðila, sem aldrei
hefði borið skugga á.
Hann færði öl lum einlægar þakkir en
alveg sérstaklega Önnu Ingvarsdóttur
framkvæmdastjóra Hússjóðs Ö.B.Í.
Bauð síðan gestum til veglegrar
kaffidrykkju í boði Svæðisstjómar. Öll
var athöfn þessi hin ánægjulegasta. En
sjón er sögu ríkari og með fylgja
myndiraf þessari glæsilegu byggingu.
Hús Öryrkjabandalagsins við Vallholt á Selfossi.
H.S.
26