Fréttablaðið - 16.05.2020, Page 28
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Það er fullt í öllum hólfum hjá okkur núna og við finnum hvað fólk er orðið þyrst eftir
afþreyingu. Við getum varla beðið
eftir mánudeginum 25. maí en þá
verður starfsemin eðlileg aftur. Þá
munum við notast við 2 svæði og
allt verður eins og það á að vera,“
segir Jóhannes Ásbjörnsson (Jói),
talsmaður Gleðipinna, og fagnar
því að sjá fólk aftur í keilu.
„Við lokuðum um það bil
helmingi staðanna okkar á meðan
20 manna samkomubannið var
ríkjandi. Þann 4. maí fór
þetta að hressast og
við gáum hólfað
svæðin niður með
merkingum, svipað
og stórar verslanir
hafa gert,“ útskýrir
Jói. „Við fundum
strax fyrir því að
fólk var farið að sakna
þess að geta ekki komið
í keilu og fengið sér pizzu.
Þann 4. maí urðu svo ákveðin
kaflaskil í hugarfari landsmanna
sem voru farnir að sakna mann-
legra samskipta. Þegar við máttum
hafa 50 manns í hverju rými
breyttust allar aðstæður. Núna er
orðið virkilega gaman í Keiluhöll-
inni aftur,“ segir hann.
Jóhannes bendir á að það hafi
verið frábærar fréttir á miðviku-
dag þegar tilkynnt var um enn
frekari afléttingu 25. maí. „Allt
verður eins og áður, nema fólk
þarf að gæta sín áfram eins og
það hefur gert. Það er bjart yfir
komandi vikum. Viðburðirnir fara
aftur á fullt fimmtudaginn 28. maí
en þá verður Dr. Football Hjöbb
Quiz á dagskrá. Frá þeim degi
verður mjög þétt viðburðadagskrá
út árið. Við erum að vinna með frá-
bærum skemmti-
kröftum og
listamönnum,
sem hafa líkt og aðrir ekki
haft neitt að gera síðustu
vikurnar. Við ætlum þess
vegna að gefa allt í botn og
fjölga viðburðum hjá okkur.
Sumarið verður algjörlega
geggjað í Keiluhöllinni.“
Gleðipinnar voru nýbúnir að
hefja spennandi samstarf við lista-
kokkinn og fjölmiðlakonuna Evu
Laufeyju, áður en samgöngubann-
ið hófst. „Eva Laufey er magnaður
kokkur og mikill pizzuaðdáandi.
Hugmyndin var að setja saman
eina pizzu en hún leyfði okkur að
smakka svo margar ómótstæði-
legar að niðurstaðan var að búa til
sérstakan Popp-Öpp mat-
seðil með fjórum pizzum.
Þarna er indversk pizza,
Eva Masala, mexíkósk
pizza, Eva Sombrero,
sveppapizza sem ber
nafnið Sveppi Krull og
ævintýralega góð osta-
pizza sem við ákváðum
að kalla Ost við fyrstu sýn.
Þessi Popp-Öpp matseðill er
tímabundinn og því hvetjum við
fólk til að koma og smakka sem
fyrst. Það er auðvitað hægt að
koma að borða á staðnum, en
einnig er hægt að panta
á shakeandpizza.is og
taka með sér heim.
Svo er hægt að fá sent
heim með Hreyfli,
en við höfum verið
í frábæru samstarfi
með þeim undan-
farnar vikur.
Það gildir um
alla staði okkar
Gleðipinna,“ bætir
Jóhannes við.
Á Hamborg-
arafabrikkunni
er líka glænýr
borgari sem
landsmenn ættu
að leggja leið sína
til að smakka. Það
er sjálfur Laddinn,
hamborgari allra lands-
manna. „Þetta er afar einfaldur
hamborgari en ofsalega bragð-
góður. Uppskriftin er eftir Ladda
sjálfan en Eyþór Rúnarsson, hinn
landsþekkti sjónvarpskokkur, sá
um að útfæra hann.“
Að sögn Jóa setti Laddi tvö skil-
yrði fyrir samstarfinu. Í fyrsta lagi
að það væru súrar gúrkur á ham-
borgaranum og í öðru lagi að hann
yrði borinn fram með kartöflu-
salati í stað franskra.
Jóhannes segir að undanfarin
misseri hafi verið unnið mark-
visst í gæðamálum staðanna með
það að markmiði að gera gott
enn betra. Nú er kominn nýr og
virkilega spennandi matseðill
á Saffran. „Landsliðskokkarnir
Viktor Örn og Hinrik Lárusson eru
búnir að gera ótrúlega magnaða
hluti á Saffran. Virkilega spenn-
andi nýir réttir komnir á matseðil.
Mitt persónulega uppáhald er
Kimchi kjúklingasalatið. Það er
hreint út sagt ávanabindandi. Ég
mæli með að skreppa í heimsókn
á Saffran og prófa þessa nýju frá-
bæru rétti,“ bætir Jói við.
Saffran er nú opið á tveimur
stöðum, í Glæsibæ og á Dalvegi.
„Við erum fegin því að lífið er
smátt og smátt farið að nálgast það
að verða eðlilegt aftur. Við verðum
að sjálfsögðu að fara varlega og
við munum svo sannarlega gera
það á okkar stöðum.
Við förum eftir leið-
beiningum almanna-
varna og landlæknis,“
segir Jói. „Mér finnst
mjög gaman að sjá lífið
kvikna á ný í Reykjavík og
við hlökkum til að taka
á móti viðskiptavinum
okkar aftur. Við ætlum
að eiga frábært sumar,
fólk ætlar að njóta lífsins
og hluti af því er að fara út að
borða og í keilu,“ segir Jói.
Á vefsíðu Gleðipinna má nálgast
ýmsar upplýsingar gledipinnar.is
BORÐA Á STAÐNUM
SALUR C
Shake&Pizza
INNGANGUR
SALUR C
Shake&Pizza
AÐALINNGANGUR
SALERNI
PANTA EÐA
SÆKJA
PANTA EÐA
SÆKJA
ÞESSA LEIÐ ÚT
BORÐA Á STAÐNUM
SALUR A
Hólfaskipting í Keiluhöllinni og
Shake&Pizza
Keiluhöllinni er skipt niður í fjögur svæði. Á
hverju svæði er leyfilegur fjöldi 50 manns.
Við minnum fólk á að virða 2 m regluna.
Borðaskipan
Setið er á öðru hverju borði á veitingastað
og spilað á annarri hverri braut til að
viðhalda 2 m reglunni eins og kostur er.
Hreinlæti
Handspritt er aðgengilegt við alla
afgreiðslukassa og á öllum keilubrautum.
Við sótthreinsum alla sameiginlega
snertifleti með reglubundum hætti.
2 m fjarlægðarmörkin
Fjarlægðarmerkingar eru á gólfum til
að tryggja 2 m fjarlægðarmörkin.
Talið inn
Talið er inn í hvert rými þegar það á við til
að tryggja að fjöldatakmarkanir séu virtar.
Merkingar
Merkingar um handþvott og áminningar
um 2 m fjarlægðarmörkin eru áberandi og
aðgengilegar.
Heimsending/heimtaka
Hægt er að panta mat á Shake&Pizza á
shakeandpizza.is og fá matinn sendan
heim eða sækja hann til okkar.
Ráðstafanir í Keiluhöllinni og
Shake&Pizza vegna Covid-19
Við leggjum okkur fram um að tryggja öryggi viðskiptavina
okkar og starfsfólks. Við förum eftir leiðbeiningum Almannavarna
og Landlæknis og höfum gert miklar ráðstafanir hjá okkur.
KEILUHÖLIN
MÓTTAKA
BORÐA Á STAÐNUM
SALUR B
KEILUSALURINN
SALUR D
Shake&Pizza
MÓTTAKA
Framhald af forsíðu ➛ Veitingastaðir Gleðipinna
sem eru opnir
n Hamborgarafabrikkan:
Höfðatorgi og Kringlunni
n Keiluhöllin og Shake&Pizza:
Egilshöll
n American Style: Skipholti,
Bíldshöfða, Hafnarfirði og
Kópavogi
n Aktu Taktu: Skúlagötu, Mjódd,
Garðabæ og Fellsmúla
n Blackbox: Borgartúni og Mos-
fellsbæ
n Eldsmiðjan: Suðurlandsbraut
n Pítan: Skipholti
n Saffran: Glæsibæ og Dalvegi
n Kaffivagninn: Granda
Keilubrautirnar bíða eftir stórum sem smáum snillingum í leikinn.
Keiluhöllinni
hefur verið
skipt niður í
svæði svo ör-
yggið er tryggt
fyrir spilara.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . M A Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R