Fréttablaðið - 16.05.2020, Page 42
Hlutfall: Fullt starf Tegund: Kennsla
Slysavarnaskóli sjómanna leitar að kennara
Umsóknarfrestur til 31.05.2020
Sjá nánar á Job
KennariVERITAS LEITAR AÐ ÖFLUGUM
LIÐSMANNI Í STERKA HEILD!
Umsóknarfrestur
er til og með
25. maí
Tekið er við umsóknum í gegnum
ráðningarvef Veritas, www.veritas.is.
Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá
og kynningarbréf þar sem gerð er
grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda
í starfið.
Nánari upplýsingar veita
Hákonía J. Guðmundsdóttir,
deildarstjóri upplýsingatæknideildar,
hakonia@veritas.is og
Pétur Veigar Pétursson,
starfsmannastjóri, petur@veritas.is.
Hugbúnaðarsérfræðingur
Við leitum að metnaðarfullum og öflugum forritara, sem
hefur áhuga á að vinna með m.a. Dynamics
NAV, vefþjónustur og Sharepoint, til að slást í
upplýsingatæknihóp Veritas.
STARFSSVIÐ
• Greining á þörfum, tæknilegum kröfum og
hönnun hugbúnaðarlausna sem styðja við
vinnuferla Veritas samstæðunnar
• Þátttaka í þróun upplýsingatækni innan
Veritas samstæðunnar
• Forritun lausna
HÆFNI
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d.
tölvunar- eða hugbúnaðarverkfræði
• Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
• Lausnamiðuð hugsun, þjónustulund, jákvæðni
og lipurð í mannlegum samskiptum
ÞEKKING OG REYNSLA
• Reynsla og góð þekking á Dynamics NAV
• Áhugi á að vinna með m.a. Sharepoint og vefþjónustur
• Þekking á Microsoft umhverfi: Visual Studio, .NET, SQL,
Powershell er kostur
• Góð tækniþekking og geta til að setja sig inn í ný kerfi
og umhverfi
Veritas sérhæfir sig í rekstri fyrirtækja á sviði heilbrigðisþjónustu.
Veritas er móðurfélag fyrirtækjanna Artasan ehf., Distica hf., MEDOR ehf.,
Stoð hf. og Vistor hf.
Fyrirtækið er kjölfesta samstæðunnar og veitir þjónustu til dótturfyrirtækjanna
svo þau geti einbeitt sér að kjarnastarfsemi sinni.
Nánar á www.veritas.is
Við leitum að faglærðum málmiðnaðarmönnum til starfa.
Starfið felst í fjölbreyttri nýsmíði og uppsetningum.
Sjá heimasíðu fyrirtækisins www.jso.is
Áhersla er lögð á frumkvæði, áreiðanleika, létta lund og
þjónustulipurð auk sjálfstæðra vinnubragða
og samstarfshæfni. Íslenska eða góð ensku kunnátta
er skilyrði.
Umsóknir sendast á jso@jso.is
Skólastjóri
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri er fyrir nemendur
í 1.-10. bekk. Í skólanum eru 140 nemendur og þar starfa um
30 starfsmenn. Kjörorð skólans er Jákvæðni – Metnaður
– Virðing – Heiðarleiki. Skapandi greinar fá mikið vægi í
skólastarfinu, gott samstarf er við leikskólana og áhersla er
lögð á góða samvinnu við heimilin.
Skólar og fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Árborgar vinna að
styrkingu heildstæðrar nærþjónustu við börn, foreldra og
skóla. Áhersla er lögð á snemmtæka íhlutun, öflug tengsl
skóla og skólastiga og skólaþróunarverkefni sem unnin eru í
anda lærdómssamfélagsins.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leið-
togahæfni og hefur mikla reynslu og þekkingu á grunnskóla-
starfi. Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf
fyrir starfsheitið kennari, framtíðarsýn umsækjanda
varðandi þróun skólastarfs og annað sem skiptir máli.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2020.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Veita skólanum faglega forystu
• Virk þátttaka í þróun og skipulagi skólastarfs í Árborg
• Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri skólans
• Samstarf við fjölskyldusvið, bæjaryfirvöld og aðila skóla-
samfélagsins
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun er skilyrði
• Leyfisbréf grunnskólakennara og kennslureynsla á grunn-
skólastigi er skilyrði
• Þekking og reynsla af rekstri og stjórnun er skilyrði
• Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslu-
fræði er mikill kostur
• Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Sérstök áhersla er lögð á að viðkomandi búi yfir lipurð í
samstarfi og mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitar-
félaga og KÍ v/SÍ. Starfshlutfall 100%.
Umsóknarfrestur er til 29.05.2020.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Hjartarson, sviðsstjóri
fjölskyldusviðs, thorsteinnhj@arborg.is Sími 480-1900.
Umsókn ásamt starfsferilskrá og rökstuðningi fyrir hæfni
í starfið skal skila í gegnum ráðningarvef sveitarfélagsins
http://starf.arborg.is/storf/Default.aspx
Ertu góður stjórnandi og með brennandi áhuga á menningu og fólki?
Við leitum að deildarstjóra í nýtt menningarhús Borgarbókasafnsins í Úlfarsárdal
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar
endurspegli það margbreytilega samfélag sem við búum í. Reykjavíkurborg vinnur gegn mismunun á vinnu-
markaði og hvetur innflytjendur, fatlað fólk, hinsegin fólk og fólk á öllum aldri til að sækja um störf hjá borginni.
Í Úlfarsárdal rís skóli, bókasafn og menningarmiðstöð, sundlaug og íþróttamiðstöð. Áætlað er að Borgarbókasafnið
opni þar menningarhús á vormánuðum 2021. Bókasafnið í Úlfarsárdal mun starfa í mikilli nánd og samvinnu við sundlaug
staðarins ásamt því að lögð verður mikil áhersla á góða samvinnu við Dalskóla og frístundastarf í hverfinu. Deildarstjóri
ber ábyrgð á stjórnun og rekstri bókasafnsins; sýningum, fræðslustarfi, dagskrá og viðburðum ásamt því að eiga gott
samtal við nærsamfélagið í hverfinu.
Deildarstjóri hefur jafnframt yfirumsjón með margvíslegri þjónustu við ytri og innri viðskiptavini Borgarbókasafnsins.
Starfssvið:
• Umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri menningarhússins í Úlfarsárdal.
• Stjórnun mannauðs.
• Eftirfylgni samninga og samvinna við aðrar stofnanir í húsinu
• Gerð og eftirfylgni starfs- og fjárhagsáætlunar fyrir menningarhúsið.
• Situr í stjórnendateymi Borgarbókasafnsins sem tekur stefnumarkandi ákvarðanir um starfsemi, rekstur og
stefnumótun safnsins.
Hæfniskröfur
• Háskólaprófs á framhaldsstigi (MA/MS) eða;
Háskólaprófs á fyrsta stigi (BA/BS) auk mikillar starfs- og stjórnunarreynslu á viðkomandi sérfræðisviði.
• Viðamikil reynsla og þekking á menningarstarfi.
• Haldbær þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar.
• Þekking og/eða reynsla af innleiðingu breytinga.
• Þekking á starfsumhverfi opinberrar stjórnsýslu er kostur.
• Metnaður, frumkvæði, hugmyndaauðgi og sjálfstæði í starfi.
• Færni og geta til að vinna undir álagi og að sinna mörgum viðfangsefnum.
• Færni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki.
• Gott vald á íslensku og ensku ásamt hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. Þekking á norðurlandamáli er kostur.
• Nákvæmni, vandvirkni, almenn þekking á tölvunotkun ásamt áhuga og getu til að tileinka sér nýjungar.
Næsti yfirmaður er borgarbókavörður.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um starfið gefur Pálína Magnúsdóttir borgarbókavörður, palina.magnusdottir@reykjavik.is, s. 4116125.
Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 25.5.2020. Umsóknir skulu sendar á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf.