Fréttablaðið - 16.05.2020, Side 92
ÞAÐ ER MJÖG GOTT
FYRIR MIG AÐ HAFA
GULRÓT, EF ÉG HEFÐI EKKI
GULRÓT MYNDI ÉG ALDREI GERA
NEITT.
Mestmegnis teikningar er heiti sýningar á verkum K r istjáns G u ð m u n d s son ar, sem nú
stend ur yfir í i8 galleríi á Tryggva
götu.
„Upphaflega ætlaði ég eingöngu
að sýna teikningar en eitt verk, allt
öðruvísi, bættist við, Ósótt útsýni.
Það er gert úr gluggagleri sem ein
hverjir höfðu pantað í glersmiðju en
var aldrei sótt; þar hafa einhverjir
draumar farið í vaskinn,“ segir
Kristján.
Elsta teikningin á sýningunni er
frá 2007 og yngstu verkin eru nýjar,
stórar, innrammaðar teikningar.
„Þetta eru abstrakt verk, teikningar
um teikningar, og hafa ekki skír
skotanir út í lífið, eru bara form. Ég
hef lengi verið að fást við svona þrí
víðar teikningar,“ segir listamaður
inn. Bók eftir hann, frá árinu 1987,
gefin út í Amsterdam, er einnig á
sýningunni. Hún er sex síður og í
hana teiknaði Kristján mismunandi
doppur með kúlupenna.
Situr við skrifborðið og skissar
Í sýningarskrá segir um verkin:
„Hvert verk um sig hefur ákveðin
atriði og vísanir en sem heild reyna
þau á þanþol teikningar í nútím
anum. Verk Kristjáns, líkt og allar
góðar teikningar, framkalla athygli
á því hvernig við tengjumst efnis
heiminum og tóminu í heiminum.“
Stór verk eru á sýningunni þar
sem umgjörðin kostar nokkra
smíðavinnu. Kristján segist ekki
vinna þá vinnu sjálfur. „Ég sit við
skrif borðið og skissa á A4blöð.
Ég er hættur að vinna fýsískt, var
f ljótur að koma mér út úr því. Þegar
þarf að saga og smíða þá sjá aðrir
um það.“
Kristján, fæddur árið 1941, er
einn af þekktustu myndlistar
Verk sem reyna á þanþol teikningar í nútímanum
Kristján Guðmundsson sýnir abstrakt verk í i8 galleríi. Bók eftir hann er einnig á sýningunni. Hann
vinnur einungis þegar hann langar til. Hann segist hafa fengið gnægð af skemmtilegum tækifærum.
„Mér finnst allir tímar góðir og hef komið víða við,“ segir Kristján. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
mönnum þjóðarinnar, var í SÚM
hópnum margfræga og hefur sýnt
víða um heim. Hann hefur hlotið
fjölda viðurkenninga fyrir list sína.
Spurður hvaða tími hafi verið hans
besti í myndlistinni segir hann:
„Það er erfitt að segja. Mér finnst
allir tímar góðir og hef komið víða
við. Ég hef verið heppinn, er búinn
að sýna mikið og hef fengið gnægð
af skemmtilegum tækifærum. Ég
hef ekki yfir neinu að kvarta.“
Gott að hafa gulrót
Finnst honum hann hafa orðið betri
listamaður með aldrinum? „Nei,
aðeins verri, það stafar aðallega af
leti. Og svo er aðeins minni eftir
spurn. Það var mest að gera hjá mér
þegar ég var milli fertugs og fimm
tugs. Fyrir 30 árum hélt ég nokkrar
einkasýningar á ári en nú er þetta
mun rólegra. Reyndar átti ég að vera
með sýningu úti í Berlín akkúrat
núna, en henni var frestað um ár.“
Hann segist einungis vinna þegar
sig langi til „Það er mjög gott fyrir
mig að hafa gulrót, ef ég hefði ekki
gulrót myndi ég aldrei gera neitt.
Þegar ég er beðinn um að sýna og er
búinn að segja já takk, þá verð ég að
standa við loforðið. Það ýtir mér út
í vinnuna.“
Sýningin Mestmegnis teikningar
stendur til 20. júní. i8 er opið mið
vikudaga til föstudaga frá 12 til 17
og laugardaga frá 13 til 17.
Sumarið er tíminn, Bílabúð Benna gefur þér tækifæri til að
kynnast Íslandi í sumar á fjórhjóladrifnum Tivoli jeppling
sem lætur ekkert stoppa sig. Hann fæst nú á ævintýrlega
góðum kjörum.
+ Ríkulegur staðalbúnaður
+ Góð yfirsýn yfir umhverfið
+ Frábærir aksturseiginleikar
+ Fjórhjóladrif með læsingu
+ Gott aðgengi
+ 1,5 tonna dráttargeta
Verð: 3.990.000 kr. sjálfskiptur
B
irt m
eð fyrirvara um
verð- og m
yndabrengl.
Fimm ára
ábyrgð
GENGIÐ
FRYSTUM
ÓBRE
YTT V
ERÐ
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2020
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Bílaríki, Akureyri
Glerárgötu 36
Sími: 461 3636benni.is
1 6 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R40 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING