Fréttablaðið - 19.05.2020, Síða 1

Fréttablaðið - 19.05.2020, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 1 4 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 1 9 . M A Í 2 0 2 0 Nýr T-Cross Brúar bilið á milli jeppa og fólksbíls Tilboðsverð frá 3.190.000 kr.HEKLA · Laugavegi 170 · Sími 590 5000 · Volkswagen.is VIÐSKIPTI Árangur Íslands í bar- áttunni við COVID-19 hefur vakið mikla athygli hjá erlendum fyrir- tækjum, segja Hlynur Guðjónsson, viðskiptafulltrúi á aðalræðisskrif- stofu Íslands í New York, og Einar Hansen Tómasson, verkefnastjóri Film in Iceland, sem fjárfestinga- svið Íslandsstofu rekur. Á miðvikudaginn í síðustu viku sendi Film In Iceland tölvupóst á 8.000 kvikmyndaframleiðendur og erlenda blaðamenn til að kynna árangur Íslands í baráttunni við COVID-19. „Það var aðallega bara fögnuður yfir því að það skuli vera hægt að koma hingað til landsins og taka upp,“ segir Einar spurður um viðbrögð við tölvupóstinum. Innan við sólarhring eftir að pósturinn var sendur út höfðu 44 prósent viðtak- enda opnað hlekk í póstinum sem vísaði á frétt FilminIceland.com. Einar gat ekki tjáð sig um hverjir hefðu sýnt Íslandi áhuga en stað- festi að það væru fyrirhuguð verk- efni á Íslandi í sumar. Ted Sarandos, yfirmaður hjá efnisveitunni Net- f lix, hefur verið iðinn við að tala vel um möguleika landsins í stórum erlendum miðlum. Að sögn Einars kviknaði mikill áhugi á Íslandi eftir viðtal við Sarandos á vef Deadline. „Fréttirnar um Ísland, er varða viðbrögðin við COVID -19 og hvernig ríkið hefur brugðist við, hafa fengið mjög mikil viðbrögð hérna. Fólk er að fylgjast með,“ segir Hlynur. Ameríska-íslenska viðskipta- ráðið í Bandaríkjunum hélt nýverið fjarfund þar sem Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fór yfir stöðuna á Íslandi. „Það voru 98 pró- sent þeirra fyrirtækja sem skráðu sig á fundinn frá Bandaríkjunum og það voru tæplega 80 fyrirtæki sem komu inn á þennan fund. Þannig að það er mikill áhugi á að heyra hvernig við erum að gera þetta.“ Hlynur segir Íslandi hafa tekist gríðarlega vel að halda f lutninga- leiðum milli Íslands og Bandaríkj- anna opnum síðastliðna mánuði. Ef fyrsti ársfjórðungur 2019 er borinn saman við fyrsta ársfjórðung 2020 er ekki nema 1,5 prósenta minnkun í tonnum á útf luttum þorski til Bandaríkjanna. „Það er ekki mikil minnkun í þessu ástandi og við erum að sjá 10 prósenta aukningu í virði fyrir fiskinn út af stöðunni á krónunni. Svo erum við að horfa upp á 65 pró- senta aukningu á laxi. Hann fer úr 336 tonnum 2019 í 553 tonn 2020 á fyrstu þremur mánuðum ársins og virðið eykst um 75 prósent. En svo eru aðrar vörur eins og ýsa og ufsi, sérstaklega ýsan, sem fer marktækt niður um 16 prósent,“ segir Hlynur en sjávarafurðir eru um 60 prósent af útf lutningi Íslands til Banda- ríkjanna. „Fyrstu þrír mánuðirnir hafa allavega ekki verið jafn svartir og maður hefði ætlað hvað þennan markað varðar. „Þrátt fyrir að veit- ingaiðnaðurinn, veitingastaðir og mötuneyti hafi horfið af markaðn- um næstum því. Þá virðist vera að smávöruverslun með matvöru hafi aukist mjög mikið.“ – mhj Mikill áhugi á árangri Íslands Film in Iceland sendi 8.000 kvikmyndaframleið- endum og erlendum blaðamönnum tölvupóst þar sem árangur Íslands í baráttunni við COVID-19 var kynntur. Áhugi erlendra fyrirtækja er mikill. Einar Hansen Tómasson, verk- efnastjóri hjá Film in Iceland. Stöðugur straumur var af gestum í Vesturbæjarlaug frá miðnæturopnun til lokunar í gærkvöld. Starfsmenn þurftu nokkrum sinnum að minna á fjöldatakmarkanir og biðja fólk að bíða fyrir utan á meðan aðrir nutu sín í lauginni. Fastagestir voru að sögn starfsmanns í skýjunum yfir að komast aftur í sund. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK SLYS Lögreglunni á Austurlandi barst tilkynning á öðrum tímanum í gær um að skipverja af fiskiskipi væri saknað. Tilkynningin kom eftir að skipið sem hann var á kom til hafnar í Vopnafirði. „Þetta upp- götvaðist þegar menn komu í land,“ segir Jón Sigurðsson, formaður björgunarsveitarinnar Vopna. Björgunarskip Vopna sigldi út auk þess sem fjörur voru gengnar. Tóku bæði björgunarsveitarmenn og lögreglumenn þátt í leitinni. Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug austur og lenti á Vopnafirði um klukkan 19. Með henni voru fimm kafarar Landhelgisgæslunnar. Jón, segir að alls hefðu 30 manns leitað í gærkvöld og að leitað yrði til myrkurs. Liðsauki myndi síðan berast af Norðurlandi og Austur- landi í dag. „Við erum að leita í Vopnafirð- inum öllum,“ segir Jón. – khg Leituðu að skipverja í Vopnafirði

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.