Fréttablaðið - 19.05.2020, Síða 6

Fréttablaðið - 19.05.2020, Síða 6
DÓM S M ÁL Lögmaður Jóhanns Helgasonar í Los Angeles, Mic- hael Machat, segir tónlistarrisana Warner og Universal beita Jóhann yfirgengilegu af li í viðleitni til að fæla Jóhann og aðra rétthafa frá málsóknum gegn fyrirtækjunum. Fréttablaðið greindi frá því þann 6. maí síðastliðinn að lögmenn Warner og Universal krefðust þess að félag Jóhanns, Johannsongs, greiddi jafnvirði 48 milljóna króna vegna lögmannsstarfa. Var það gert í kjölfar þess að dómari í Los Angeles vísaði frá lagastuldarmáli Jóhanns á hendur fyrirtækjunum og höfundum lagsins You Raise Me Up. Lögmaður Jóhanns segir í and- mælum til dómsins að lögmenn Warner og Universal hafi ekki á fyrri stigum gefið til kynna að lögð yrði fram krafa vegna málskostn- aðar eða gefið upp nokkra ástæðu fyrir því að slíkt yrði gert. Rökin fyrir kröfunni séu mótsagnakennd og krafan sé svívirðilega há. Hann krefjist þess að dómarinn hafni henni eða þá að upphæðin verði um tífalt lægri en farið sé fram á. Þá segir Michael Machat mál Jóhanns vera, þvert á það sem lög- menn Warner og Universal halda fram, rekið í góðri trú í hreinum tilgangi, ekki af illvilja og vera mál- efnalegt. Jóhann hafi fyrirfram fengið staðfestingu tveggja tón- listarfræðinga, lögmanna og mála- færslumanna á því að málið væri gott og gilt. „Og það sem meira er, verði lög- mannskostnaðurinn samþykktur myndi það skapa hrollvekjandi for- dæmi og fæla alla tónlistarmenn, tónskáld, rithöfunda og listamenn frá því að höfða mál vegna hræðslu um verið sé að leggja aleiguna að veði í viðureign við milljarða dollara félög,“ segir Machat í and- mælum sínum þar sem hann líkir tónlistarsamsteypunum við risa- vaxin skrímsli. „Þeir skammast sín ekki fyrir að biðja dóminn um að kenna hinum ástsæla listamanni Jóhanni Helga- syni áhrifamikla lexíu fyrir að dirf- ast að beita sér fyrir því sem hann og samlandar hans á Íslandi hafa allir trúað, og horfa í leiðinni fram hjá þeim ótrúlega fælingarmætti sem slík ákvörðun yrði fyrir alla tónlistarmenn sem kynnu að vilja láta reyna á rétt sinn varðandi stuld á höfundarrétti þeirra,“ ítrekar lög- maðurinn. Machat grípur í greinargerðinni niður í sundurliðaða kröfu lög- manna Universal og Warner. Nefnir hann meðal annars dæmi þar sem lögmennirnir þrír kasta á milli sín uppkasti að þrettán lína bréfi til dómsins og rukka fyrir það samtals 2.668 dollara, jafnvirði 388 þúsunda króna – sem eigi að vera fyrir fimm klukkustunda vinnu. „Miðað við alla þá reynslu sem þeir búa yfir mætti ætla að það hefði mátt gera þetta skjal á innan við tíu mínút- um,“ segir hann. Eins og áður hefur komið fram í Fréttablaðinu hyggst Jóhann leita til áfrýjunardómstóls vegna frávís- unar málsins og undirbýr lögmaður hans nú áfrýjunina. gar@frettabladid.is Þeir skammast sín ekki fyrir að biðja dóminn um að kenna hinum ástsæla listamanni Jóhanni Helgasyni áhrifamikla lexíu fyrir að dirfast að beita sér fyrir því sem hann og samlandar hans á Íslandi hafa allir trúað. Michael Machat, lögmaður Jóhanns Helgasonar í Los Angeles Lögmaður segir kröfu á Jóhann svívirðilega Samþykki dómari kröfu um að Jóhann Helgason greiði 48 milljóna króna lög- mannskostnað Warner og Universal hefði það ótrúlegan fælingarmátt gagn- vart öllu því listafólki sem kynni að vilja leita réttar síns, segir lögmaður hans. Umhverfisvænn bambus- klósettpappír OFUR MJÚKURÓBLEIKTURÞÉTTUR Í SÉR ÚR BAMBUSSJÁLFBÆR FÆST NÚ Á ÍSLAN DI! Samkvæmt 4. gr. laga um framboð og kjör forseta Íslands, nr. 36/1945, skal skila fram- boðum til forsetakjörs sem fram á að fara 27. júní 2020 í hendur dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en kl. 24.00 föstudaginn 22. maí 2020. Framboði skal fylgja samþykki for- setaefnis, nægileg tala meðmælenda, sbr. auglýsingu forsætisráðuneytisins frá 20. mars 2020, svo og vottorð yfirkjörstjórna um að meðmælendur séu kosningarbærir. Dómsmálaráðuneytinu 19. maí 2020 Framboð til forsetakjörs Jóhann Helgason er í góðri trú, segir lögmaður hans. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON S U Ð U R L A N D Vegagerðinni og sveit ar félag inu Árborg hef ur reynst erfitt að semja um nýtt veg- stæði Suðurlandsvegar, sitt hvorum megin við fyrirhugaða Ölfusárbrú. En samkvæmt samgönguáætlun á að reisa hana milli 2024 og 2028. Hafa Gísli H. Halldórsson bæjar- stjóri og Helgi S. Haraldsson, for- seti bæjarstjórnar, fundað með Vegagerðinni vegna þessa, eins og fram kemur í svari við fyrirspurn minnihluta Sjálfstæðisf lokks í Árborg. „Lögmenn Suðurlandi hafa haft samningamálin á sinni könnu og bæjarstjóri hefur falið þeim að árétta við Vegagerðina nauðsyn þess að samningum verði lokið,“ segir í svarinu. Er nú loks komin hreyfing á málin. „Samkvæmt samskiptum við lögmann Vegagerðarinnar er von á nýju tilboði vegna landsins í dag eða á morgun, eftir ítrekaðar fyrir- spurnir. Síðasta erindi sem kom frá Vegagerðinni vegna málsins var í apríl 2017 og var það tilboð óásætt- anlegt.“ – khg Erfiðir samningar Árborgar og Vegagerðarinnar Loks er komin hreyfing á samninga um vegstæði. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR ÍSAFJÖRÐUR Ekkert tilboð barst frá íslenskum fyrirtækjum í útboði á byggingu knatthúss á Ísafirði og er búið að leggja fyrir bæjarstjórn til- boð frá norska fyrirtækinu Hugaas Entreprenör. Í tilboðinu er gengið út frá því að verkinu yrði lokið fyrir árslok og að hafist yrði handa í haust. Birgir Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, óskaði á bæjar- ráðsfundi í gær eftir heimild til að vinna verkið áfram með norska fyrirtækinu í von um að það verði tilbúið fyrir árslok með heimild til að ganga til samninga við norska fyrirtækið. Bæjarráð Ísafjarðar- bæjar óskaði eftir því að unnin yrði kostnaðar- og tímaáætlun sem verði tekin fyrir á næsta fundi. Í samtali við Fréttablaðið segir Birgir það óvænt að ekkert tilboð hafi komið frá íslensku fyrirtæki. „Þegar við fórum í útboð í vetur kom ekkert tilboð inn til okkar. Þá fórum við að skoða hvaða mögu- leikar stæðu til boða. Við fórum að af la okkur upplýsinga en á sama tíma gættum við þess að vinna innan kostnaðaráætlunar sem við lögðum upp með,“ segir Birgir. Aðspurður segir hann tilboðið heillandi en Norðmennirnir hafa boðið afslátt ef tilboðinu verður tekið fyrir 1. júní. „Það sem þeir hafa lagt fram lítur vel út. Þeir voru áhugasamir þegar við buðum þetta út í fyrstu en sáu ekki fram á að geta unnið í undir- stöðunum. Þá yrði þessu skipt í tvo áfanga, grunnvinnan við að setja sökklana yrði búin áður en þeir kæmu að setja upp húsið.“ Birgir tekur undir að þetta yrðu stakkaskipti fyrir íþróttir á Ísafirði. „Eftirspurnin eftir knatthúsi er gríðarleg og þetta yrði algjör bylting fyrir okkur. Það er engin leið fyrir okkur að stunda knattspyrnu utan- húss að vetri til og þetta myndi stór- bæta aðstöðu okkar íþróttafólks,“ segir Birgir. – kpt Tilboð frá Noregi í knatthús Ísafjarðarbæjar þykir heillandi Ísfirðingar vonast til að reisa knatt- hús fyrir árslok. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 1 9 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.