Fréttablaðið - 19.05.2020, Page 22

Fréttablaðið - 19.05.2020, Page 22
Aðalstarfsemi Bílasmiðsins er verslun og þjónusta með vörur tengdar atvinnubif­ reiðum og tækjum ásamt iðnvör­ um fyrir alls kyns smíði til lands og sjávar. Afar fjölbreytt vöruúrval er að finna í versluninni og þar sem aðalstarfsemi þess fer fram. „Fyrirtækið leggur mikinn metnað og áherslu á hágæðavöru og að veita fyrirtaks þjónustu og ráðgjöf. Eitt af meginmarkmiðum okkar er að geta boðið vörur sem ekki fást víða annars staðar, á sanngjörnu verði, sem er oft lægra en á sömu eða sambærilegri vöru erlendis,“ segir Páll Þór Leifsson, sölustjóri hjá Bílasmiðnum. „Við leggjum mikla áherslu á að versla við evrópska birgja og framleiðslufyrirtæki til að tryggja góð og hagstæð kjör til handa viðskiptavinum. Þá hefur Bílasmiðurinn söluumboð fyrir allmörg heimsþekkt vörumerki í greininni. Þar á meðal umboð fyrir RECARO bílstóla.“ RECARO bílstólar fyrir öryggið RECARO er einn stærsti fram­ leiðandi í heimi á stólum fyrir farartæki. Fyrirtækið framleiðir allt frá keppnisstólum upp í sér­ útbúin sæti fyrir atvinnubílstjóra. Það framleiðir einnig barnabíl­ stóla sem hafa verið afar vinsælir og hlotið fjölda verðlauna fyrir hönnun og öryggi. „Við höfum selt Recaro barna­ stóla í yfir 25 ár eða allt frá því að þeir komu fyrst á markað. Þeir hafa notið mikilla vinsælda enda gæðavara á góðu verði,“ segir Páll. Recaro er með barnabílstóla og kerrur fyrir 0­36 kg í nokkrum útgáfum og litum. „Nú erum við stolt af að kynna tvær nýjar gerðir af Recaro bíl­ stólum: Salia er 360° stóll fyrir 0­18 kg, áður Zero1 sem margir þekkja, og svo Mako Elite stóll fyrir 15­36 kg. Báðir stólarnir eru með ISOFIX festingum og samrýmast I­size UN 129 reglugerð sem er nokkuð harð­ ari reglugerð en eldri ECE44/4. Við vonumst til að þessar nýju gerðir munu falla íslenskum foreldrum jafn vel í geð og hinar sem fyrir eru,“ segir Páll. „Allar gerðir bílstólanna eru til sýnis í verslun okkar að Bíldshöfða 16, sími 567 2330. Þar er opið alla virka daga frá kl. 8.00-18.00. Við minnum jafnframt á Facebook- síðu okkar Recaro Ísland og heimasíðu framleiðanda Recaro- Kids.com“ Gæðavara á góðu verði Bílasmiðurinn hf. er 40 ára. Fyrirtækið er í fjölskyldueign og samanstendur af verslun með íhluti fyrir farartæki og vagna og verkstæði sem sérhæfir sig í ísetningum og viðhaldi á miðstöðvum. Páll Þór Leifsson sölustjóri hjá Bílasmiðnum hefur selt Recaro barnastóla í yfir 25 ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Salia er nýr 360° bílstóll fyrir 0-18 kg. Fyrir aftan er Mako Elite, nýr stóll fyrir 15-36 kg. Við höfum selt Recaro barnastóla í yfir 25 ár. Þeir hafa notið mikilla vinsælda enda gæðavara á góðu verði. Við erum æsispennt fyrir sumrinu og því að fá líf í húsið á ný. Krakkana þyrstir í að koma og við að fá þau,“ segir Guðrún Baldvinsdóttir, verkefna­ stjóri hjá Borgarbókasafninu. Hún er stödd í menningarhúsinu Gerðubergi í Efra­Breiðholti þar sem verður hörkufjör í sumar og ókeypis smiðjur fyrir ungmenni á aldrinum 12 til 16 ára í upplifunar­ rýminu OKinu. „OKið er nýtt upplifunarrými þar sem ungmenni geta lært, skapað, fiktað, átt í samtali eða einfaldlega hangið og verið í ein­ rúmi. Rýmið er ætlað ungmennum og hafa þau tekið virkan þátt í þróun og framkvæmd verkefnis­ ins,“ upplýsir Guðrún um OKið sem er styrkt af Barnamenningar­ sjóði. Ungmenni í Breiðholti tóku þátt í rýnihópavinnu og voru þau spurð hvað þau vildu gera sér til dundurs og hvernig þau vildu hafa upplifunarrýmið. Meðal þess sem unglingarnir vildu sjá í OKinu var svið, hellar, sjónvarp, krotveggur, iPad­spjaldtölvur og bækur, sem þó þarf ekkert endilega að lesa. „Við lítum á OKið sem tilraun til að sjá hvað menningarstofnanir eins og okkar geta boðið ungl­ ingum upp á. Bókasöfn eru ekki lengur staðir sem geyma eingöngu bækur, heldur staður fyrir fólk á öllum aldri og við erum að reyna að brjóta upp þetta hefðbundna hlutverk sem bókasafnið hefur,“ segir Guðrún. „Einmitt þess vegna tengjast smiðjurnar bókum lítið og er fyrsta sumarsmiðjan borðspila­ gerð sem tengist hugmynda­ fræði sem við vinnum eftir í gerð rýmisins, að búa til leik út frá því sem við gerum dagsdaglega. Embla Vigfúsdóttir leikjahönnuður og einn af hönnuðum OKsins er umsjónarmaður borðspilasmiðj­ unnar. Markmiðið með smiðjunni er að ungmennin búi til sína eigin leiki inni og úti.“ Sumarið tími nýrra upplifana OKið var formlega opnað í janúar. Í samstarfi við skólana var unnið með þema byggt á stafrænu skáldsögunni Norður eftir danska höfundinn Camillu Hübbe, um norræna goðafræði og samband manns og náttúru. „Starfið var rétt að komast í gang þegar kórónuveiran blossaði upp og við þurftum að loka safninu en við ætlum að vinna það upp í sumar og bjóða upp á æðislegar sumarsmiðjur. Sumarið kemur til með að verða öðruvísi en venjuleg sumur því landsmenn fara minna til útlanda og unglingarnir fá kannski ekki allir vinnu. Þá er fátt betra en að prófa nýjar upplifanir,“ segir Guðrún kát. Unglingar í Breiðholti áttu sjálfir hugmyndir að öllum smiðjunum sem eru vitaskuld opnar ung­ mennum af öllu landinu. „Efni smiðjanna er fjölbreytt og þær verða unnar í samvinnu við listafólk og aðra samstarfsaðila safnsins. Þar má nefna raftón­ list, kynlíf og kynheilbrigði, spuna, gamlar flíkur fá nýtt líf og hipphopp­dans. Meðal leiðbein­ enda eru Indíana Rós Ægisdóttir kynfræðingur, Dansskóli Brynju Péturs, fatahönnuðurinn Tanja Huld Levý og spunaleikararnir Steiney Skúladóttir og Pálmi Freyr Hauksson,“ upplýsir Guðrún. Smiðjurnar verða ýmist á morgnana, frá klukkan 10 til 12, eða frá klukkan 13 til 15. Fyrsta smiðjan verður vikuna 15. til 19. júní en vikuna á undan, 8. til 12. júní, verður Borgarbókasafnið með smiðjur fyrir börn á aldrinum 9 til 12 ára í öllum söfnum, þar á meðan ritsmiðjur, rapptextagerð með Kött Grá Pje, raftónlist og vísindasmiðjur með Sævari Helga. „Áhuginn er mikill og aðeins örfá pláss eftir. Þátttaka er ókeypis en þörf er á skráningu þar sem pláss er takmarkað. Því þarf að bregðast f ljótt við og fyrstir koma, fyrstir fá. Um nýliðna helgi varð strax mikið um skráningar en þótt fullt sé í sumarsmiðjurnar viljum við samt að fólk hafi samband við okkur því við viljum endilega sjá áhugann. Þá getum við mögulega bætt við fleiri smiðjum þegar líður á sumarið,“ segir Guðrún. Skráning í sumarsmiðjurnar fer fram á heimasíðu Borgarbóka­ safnsins. Þar má líka sjá allar sumarsmiðjur í boði Borgarbóka­ safnsins: borgarbokasafn. is/sum­ arsmidjur­borgarbokasafnsins Hipphopp, raftónlist og kynfræðsla Það verður líf og fjör í nýju upplifunarrými unglinga, OKinu, í Gerðubergi í sumar þegar Borgarbókasafn- ið kemur til móts við óskir ungmenna með ókeypis sumarsmiðjum sem mæta áhugamálum þeirra. Guðrún Bald- vinsdóttir verkefnastjóri og Embla Vigfús- dóttir leikja- hönnuður og einn af hönn- uðum OKsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Áhuginn er mikill. Því þarf að bregð- ast fljótt við og fyrstir koma, fyrstir fá. 4 KYNNINGARBLAÐ 1 9 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U RSUMAR OG BÖRN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.