Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2002, Síða 4

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2002, Síða 4
Ritstjórapistill VOR í Vl€>EY undirstaða slíks sáttmála verði Viðmiðunarreglur Sameinuðu þjóðanna sem samþykktar voru á allsherjarþinginu árið 1993. Þótt nokkuð skiptar skoðanir hafí verið á nauðsyn slíks sáttmála virðast flestir hafa komist að þeirri niðurstöðu að brýna nauðsyn beri til að Sameinuðu þjóðirnar samþykki sérstakan sáttmála til þess að efla stöðu fatlaðra í nútíma samfélagi, skjóta styrkari stoðum undir mannréttindi þeirra og síðast en ekki síst til þess að komið verði á öflugu eftirlitskerfi með mann- réttindum fatlaðra. Hefur nú þetta ferli þegar hafist. Fulltrúar Mexíkó hjá Sameinuðu þjóðunum hafa lagt fram tillögu að slíkum sáttmála og verða nú í sumar haldnar undirbúnings- ráðstefnur um þetta mál í Bandaríkjunum og víðar. Öryrkjabandalag íslands hefur um árabil tekið nokkum þátt í alþjóðlegu samstarfi. Bandalagið hefur átt aðild að samtökunum Rehabilitation International um áratugaskeið, norrænum sam- tökum um endurhæfingu og norrænni samstarfsnefnd banda- laga fatlaðra á Norðurlöndum. Þá hafa fúlltrúar bandalagsins sótt fundi á vegum nefnda Norðurlandaráðs og fyrir skömmu gekk Öryrkjabanda- lagið í Alþjóðasamband fatlaðra, Disabled People’s Intemational. Evrópusamtök fatlaðra og DPI gera kröfur um að fulltrúar samtaka fatlaðra séu fatlaðir enda verður að telja eðlilegt að þeir standi sjálfir fyrir máli sínu. Meginbreytingar í hugsunarhætti almennings gagnvart fötluðum hafa fyrst og fremst orðið vegna baráttu þeirra sjálfra og fólks sem hefur kynnst fötluðum. í þessu tölublaði er birt grein um tvenns konar greiningu á fötlun. Hið félagslega líkan gerir ráð fyrir að mesta hindrun fatlaðs fólks sé fólgin í afstöðu samfélagsins og aðstöðu fatlaðra. Til sanns vegar má færa að í samfélögum allra tíma hefur engum farnast vel sem orðið hefur að synda gegn straum- þunga almenningsálitsins. Fatlaðir hafa margsinnis sýnt að þeir eru færir um að vinna margvísleg afrek fái þeir að rækta hæfileika sína á sama hátt og aðrir. Þannig eru t.d. dæmi um þroskaheftan mann sem þykir einn besti stjórnandi sinfóníu- hljómsveita í Asíu og blint og hreyfíhamlað fólk skemmtir sér við að sigla um heimshöfin eitt síns liðs. Tæknin gerir sumum einstaklingum kleift að færast sitthvað í fang en aðrir þurfa fyrst og fremst á breyttum viðhorfum að halda. Ritstjóri leyfir sér að taka undir slagorðið góða sem sett var fram fyrir nokkrum árum og hljóðar svo: „Allt er fötluðum fært”. Arnþór Helgason www.obi.is

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.