Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2002, Page 5
Utivist
vlrjjrjLJÐkóJíiiJ/J í 3U//j£jr
að eru frískir krakkar
sem útskrifast úr tíunda
bekk Öskjuhlíðarskóla
á þessu vori. Þau hlakka til
sumarsins og eru farin að huga
að sumarstörfum. Öll fara þau
að vinna hluta af sumrinu og
munu þau vinna í unglinga-
vinnu á vegum Vinnuskóla
Reykjavíkur og Regnbogans
sem hefst 10. júní.
Þau eru níu talsins og fara a.m.k
átta þeirra í unglingavinnuna á
Miklatúni. Nokkrir í bekknum
fara einnig í sumardvöl á vegum
Foreldra- og styrktarfélags
Oskjuhlíðarskóla að Laugalandi.
Þau stefna líka öll á framhalds-
skólanám og varð Fjölbraut í
Breiðholti fyrir valinu hjá þeim
flestum.
Guðbjartur Amar Guðbjartsson
ætlar að vinna hjá Vinnu-
skólanum og fara í sveit. Hann
flytur nú í sumar í Hveragerði og
ætlar að stunda nám í Fjölbrauta-
skóla Suðurlands næsta vetur.
Gísli Bjömsson ætlar að vinna á
Miklatúni og fara á Laugaland.
Þóra Kristín Bárðardóttir mun
eftir sumarvinnuna fara í Reykja-
dal og svo fer hún í útilegu með
foreldrum sínum. Hann Stefán
Erlendsson fer eftir Vinnu-
skólann á Laugaland og svo
langar hann að fara í ferðalag í
sumar. Svavar Halldórsson ætlar
eftir að hann hefur lokið sumar-
vinnu og sumardvölinni til
Sigluijarðar að heimsækja afa
sinn og ömmu. Sigmundur Helgi
Valdemarsson fer til Danmerkur
að lokinni vinnu. Aðalsteinn
Bjarni Bjömsson ætlar að gera
eitthvað skemmtilegt í sumar
eins og að fara með vinum sínum
niður í bæ. Aðalsteinn hefur
mikinn veiðiáhuga og sagði hann
að pabbi hans hefði kennt sér að
veiða. Hann vonast til að geta
farið oft að veiða í sumar.
Aðalsteinn Bjami fer í Borgar-
holtsskóla eins og eldri bróðir
hans. Ólafía Ingibjörg Sverris-
dóttir ætlar í sumardvölina á
Laugalandi og fer líklega að
vinna í Vinnuskólanum.
K.Þ.
Stefán, Aðalsteinn, Bjarni, Þóra, Gísli, Ólafía.
Guðbjartur, Svavflr og Sigmundur.
ÖSKJUHLÍÐARSKÓU
,
tímarit öryrkjabandalagsins