Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2002, Qupperneq 8

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2002, Qupperneq 8
Utivist - Sólheimar Gísli Halldórsson er aðstoðarmaður Valdimars forstöðumanns umhverfismála Sólin skein skært þegar ég heimsótti Sólheima í Grímsnesi á vordögum. Halldór Sævar Guðbergsson, félagsmálafulltrúi, tók á móti mér og áttum við stutt spjall áður en hann sýndi mér staðinn. Halldór sagði stuttlega frá þeirri lífsspeki sem farið er eftir á Sólheimum og í hverju dagleg störf felast aðallega. „Við vinnum hér saman sem ein heild og er leiklistarstarfið gott dæmi um það. Af hundrað manns sem búa á staðnum tóku 53 þátt í söngleiknum Hárinu“. Sesselja Hreindís Sigmunds- dóttir stofnaði Sólheima árið 1930 og var hún þá 28 ára gömul. Hún rak barnaheimili á Sólheimum fyrir börn sem bjuggu við erfiðar heimilisaðstæður en seinna bættust fötluð börn í hópinn. Sesselja bjó á Sólheimum til ársins 1974 og gekk á ýmsu á hennar ferli. Yfirvöld höfðu ekki trú á henni í fyrstu en Sesselju tókst að sanna fyrir þeim kenningar sínar um mannrækt. Greinilegt er að Sesselja hefur verið mikil hugsjónakona og brautryðjandi. Lesa má um sögu hennar í bókinni Mér leggst eitthvað til sem Jónína Michaelsdóttir ritaði. Reynt er að veita öllurn störf við hæfi og mikil rækt lögð við handverkið. Vinnan fer fram í mörgum húsum á svæðinu og á hvert hús sína sögu eða er nefnt í höfuðið á velgerðamanni. Fjöldi gróðurhúsa er á Sólheimum Þegar mig bar að garði voru vorverkin að heljast og undir- búningur fyrir ylræktina í algleymingi. Sjálfbært þorp Valdimar Reynisson er forstöðu- maður umhverfismála og bú- skapar. „Við stefnum að því að gera Sólheima að sjálfbæru þorpi, þ.e. að við séum sjálfum okkur næg og þurfum á lítilli utanað- komandi þjónustu að halda. Við erum komin mjög nálægt því en það er mikil vinna að koma þessu á laggirnar og verða allir að leggjast á eitt. Við ætlum fljótlega að halda námskeið fyrir alla starfsmenn og kenna íbúunum hvemig á að búa í sjálfbæm þorpi. Skipulagt skógræktarsvæði Sólheima er 178 hektarar og emm við búin að planta í 100 hektara. Beitilandið fyrir grasbítana er alltaf að minnka. Draumurinn er að fá hingað kýr og helja framleiðslu á mjólk og ostum. Það eru framleiddir ostar í Skaftholti en þeir fá ekki leyfi til að selja þá af svæðinu því að heilbrigðis- eftirlitið er mjög strangt“. Að raka gras og steina I dag eru Sólheimar lítið samfélag þar sem menn og dýr lifa saman í sátt og samlyndi. Valdimar Reynisson og Guðlaug Jónatansdóttir

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.