Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2002, Page 29

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2002, Page 29
Viðtal smitandi að ég fór að hlæja líka en dóttir mín var mjög alvarleg yfir þessu. Það var hún sem tók þetta nærri sér. Kennarinn sagði krökkunum að hætta að hlæja en ég bað hana um að gera það ekki. Mér fannst þetta líka fyndið. Ég er ekki við- kvæm fyrir svona uppákomum“. Gangstéttar eru ekki bílastæði Árið 1980 fluttu mæðgumar í lítið og snoturt hús í Þingholtunum. Er ekki erfitt að rata um Þingholtin? „Nei það er mikil- vægt að blindir læri á umhverfí sitt. Ég lærði fljótt á vissar götur og rata þangað sem ég þarf að fara eins og í bankann, búðina á horninu og ekki má gleyma dýralækninum á Skóla- vörðustígnum. Göturnar og gangstéttamar eru reyndar ekki nógu góðar. Það er mjög slæmt ef skilin á milli götu og gang- stéttar em óljós. Stundum er ég komin út á götu áður en ég veit af. Það kemur oft fyrir að ég geng á bílana sem er lagt upp á gangstéttar“. Þú lœtur þá ekki bara hvíta stafinn vaða í bílana? „Nei, nei, ég er ekki það upp- stökk“, segir hún og við hlæjum báðar. Ásrún var fyrir nokkmm árum í samtökum þar sem m.a. fulltrúar fatlaðra, reiðhjóla- manna og fólks með bamavagna áttu aðild. Þau skáru upp herör gegn bíleigendum sem lögðu bílum sínum ólöglega. Ef það kom fyrir að hún gekk á bíl þá skildi hún eftir límmiða á framrúðunni bílstjóramegin sem á stóð Gangstéttar eru ekki Þær Úa og Afródíta gera eiganda sínuni viðvart þegar gesti ber að garði bílastæði. „Ég fékk ósjaldan skammir yfir mig eftir að hafa límt á bílrúðurnar. Ökumenn urðu reiðir og var mér oft hótað „Ef ungur einstaklingur fatlast og þarf örorkubætur þá er það bein ávísun á fátækt ef hann er algerlega óvinnu- fær. Hann getur ekki lifað á bótum. Ég hefði ekki komist af nema af því að ég var heppin og fékk vinnu. Þetta eru sultarpeningar sem öryrkjar eru að fá. Þetta er alveg skammarlegt. Það virðist ekki vera mikill skilningur hjá stjórnvöldum á kjörum fatl- aðra“. Nú er stór hluti öryrkja konur og þær láta alltof lítið heyra í sér. kæru. Ég bað þá í guðanna bænum að gera það. Ég fékk heilmikið út úr þessu,“ segir Ásrún og hlær við. „Maður verður að reyna að hafa áhrif‘. Örorka er ávísun á fátækt Tal okkar Ásrúnar barst nú að málum öryrkja og stöðu þeirra í samfélaginu. Ásrúnu verður mikið niðri fyrir. „Ef ungur einstaklingur fatlast og þarf örorku- bætur þá er það bein ávísun á fátækt ef hann er algerlega óvinnufær. Hann getur ekki lifað á bótum. Ég hefði ekki komist af nema af því að ég var heppin og fékk vinnu. Þetta eru sultarpeningar sem öryrkjar eru að fá. Þetta er alveg skamm- arlegt. Það virðist ekki vera mikill skilningur hjá stjórnvöldum á kjörum fatlaðra“. Nú er stór hluti öryrkja konur og þær láta alltof lítið heyra í sér. Þær sem eru giftar missa mikinn hluta bóta sinna og eins og ein kona sagði eitt sinn: „Þær eru hreinlega þurrkaðar út sem einstaklingar“. Hinar sem búa einar og eiga böm berjast við fátæktina. Konur á örorkubótum þurfa að láta að sér kveða og snúa vörn í sókn. Þessi mál eru þó komin í réttan farveg. Fordómar hafa minnkað Ásrún er oft spurð hvernig hún fari að og hvort hún geti gert allt sem snýr að daglegu lífí. Að hennar sögn er þetta að lagast og eftir því sem blindir eru meira á ferðinni fær fólk aðra mynd af þeim. Ég spyr Ásrúnu hvort hún hafí orðið vör við fordóma og segir hún að þeir séu alltaf fyrir hendi en hafí mikið minnkað. „Ég get gert margt nema þá helst að mála veggi. En ég hef heyrt að einhverjir blindir hafí reynt það. Ég negli nagla og hengi upp myndir, elda, skúra og þvæ þvotta. En ég hef verið spurð hvort ég geti búið um rúmið mitt. Mér fínnst fólk vera tímarit öryrkjabandalagsins 29

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.