Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2002, Síða 43

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2002, Síða 43
Frá aðildarfélögum FELAG HEYRNARLAUSRA Farið á tvær menningarhátíðir Baráttufélög heyrnar- lausra hafa í gegnum árin verið dugleg að nota sumrin til þess að boða til ráðstefna, menningarhátíða og móta og er árið 2002 engin undantekning á því. í raun er svo mikið í boði árið 2002 að margir hverjir eiga í erfiðleikum með að ákveða hvert skuli halda og hvað skuli gera. Hér verður stiklað á stóru yfír það helsta sem í boði er en sérstaklega greint frá tveimur merkilegum hátíðum sem verða haldnar í sumar - Deaf Way II í Bandaríkjunum og Menningar- hátíð heyrnarlausra í Noregi. DeafWay II Upphaf Deaf Way ráðstefnunnar má rekja til þeirrar vakningar sem varð meðal heyrnarlausra í Bandaríkjunum og Norður-Evrópu um og upp úr áttunda áratug 20. aldarinnar. Heyrnarlausir urðu meðvitaðri en áður um rétt sinn, fóru að berjast fyrir því að móðurmál þeirra, táknmálið, væri viðurkennt og að til væri sér menning, menning heymarlausra, sem bæri að virða og gera sýnilegri. í anda þessarar hugsunar varð fyrsta Deaf Way ráðstefnan haldin árið 1989 af Gallaudet háskólanum í Washington DC í Bandaríkjunum. Ráðstefnan var í senn umræðugrundvöllur um þau ljölmörgu málefni sem lúta að heyrnarlausum og aðgengi þeirra að samfélaginu þar sem kennarar, félagsráðgjafar, málvísindamenn og sálfræðingar komu saman og ræddu málin. Ráðstefnan var þó meira en það, hún var hátíð, þar sem heyrnarlausir hittust og héldu upp á sameiginlega menningu, sameiginlega sögulega arfleið sem tengir þá saman á þann hátt sem heymarlausir einir skilja. I gegnum dans, sögur, leikhús og með því að deila reynslu sinni, með því að kynnast og sjá hvað væri í boði á sviði nýjustu tækni (hjálpartæki og annað) lærðu heyrnarlausir hver af öðmm og snéru til síns heima reynslunni ríkari. Ráðstefnan sem upphaflega var ætluð 500 manns en að lokum varð að 6000 manna ráðstefnu, hefur haft víðtæk áhrif og hennar er ennþá minnst í dag sem upphafs vitundarvakningar meðal marga heyrnarlausra um rétt sinn og stöðu innan hins heyrandi samfélags. Og nú er komið að framhaldinu því að í sumar, nánar tiltekið dagana 8. til 13. júlí verður Deaf Way ráðstefnan haldin í annað sinn í Washington DC. Búist er við fjölda manns og dagskrá ráðstefn- unnar er fjölbreytt, ætluð öllum hvort sem er heyrnarlausum, heyrnarskertum eða heyrandi sem hafa áhuga á málefnum og menningu heyrnarlausra. Norræn menningarhátíð heyrnarlausra í Á1 í Noregi Norræn menningarhátíð heym- arlausra er haldin fjórða hvert ár til skiptis á Norðurlöndunum og í ár er komið að Noregi. Menningar- hátíðin stendur í viku og á meðan á henni stendur koma heymar- lausir Norðurlandabúar saman, sækja fyrirlestra, taka þátt í vinnuhópum, horfa á leikrit og styrkja hin norrænu vináttubönd. Rétt eins og með Deaf Way ráðstefnuna, hefur menningarhátíð heymarlausra haft víðtæk áhrif á líf heyrnarlausra. Meðal annars varð hún til þess að þjálfun og menntun túlka hófst hérlendis í fyrsta sinn veturinn 1985-6 en hátíðin var haldin hérlendis í fyrsta sinn árið 1986. í lok menningarhátíðarinnar tekur Félag heymarlausra svo við formennsku Dövas Nordiska Rád (DNR) sem er sameiginlegt ráð félaga heyrnarlausra á Norður- löndunum. Félag heymarlausra á Islandi mun gegna formennsku í ráðinu næstu 4 árin eða þar til að Norræn menningarhátíð heyrnar- lausra verður haldin hér á landi árið 2006. Aðrir viðburðir Af öðmm viðburðum sem em í boði fyrir félagsmenn Félags heyrnarlausra nú í sumar er meðal annars Ungmennamót í Finnlandi, ætlað fólki á aldrinum 18-30 ára. Um 10 manns fara héðan á mótið sem haldið er í byrjun ágúst. Tilgangur þessa móts er sá sami og með norrænu menningarhátíðinni, að efla norræna samvinnu og sam- vitund. Vegna fámennis heyrnar- lausra á Islandi er það ennþá mikilvægara að halda góðu sambandi við hin Norðurlöndin, sækja þangað vináttu og stuðning. Einnig stendur heyrnarlausum unglingum til boða að fara á mót í Danmörku sem er sama eðlis og það í Finnlandi. Starfsemi Félags heyrnarlausra verður með sama sniði og undanfarin sumur. Það felst að mestu í að aðstoða félagsmenn þá sem sækja þessa viðburði sem og sjá um útleigu á sumarhúsi félagsins. Skrifstofa félagsins er þó lokuð allan júlímánuð. Anna Valdimarsdóttir tímarit öryrkjabandalagsins 43

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.