Fréttablaðið - 27.05.2020, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 27.05.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 2 0 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 2 7 . M A Í 2 0 2 0 „Við verðum búin fyrir haustið,“ segir Vala Garðarsdóttir sem stýrir fornleifauppgreftri aftan við stjórnarráðsbygginguna í Lækjargötu. Að sögn Völu hafa ýmsir munir frá átjándu og nítjándu öld þegar fundist, en þeir séu fæstir heillegir. „Við erum enn að klára tímabilið 1750 til 1900, en erum farin að sjá glitta í minjar sem eru eldri,“ segir hún. Á reitnum séu leifar marg- víslegra mannvirkja frá því hegningarhúsið, sem síðar síðar hýsti stjórnarráðið, var byggt á árunum 1765 til 1769. Ný skrifstofubygging stjórnarráðsins rís síðar á lóðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Mmm ... Góður á grillið! Besta uppskeran núna! Krónan mælir með! VIÐSKIPTI Míla, sem á og rekur helstu fjarskiptainnviði landsins, ætlar að draga úr fjárfestingum sínum í þéttbýli úti á landi og dreif- býli, vegna aukinna kvaða sem Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hyggst leggja á félagið. Jón Ríkharð Kristjánsson, framkvæmdastjóri Mílu, segir að niðurstöður eftirlits- stofnunarinnar séu í andstöðu við stefnu stjórnvalda um hagkvæma uppbyggingu fjarskiptainnviða. „Það verður kannski á bilinu 2-300 milljónir króna í ár. Áætlun ársins gerði ráð fyrir að Míla myndi leggja ljósleiðara til rúmlega 4 þús- und heimila á þéttbýlisstöðum úti á landi en hluti þeirra verður stöðv- aður vegna forsendubrestsins. Að auki erum við að draga okkur út úr áformuðum verkefnum í dreif býli,“ segir Jón Ríkharð, spurður um fjár- hagslegt umfang þeirrar uppbygg- ingar sem Míla mun hætta við vegna aukinna kvaða. Póst- og fjarskiptastofnun hyggst viðhalda fyrri kvöðum og leggja frekari kvaðir á starfsemi Mílu, samkvæmt drögum að nýrri mark- aðsgreiningu. Meðal annars verður sett kvöð um jafnaðarverð um land allt þegar kemur að ljósheimtaug- um og bitastraumsaðgangi. „Áhrif þessara breytinga eru verulegar. Míla hefur fjárfest fyrir milljarða í uppbyggingu ljósheim- tauga og bitastraums um allt land og þær fjárfestingar byggðu á fyrir- liggjandi reglum og fyrri yfirlýsing- um PFS um að ekki yrði lögð jafn- aðarverðskvöð á þessa þætti. Við sem stöndum í dýrum langtíma- fjárfestingum í innviðum verðum að geta treyst því að forsendum fjár- festinga sé ekki kollvarpað án mjög ríkra ástæðna,“ segir hann. Jón Ríkharð bendir á að fyrir- tæki sem beri jafnaðarverðskvöð geti í raun aðeins fjárfest af skyn- semi á svæðum þar sem uppbygg- ing er ódýr á hverja tengingu og þar með hagkvæm. Míla mun því þurfa að leggja alla áherslu á hag- kvæma uppbyggingu félagsins á höfuðborgarsvæðinu, til að verja markaðshlutdeild á mikilvægasta markaðssvæðinu þar sem félagið er þegar að hluta komið í minnihluta að sögn Jóns. – þfh / sjá Markaðinn Fjárfestingar Mílu í uppnámi Framkvæmdastjóri Mílu segir að félagið muni draga úr fjárfestingum í innviðum úti á landi vegna auk- inna kvaða af hálfu Póst- og fjarskiptastofnunar. Segir forsendum fjárfestinga hafa verið kollvarpað. VIÐSKIPTI Fjöldi þeirra sem starfa í ferðaþjónustu gæti dregist saman um allt að tólf þúsund á rúmu ári miðað við spá Íslandsbanka um fjölda ferðamanna og sögulega sterka fylgni hans við fjölda starf- andi í ferðaþjónustu. Þannig mun þeim sem starfa í ferðaþjónustu fækka úr 27 þúsundum í janúar 2020, sem eru síðustu opinberu töl- urnar, niður í rúmlega 15 þúsund í mars 2021. „Ferðaþjónustan er mannaflsfrek og það eru takmörkuð tækifæri til að ná fram stærðarhagkvæmni. Það leiðir til þess að nokkuð línuleg fylgni er milli fjölda ferðamanna og fjölda starfa í greininni. Fyrirtæki þurfa svo og svo marga starfsmenn til að taka á móti ákveðnum fjölda ferðamanna,“ segir Jón Bjarki Bents- son, aðalhagfræðingur Íslands- banka. – þfh / sjá Markaðinn Tólf þúsund störf tapist Þessi markaðsgrein- ing Póst- og fjar- skiptastofnunar er í and- stöðu við stefnu stjórnvalda og það við liggur við að hún sé pólitísk. Jón Ríkharð Kristjónsson, framkvæmdastjóri Mílu

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.