Fréttablaðið - 27.05.2020, Síða 4

Fréttablaðið - 27.05.2020, Síða 4
Í þessu ferli öllu höfum við þurft að vera auðmjúk fyrir því að hlutirnir gerast hratt. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra KIRKJAN Sigurður Kári Kristjáns son, lög maður séra Skírnis Garðars sonar, undir býr nú kröfu gerð að skaða- og miska bóta máli vegna þjónustu- loka Skírnis sem prests. Í sam tali við Frétta blaðið segir Sigurður að það sé til skoðunar að stefna Agnesi M. Sigurðar dóttur, biskupi Ís lands, per sónu lega. „Það er til skoðunar hvort það verði þjóð kirkjan eða hvort biskupi verði stefnt per sónu- lega eða hvort þeim verður stefnt „in solidum“,“ segir Sigurður, spurður að hverjum stefna Skírnis muni beinast. Skírni var vikið frá störfum sem héraðspresti í apríl, eftir að hafa rofið starfs- og siðareglur presta er hann greindi frá málefnum sóknar- barns í viðtali við Vísi þann 11. apríl síðastliðinn Skírnir krafðist þess fyrr í mán- uðinum að fá að snúa aftur til starfa ella myndi hann krefjast skaða- og miskabóta. Í svari biskups Ís lands til Skírnis, vitnar biskup í kröfu- bréf Skírnis og segir hann gangast „undan bragða laust við broti sínu“. „Ég iðrast þess að hafa brotið trúnað gagn vart kirkjunni og skjól- stæðingi mínum þarna um kvöldið, nú um daginn. Þetta var f ljót færni og gert í fram haldi af mein lausri fyrir spurn, ég las ekki yfir próf- örk fréttarinnar sem svo birtist og ég áttaði mig um seinan á að þetta væri al var legt mál,“ segir í kröfu- bréfi Skírnis til biskups. „Fyrr nefnt brot mitt er tengt þess- um kring um stæðum, og kannski f laut úr bikar mínum í sím talinu við blaða konuna, þetta var ekki fyrir fram á kveðið brot,“ skrifar hann enn fremur. Af þessu tilefni var ráðningarsambandi þjóðkirkjunnar við Skírni rift en hann mun njóta óskertra launa út skipunartímann sem mun vera til 1. desember næst- komandi. – mhj Séra Skírnir Garðarsson skoðar að stefna biskupi persónulega Gerir sláttinn auðveldari Cub Cadet sláttutraktorarnir eru afar vandaðir og vel útbúnir sláttutraktorar sem mæta þörfum og kröfum vandlátra garðeiganda og annarra sláttumanna. Cub Cadet sláttutraktorarnir eru öflugir og afkastamiklir og auðveldir í notkun. Vandaðir garðtraktorar ÞÓR FH Akureyri: Baldursnes 8 603 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is COVID-19 „Verkefnið er metið ger- legt, en líka þannig að það sé mjög margt sem þurfi að ganga upp. Við teljum að þetta geti gengið upp en erum mjög meðvituð um að óviss- an er mikil og margt getur farið úrskeiðis á leiðinni,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um skimun fyrir COVID-19 á Kef la- víkurflugvelli. Skýrsla verkefnisstjórnar sem skipuð var til að undirbúa fram- kvæmdina var kynnt í ríkisstjórn í gær. Tillagan sem lá til grundvallar var að opnað yrði fyrir sýnatöku ferðamanna við komuna í Keflavík frá 15. júní sem yrði þá valkostur við sóttkví. „Núna munum við bara hefja þessa vinnu. Við gerðum ráð fyrir því að það yrði nú kannski ekki mikil f lugumferð í Kef lavík 15. júní. En það er í rauninni enginn sem treystir sér til að spá hver hún á endanum verður,“ segir Katrín. Í skýrslunni kemur fram að sýkla- og veirufræðideild Landspítalans sé aðeins í stakk búin til að greina fimm hundruð sýni á dag. Með því að bæta tækjabúnað og tryggja f leira starfsfólk yrði markmið- inu um þúsund sýni á dag náð um miðjan júlí. Þá þurfi að taka minnst 107 sýni á dag til að kostnaður verði undir 50 þúsund króna takmarkinu. Miðað við 500 sýni á dag yrði kostnaður- inn hins vegar 23 þúsund krónur. „Við höfum ekki enn tekið ákvörðun um hvernig þessari gjald- töku verður háttað. Við höfum sagt að hugsanlega verði lagt af stað í blábyrjun án gjaldtöku, en við gerum ráð fyrir að til lengri tíma verði rukkað fyrir.“ Katrín segir að lokaákvörðun í málinu liggi ekki fyrir. Skila eigi hagrænni greiningu um næstu mánaðamót, sem muni skipta máli við endanlega ákvörðun. „Í þessu ferli öllu höfum við þurft að vera auðmjúk fyrir því að hlut- irnir gerast hratt og geta breyst hratt. Við sjáum að önnur ríki eru að opna fyrir ferðir. Þýskaland er að ígrunda að opna fyrir flug til Íslands svo dæmi sé tekið,“ segir Katrín. Meðal annarra þátta sem verk- efnisstjórnin bendir á er að huga þurfi að birgðastöðu sýnatöku- pinna, tryggja þurfi að frávísunar- heimildir gagnvart þeim sem ekki hlíta sóttvarnareglum séu skýrar og að upplýsingagjöf til ferðamanna sé tryggð. Það er mat verkefnisstjórnarinn- ar að hægt verði að skila niðurstöð- um úr sýnum á um fimm klukku- stundum, en aka þarf með sýnin frá f lugvellinum til Reykjavíkur. Sýni sem berist eftir klukkan 17 verði greind daginn eftir, nema mönnun verði aukin. sighvatur@frettabladid.is Telur skimun geta gengið upp Forsætisráðherra telur skimun fyrir COVID-19 við komuna til landsins geta gengið upp, en óvissan sé mikil. Skýrsla verkefnisstjórnar var kynnt í gær en lokaákvörðun um framkvæmdina liggur ekki fyrir. Að óbreyttu telur verkefnisstjórnin að hægt sé að greina fimm hundruð sýni á dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Áhætta fyrir Landspítalann Í minnisblaði frá Páli Matthías- syni, forstjóra Landspítalans, til heilbrigðisráðuneytisins, segir að faraldurinn hafi afhjúpað ýmsa veikleika heilbrigðiskerfisins. Á sama tíma hafi hins vegar birst styrkleikar. Greiningar á einkennalausum ferðamönnum séu að svo stöddu ekki trygging fyrir því að sjúk- dómurinn sé ekki til staðar. Komi til innlagna sjúklinga, innlendra eða erlendra, muni það hafa mikil áhrif á starfsemi spítalans. „Áhætta fyrir reglulega starfsemi Landspítala í sumar sérstaklega er því veruleg og mun spítalinn strax fara á hættu- stig með fyrsta sjúklingi sem þarfnast innlagnar, með tilheyr- andi röskun á starfseminni,“ segir í minnisblaðinu. DÓMSMÁL Kirkjuráð var í gær sýknað af kröfu Stórólfshvols- sóknar í Rangárvallasýslu. Frétta- blaðið greindi nýlega frá deilum um meintar vanefndir á greiðslum til byggingar kirkju á Hvolsvelli. Jón Magnússon, lögmaður sókn- arinnar, segir að ekki sé búið að ákveða hvort málinu verði áfrýjað til Landsréttar. Málið hefur farið milli úrskurðar- nefndar og áfrýjunarnefndar kirkj- unnar. Aðalpunktur kærunnar laut að því að nefndarmenn áfrýjunar- nefndar væru vanhæfir vegna fyrri aðkomu, en dómari féllst ekki á það. „Þessi vanhæfnismál hafa verið á mikilli ferð í íslenskum rétti,“ segir Jón og bendir á að nýlega hafi verið samþykkt að taka vanhæfismál tveggja Landsréttardómara fyrir Hæstarétt, vegna fyrri afskipta þeirra. – khg Sýknuð af kröfu um greiðslur REYKJAVÍK Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar hefur boðað til fundar með foreldrum nemenda í Fossvogsskóla á fimmtudag til að ræða stöðu mála. Skólanum var lokað að hluta í fyrra eftir að mygla fannst og við tóku miklar fram- kvæmdir. Minnst fimm nemendur hafa áfram fundið fyrir einkennum. Karl Óskar Þráinsson, formaður foreldrafélagsins, fagnar þessu. „Það er gott að fá loks fund eftir þögn frá því í nóvember. Við vænt- um þess að þetta sé fyrsta skrefið í samráðinu og það sé þétt fundaröð fram undan,“ segir Karl. – ab Funda með foreldrum barna í Fossvogsskóla Karl Óskar Þráinsson, formaður foreldrafélags Fossvogsskóla Skírnir Garðarsson 2 7 . M A Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.