Fréttablaðið - 27.05.2020, Síða 8

Fréttablaðið - 27.05.2020, Síða 8
B RE TL AND Ferðalög Dominics Cummings, ráðgjafa forsætisráð- herrans Boris Johnson, á tímum strangra COVID-19 takmarkana eru farin að hafa áhrif í ríkisstjórninni. Í gær sagði Douglas Ross, ráðherra í Skotlandsmálaráðuneytinu, af sér störfum vegna óánægju með Cummings. „Í kjördæmi mínu er fólk sem hafði ekki tækifæri til þess að kveðja sína nánustu, fjölskyldur sem gátu ekki syrgt saman, fólk sem heimsótti ekki veika ættingja af því að það fylgdi fyrirmælum stjórn- valda,“ segir Ross í yfirlýsingu. Fyrir skemmstu greindu blöðin The Guardian og The Daily Mirror frá því að lögreglan væri að rann- saka ferðalög Cummings í mars- mánuði, þegar ríkisstjórnin hafði tilkynnt um ferðatakmarkanir vegna faraldursins. Cummings, sem búsettur er í Lundúnum, hafði þá sést í borginni Durham á Norður- Englandi. Cummings sagðist ekki sjá eftir því að hafa brotið reglurnar. Hann hafi gert það vegna veikinda eigin- konu sinnar og til þess að vernda fjögurra ára gamlan son sinn. For- sætisráðherrann sjálfur var þá alvarlega veikur af COVID-19. Hefur þetta vakið mikið umtal í Bretlandi, það er hvort aðrar reglur gildi fyrir þá ríku og áhrifamiklu en almenning. Cummings hefur svarað þessu á þá leið að aðrar reglur hljóti að gilda um þá sem eiga lítil börn. Þær reglur eru hins vegar ekki til. Leiðtogar stjórnarandstöðu- flokkanna hafa verið háværir síðan málið kom upp og krafist afsagnar Cummings. Boris Johnson kom ráð- gjafa sínum til varnar á sunnudag og sagði aðgerðir hans skiljanlegar og ábyrgar. Afsögn Douglas Ross er aðeins toppurinn á ísjakanum því blaðið The Times greindi frá því að mikil ólga væri innan Íhaldsflokksins um hvernig staðið hafi verið að málum. Vilja margir háttsettir þingmenn og einhverjir ráðherrar nú að Cumm- ings fari. Þegar hafa margir íhalds- menn tjáð sig opinberlega um þetta. „Herra Cummings hegðaði sér ekki í anda útgöngubannsins og forsætisráðherrann ætti nú að reka hann,“ sagði þingmaðurinn Mark Pawsey. Roger Gale, sem hefur setið í nærri 40 ár á þingi, sagði úlfúð almennings mikla og að Cummings ætti að segja af sér, ellegar Johnson að reka hann. Í sama streng tók Harriet Baldwin, sem hefur meðal annars gegnt stöðu þróunarmála- ráðherra. Einn þingmaður, David Warburton, lýsti því hvernig faðir hans hafi dáið einsamall af því að reglunum þurfti að fylgja. Á meðan allt virðist vera að sjóða upp úr reyna nánustu bandamenn Johnson, og helstu Brexit-sinnarnir, Jacob Rees-Mogg og Michael Gove, að halda lokinu á pottinum. Greint hefur verið frá því að reynt hafi verið að beita svipunni svokölluðu á alla ráðherra ríkisstjórnarinnar, og að þeir myndu styðja Cummings. The Times greinir frá því að ráðherrar séu óánægðir með að vera ekki upplýstir um framgang málsins. Til dæmis að þeir hafi ekki verið látnir vita af blaða- mannafundi Dominic Cummings. Þeir þingmenn sem hafa gagnrýnt Cummings og Johnson eru nú á þriðja tug og bætist stöðugt í. Enn hafa engir af æðstu ráðherrunum þó lagt í að gagnrýna þá undir nafni. kristinnhaukur@frettabladid.is Áform stórfyrirtækj- anna ganga út á framleiðslu allt að 250 þúsund tonna af vistvænu eldsneyti á ári. Dominic Cummings hljóp undan reiðum mótmælendum fyrir heimili sitt í Lundúnum á mánudaginn. MYND/EPA Ólga innan Íhaldsflokksins Dominic Cummings, ráðgjafi forsætisráðherra, hefur verið harðlega gagnrýndur innan og utan Íhalds- flokksins vegna ferðalags á tímum útgöngubanns. Ráðherrar reyna nú að halda lokinu á suðupottinum. Herra Cummings hegðaði sér ekki í anda útgöngubannsins og forsætisráðherrann ætti nú að reka hann. Mark Pawsey, þingmaður Íhaldsflokksins DANMÖRK Hópur danskra stór- fyrirtækja á sviði f lutninga og orkuvinnslu hefur kynnt áform um samstarfsverkefni um stór- fellda framleiðslu á vistvænu elds- neyti. Meðal fyrirtækjanna eru A.P. Møller – Mærsk, SAS og fyrirtækið sem rekur Kastrup-flugvöll. Þannig yrði hægt að framleiða vetni fyrir strætisvagna og vöru- bíla, metanól fyrir skip og vistvænt þotueldsneyti fyrir f lugvélar. Markmið hópsins er að ársfram- leiðslan verði 250 þúsund tonn í árslok 2030 en með henni er talið að unnt verði að draga úr losun koltvísýrings um 850 þúsund tonn á ári. Stefnt er að því að framleiðslan verði á Stór-Kaupmannahafnar- svæðinu og fyrsti áfangi verði kom- inn í gang 2023. Dagblaðið Berlingske greinir frá því að ef verkefnið á að verða að veruleika þurfi að koma til miklar opinberar fjárfestingar og stækkun fyrirhugaðs vindmyllugarðs við Borgundarhólm. Í tilkynningu frá fyrirtækjunum segir að verkefnið yrði mikilvægt framlag til þess að Danmörk nái að minnka losun gróðurhúsaloft- tegunda um 70 prósent fyrir 2030 miðað við árið 1990. – sar Stórhuga áform um vistvænt eldsneyti Stefnt er á að nýta vindorku til framleiðslu vistvæns eldsneytis. MYND/GETTY SPÁNN Spænska ríkisstjórnin hefur lýst yfir tíu daga sorgartímabili sem hefst í dag vegna fórnarlamba COVID-19 þar í landi. Fánar verða dregnir í hálfa stöng í um fjórtán þúsund opinberum byggingum og um borð í skipum spænska f lotans. Þá mun Filippus Spánarkonungur stýra hátíðlegri minningarathöfn þegar lokunarað- gerðum verður aflétt. Tæplega 27 þúsund hafa látist af völdum veirunnar á Spáni. Um 80 prósent voru 70 ára og eldri. „Þau hjálpuðu til við að byggja upp land- ið okkar eins og við þekkjum það í dag og lögðu grunninn að lýðræði okkar,“ sagði María Jesús Montero, talsmaður ríkisstjórnarinnar. – atv Sorgartíma lýst yfir á Spáni KOSTA RÍKA Fyrsta samkynhneigða hjónavígslan í Kosta Ríka átti sér stað í beinni sjónvarpsútsendingu í vikunni strax í kjölfar þess að þjóð- þing landsins hafði samþykkt laga- breytingu þess efnis. Lesbíurnar Alexandra Quiros og Dunia Araya gengu í það heilaga, strax eftir að lagabreyting þess efnis gekk í gegn. Lagabreytingin var tilkomin af því að hæstiréttur landsins hafði kom- ist að þeirri niðurstöðu að bann við slíkum hjónavígslum bryti í bága við stjórnarskrá landsins, í ágúst 2018. Fékk þjóðþing landsins 18 mánaða frest til þess að breyta lög- unum. Eyríkið er fyrsta landið í Mið- Ameríku sem heimilar hjónavígslur milli einstaklinga af sama kyni. Forseti Kosta Ríka, Carlos Alvar- ado, birti tíst þar sem fram kom að samkynhneigðir einstaklingar nytu nú loks þeirra réttinda sem þeir ættu skilið. „Frá þessari stundu ættum við alltaf að hafa umburðar- lyndi og ást að leiðarljósi. Það gerir okkur kleyft að stíga framfaraskref og byggja upp ríki þar sem pláss er fyrir alla,“ sagði forsetinn. – bþ Samkynhneigðir mega kvænast í Kosta Ríka Alexandra Quiros og Dunia Araya giftu sig í beinni útsendingu. BANDARÍKIN COVID-19 faraldurinn hefur dregið meira en eitt hundrað þúsund Bandaríkjamenn til dauða. Rúmlega 1,7 milljónir hafa greinst með staðfest smit í landinu. Þá hafa hátt í 470 þúsund náð sér að fullu. Alls hafa meira en 5,5 milljón tilfelli greinst á heimsvísu samkvæmt vef Johns Hopkins-háskóla og tæplega 350 þúsund látist. Bandaríkin eru hægt og rólega að slaka á reglum um samkomubann en á sama tíma er reynt að tryggja að það sé gert á öruggan hátt. Joe Biden, forsetaefni Demó- krata, fór úr sóttkví í fyrsta sinn í tvo mánuði til að leggja blómsveig á minnismerki um fallna hermenn. Biden var með sóttvarnargrímu. Donald Trump Bandaríkjaforseti, sem sjálfur notar ekki grímu opin- berlega, hæddist að Biden á Twitter Víða í Bandaríkjunum er skylda að vera með grímu á almannafæri. Sóttvarnaeftirlitið mælist til þess þegar ekki er hægt að fullnægja tveggja metra reglunni. Víða hefur slíkum reglum verið mótmælt af Bandaríkjamönnum sem telja þær vega að persónufrelsi. Afstaðan er mjög ólík milli f lokka. Samkvæmt könnun Quinnipiac telja 87 pró- sent Demókrata að grímur ættu að vera skylda á almannafæri, rúm 40 prósent Repúblikana eru á sömu skoðun. – ab Misjafnar skoðanir á grímum á almannafæri Margir ganga með grímu. MYND/EPA 2 7 . M A Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.