Fréttablaðið - 27.05.2020, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 27.05.2020, Blaðsíða 24
Það eru ýmsar hugmyndir um Mílu og örugglega tækifæri fyrir Símann að endurskipu- leggja sín fjármál í gegnum þessa eign sína. Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@frettabladid.is Míla, sem á og rek u r hel st u f jarskiptainn-viði landsins, ætlar að draga ú r f j á r f e s t- ingum sínum í þéttbýli úti á landi og dreif býli vegna aukinna kvaða sem Póst- og fjarskiptastofnun hyggst leggja á félagið. Jón Ríkharð Kristjánsson, framkvæmdastjóri Mílu, segir að fyrirtækinu verði refsað fyrir að koma að verkefnum á landsbyggðinni þar sem uppbygg- ing innviða er dýrari en á höfuð- borgarsvæðinu. Þannig fari eftirlits- stofnunin gegn stjórnvöldum sem stefna að hagkvæmri uppbyggingu fjarskiptainnviða. „Það verður kannski á bilinu 2-300 milljónir króna í ár. Áætlun ársins gerði ráð fyrir að Míla myndi leggja ljósleiðara til rúmlega 4 þús- und heimila á þéttbýlisstöðum úti á landi, en hluti þeirra verður stöðv- aður vegna forsendubrestsins. Að auki erum við að draga okkur út úr áformuðum verkefnum í dreif býli,“ segir Jón Ríkharð, spurður um fjár- hagslegt umfang þeirrar uppbygg- ingar sem Míla mun hætta við vegna aukinna kvaða. Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur lokið við frumdrög að mark- aðsgreiningu sem er grundvöllur fyrir reglusetningu um fjarskipta- innviði. Viðmiðið er að PFS vinni markaðsgreiningu á tveggja eða þriggja ára fresti, en síðasta greining var unnin árin 2012-2014. Það verða því sex til sjö ár á milli markaðs- greininganna. „Þetta er eitt af þeirra mikilvæg- ari verkefnum en svo virðist sem því sé ekki sýnd nægileg virðing. Við fórum á fund þeirra fyrir ári síðan og kvörtuðum yfir seinagangi þar sem við töldum forsendur fyrir því að draga verulega úr og aflétta kvöðum á okkur. Samkeppnisum- hverfið hefur tekið verulegum breytingum og markaðshlutdeild Mílu hefur minnkað verulega á undanförnum árum. Niðurstaðan varð síðan þveröfug,“ segir Jón. PFS hyggst því viðhalda útnefn- ingu Mílu sem fyrirtækis með umtalsverðan markaðsstyrk og fyrri kvöðum um aðgang, eftirlit með gjaldskrá og fleira. PFS leggur einnig til að kvaðirnar verði víðtæk- ari í nokkrum atriðum. Meðal ann- ars er lagt til að eftirlit með gjald- skrá nái til ljósleiðaraneta Mílu, kvöð verði um aðgang að rörum og lagnaleiðum og ítarlega verði kveð- ið á um birtingu upplýsinga um rör og lagnaleiðir og fyrirhugaðar jarð- vegsframkvæmdir. Þá verða víðtækari kvaðir á eftir- liti með gjaldskrá þar sem verðkvöð með jafnaðarverði verður sett á ljós- heimtaugar og bitastraumsaðgang á ljósheimtaugum auk fyrri kvaða um verðkvöð með jafnaðarverði á kopar. „Áhrif þessara breytinga eru verulegar. Míla hefur fjárfest fyrir milljarða í uppbyggingu ljósheim- tauga og bitastraums um allt land og þær f járfestingar byggðu á fyrirliggjandi reglum og fyrri yfir- lýsingum PFS, um að ekki yrði lögð Refsað fyrir að byggja upp innviði Framkvæmdastjóri Mílu segir að dregið verði úr fjárfestingum í innviðum úti á landi vegna auk- inna kvaða Póst- og fjarskiptastofnunar. Fjárfestar hafa áhuga á innviðafélögum eins og Mílu. jafnaðarverðskvöð á þessa þætti. Þessar fjárfestingar byggja því á ákveðnum forsendum sem ekki eru lengur til staðar. Við sem stöndum í dýrum langtímafjárfestingum í innviðum verðum að geta treyst því að forsendum fjárfestinga sé ekki kollvarpað án mjög ríkra ástæðna,“ segir Jón Ríkharð. Ná ekki arðseminni sem þarf Jón Ríkharð bendir á að fyrirtæki sem beri jafnaðarverðskvöð geti í raun aðeins fjárfest af skynsemi á svæðum þar sem uppbygging er ódýr á hverja tengingu og þar með hagkvæm. Þéttbýli úti á landi er það svæði sem skemmst er komið á veg í ljósleiðaravæðingu, vegna þess að hátt hlutfall sérbýlis gerir ljósvæð- ingu þar dýra. „Meðalkostnaðarverð á hverja tengingu í þéttbýli úti á landi er því hátt og Míla hefur innheimt hærra gjald á þessum svæðum til að ná arðsemi úr sínum fjárfestingum. Í breyttu umhverfi mun Míla ekki geta innheimt það gjald sem þarf til að ná arðsemi úr fjárfestingunum, þar sem tengingar eru dýrar og að auki myndi jafnaðarverð félagsins hækka, sem skerðir samkeppnis- hæfni á samkeppnissvæðum eins og höfuðborgarsvæðinu. Víða á þessum stöðum er ljósvæðing hafin og að auki á Míla mikið af innviðum sem geta nýst til að gera dýra upp- byggingu hagkvæmari.“ Míla mun því þurfa að leggja alla áherslu á hagkvæma uppbyggingu félagsins á höfuðborgarsvæðinu til að verja markaðshlutdeild á mikil- vægasta markaðssvæðinu þar sem félagið er þegar að hluta komið í minnihluta, að sögn Jóns. Verðlagning verið án kvaða Uppbygging í dreif býli hefur verið drifin áfram af ríkisstuðningi með verkefninu Ísland ljóstengt, sem færði ábyrgð á lagningu ljósleiðara í dreifbýli yfir á sveitarstjórnir. Þrátt fyrir það er arðsemi takmörkuð og rekstrarkostnaður hár. Jón segir að meðaltengingin í dreif býli kosti að meðaltali um eina og hálfa milljón, en hefð- bundið mánaðargjald standi undir 250 þúsund króna fjárfestingu. Sum verkefni kosti á bilinu 2-3 milljónir króna á tengingu. „Míla hefur tekið þátt í þessum verkefnum með fjölþættum hætti og aðstoðað sveitarfélög í vanda um allt land. Við höfum lagt strengi, hannað kerfi og tengingar, lagt kerfi og keypt kerfi af sveitarfélögum sem ekki vilja eiga lögð kerfi. Mörg þessara verkefna hafa takmarkaða arðsemi og eru á svæðum sem enginn annar hefur sýnt áhuga. Við sáum þessi verkefni að vissu leyti sem samfélagslega skyldu, en í þessu breytta umhverfi verður okkur refsað fyrir að taka þátt í þeim,“ segir Jón. „Fram til þessa hefur verðlagning ljósleiðara til heimila í dreif býli verið án kvaða. Míla hefur tekið þátt í þessum verkefnum á þeim grunni og gert ráð fyrir að geta verð- lagt heimtaugar þannig að verk- efnin skili ásættanlegri arðsemi til langs tíma,“ segir Jón. „Í breyttu umhverfi getur Míla ekki treyst á þá forsendu. Með því að setja óljóst verðþak á innheimtu gjalda, mun Míla þurfa að takmarka Hvað er Míla? Míla er heildsölufyrirtæki í eigu Símans, sem á og rekur helstu fjarskiptainnviði landsins. Míla hefur sjálfstæða stjórn og starfar undir ströngum kvöðum bæði frá Póst- og fjarskiptastofnun og Samkeppniseftirlitinu vegna stöðu sinnar á markaði. Sjálf- stæði Mílu er hluti af opinberum kvöðum svo fyrirtækið þjónar öllum fjarskiptafélögum jafnt og óháð eignarhaldi. Míla á og rekur svokallað Ljósnet sem nær til um 96 pró- senta heimila og fyrirtækja á landinu og býður allt að 100Mb/s tengingar á því. Einnig hefur fyrirtækið lagt ljósleiðara alla leið til um 60 prósenta heimila víðs vegar um landið og býður 1Gb/s internet-tengingar til þeirra. Samkvæmt tölfræði frá IDATE er Ísland það land í Evrópu þar sem hlutfallslega flestir nota ljósleiðaratengingar eða um 65 prósent allra heimila landsins. verulega þátttöku sína í verkefnum í dreif býli. Sé vilji til að lækka mark- aðshlutdeild Mílu eru þetta verk- efnin sem fara fyrst. Við munum upplýsa samstarfsaðila í svona verk- efnum um að félagið verði að draga sig út úr þeim vegna forsendubrests sem fylgir nýjum reglum.“ Skortur á getu og þekkingu Er niðurstaða PFS af leiðing af skorti á getu og þekkingu innan stofnunar- innar þegar kemur að greiningu á fjarskiptamarkaði? „Það er tilfinning sem maður hefur. Þetta er eitt af meginverk- efnum stofnunarinnar en það virð- ist lítið púður sett í framkvæmdina. Ástæðan hlýtur að vera skortur á mannskap, þekkingu eða getu. Markaðsgreiningar í Danmörku annars vegar og á Íslandi hins vegar eru sennilega ekki ósvipuð verk- efni. Danska eftirlitsstofnunin er með margfalt f leiri starfsmenn og því verður danska greiningin dýpri og ítarlegri,“ segir Jón. Markaðs- greiningin telji um 400 blaðsíður en innihaldið sé mikið til endurnýttur texti. Víða fylgi takmörkuð greining á íslenskum aðstæðum. „Þetta er mikið af texta, minna af greiningu og niðurstöður víða með takmarkaðan rökstuðning. Maður hefur á tilfinningunni að drögin hafi verið skrifuð til að rökstyðja það sem stofnunin hafði þegar ákveðið að gera. Markmiðið virðist vera að minnka markaðshlutdeild Mílu.“ Jón bendir á að markaðshlutdeild Mílu fyrir heimtaugar á landsvísu hafi lækkað úr 83 prósentum árið 2014 niður í 63 prósent árið 2020. Slík fækkun verður að teljast veru- leg hjá innviðafyrirtæki sem fjár- festir til 30-40 ára. „Og inni í okkar markaðshlut- deild er töluverður hluti gamla talsímakerfið sem er í raun verið að leggja niður. Þessar koparlínur eru til staðar en hafa lítið hlutverk á markaðinum. Þær láta hins vegar markaðshlutdeildina okkar líta út fyrir að vera stærri en hún er í raun,“ segir Jón. „Ég ræddi við erlendan sérfræð- ing á þessu sviði sem sagði að það væri ákveðin tilhneiging hjá eftir- litsstofnunum í smærri löndum, þar sem greiningargetan er takmörkuð, að leggja á sem mestar kvaðir til öryggis. Almennt hefur þróunin hins vegar verið í þá átt, sérstak- lega í Evrópu, að minnka kvaðir og búa til umgjörð sem hvetur til fjárfestinga til þess að hægt sé að ná háleitum markmiðum um upp- byggingu háhraðaneta.“ Í andstöðu við stefnu stjórnvalda Samkvæmt fjarskiptaáætlun stjórn- valda er stefnt að því að allt landið verði ljósleiðaravætt árið 2025. Auk þess hafa stjórnvöld markað stefnu um hagkvæma uppbyggingu fjar- skiptainnviða sem felur í sér meira samstarf og samnýtingu innviða. „Þessi markaðsgreining er í and- stöðu við stefnu stjórnvalda og það liggur við að hún sé pólitísk. Þarna Jón Ríkharð tók við sem framkvæmdastjóri Mílu fyrir fimm árum. Hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Men & Mice. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 2 7 . M A Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.