Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.05.2020, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 27.05.2020, Qupperneq 42
ÞAÐ ER BARA ALLT Í MÍNUS. ÞAÐ ER BARA ÞANNIG. GRAFÍSK HÖNNUN Lógó bréfsefni bæklingar myndskreyngar merkingar ofl. Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is Heimildakvikmynd-in Eins og málverk eftir Eggert Péturs-son, var frumsýnd 15. mars þegar öl l v iðvör u na r- ljós vegna COVID-19 voru farin að blikka með látum. Myndin var á dagskrá Stockfish-kvikmyndahá- tíðarinnar og aðstandendur hennar héldu sínu striki ótrauðir þótt veir- an blési kröftuglega á móti. Hátíðin mátti sín þó ekki mikils þegar samkomubannið var sett á og hún gufaði hálfpartinn upp í kófinu. „Ég var eiginlega kominn á þá línu að fresta frumsýningu, en vildi leyfa þeim að ráða því og þetta voru nú samt allavega 120–130 manns sem komu á frum- sýninguna mína,“ segir leikstjórinn og framleiðandinn Gunnlaugur Þór Pálsson og viðurkennir fús- lega að hann hafi verið hikandi, en ákveðið að tef la á tæpasta vað með Stockfish-fólkinu. „Myndin var samtals sýnd þrisv- ar sinnum, en síðan koðnaði allt niður í vírus og svo náttúrlega kom samkomubannið þremur tímum Samkomubannið bitnaði á blómum Guðlaugur Þór Pálsson rétt náði að sýna heimildamyndina „Eins og málverk eftir Eggert Pétursson“ þrisvar í Bíó Paradís áður en samkomubannið skall á en blómleg náttúra listmálarans fær sín nú notið á efnisveitum. Eggert og Þóra Ellen, en hún gerir grasafræðilega úttekt á verkum hans í mynd Gunnlaugs. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Olíumálverk af norsku vorblómi eftir Eggert Pétursson. eftir frumsýningu, eins og sagt er,“ heldur Gunnlaugur áfram og bætir við að til að bæta gráu ofan á svart sé tvísýnt hvort yfirleitt takist að opna Bíó Paradís aftur að loknu sam komu banninu. Skrýtnir tímar „Þetta eru rosalega skrýtnir tímar og ég var búinn að vonast til að geta kannski gert díl við Bíó Paradís um að sýna hana kannski svona tvisvar um helgi í einhvern tíma eða eitt- hvað svoleiðis,“ segir Gunnlaugur um myndina sem á 74 mínútum fer yfir feril og lífshlaup listmálarans Eggerts Péturssonar, auk þess sem Þóra Ellen Þórhallsdóttir grasafræð- ingur gerir grasafræðilega úttekt á f lórunni í verkum listamannsins. „Ég geri sérstaklega nokkrum lykilmálverkum hans góð skil, svo og helstu málverkum frá 1992 til dagsins í dag og það er rosalega gaman að sjá myndina á stóru tjaldi. Hljóðið er líka mjög skemmtilegt og tónlistin fín.“ Stokkið í streymið „Myndin hefur verið aðgengileg á gagnaveitum Símans og Vodafone um nokkurra vikna skeið,“ segir Gunnlaugur, sem sá sér þann kost vænstan að leyfa myndinni þó að njóta sín á efnisveitunum, þegar hann sá ekki fram á að sýningar í kvikmyndahúsi gætu orðið fleiri. „Stóra málið með þessa mynd er náttúrlega bara að geta horft á þessa fallegu náttúru og fallegu blóm í sjónvarpinu þegar ekkert annað býðst og það er bara frábært,“ segir Gunnlaugur, nokkuð sáttur við að hörfa af breiðtjaldi á skjáinn. „Ég veit að vísu ekki alveg hvernig það gengur og ég er búinn að selja sýningarréttinn til RÚV, en ég veit ekkert hvenær hún verður sýnd þar,“ segir leikstjórinn, sem telur mynd- ina enn eiga heilmikið inni. „Eggert hélt síðast yfirlitssýningu á Íslandi á Kjarvalsstöðum 2007. Hún var opin í nokkra mánuði og ég held að hátt í 70.000 manns hafi komið á þá sýningu og hann á alveg sinn hóp,“ bendir Gunnlaugur á, með fyrirvara um að vissulega sé eðlismunur á málverka- og kvik- myndasýningum. „Hann er alveg rosalega ánægður með myndina og síðan hefur hún fengið bara náttúrlega fín ummæli eins og við segjum,“ bætir kvik- myndagerðarmaðurinn við um viðbrögð viðfangsefnisins og gagn- rýnenda. Sterk náttúrutenging „Það sem vakti svolítið fyrir mér þegar ég var að framleiða myndina var þetta náttúrustef,“ segir Gunn- laugur Þór um grunnhugmyndina að baki myndinni, tenginguna við náttúruna og blóm hennar í mál- verkum Eggerts. Fjölbreytni íslensku f lórunnar birtist glöggt í málverkum Eggerts og kvikmyndin gefur þannig innsýn í íslenskt plöntulíf gegnum myndir Eggerts, fyrirmyndir hans og þróun- ina í verkunum. „Eggert er náttúrlega náttúru- verndarsinni og Þóra Ellen er það náttúrlega líka,“ segir Gunnlaugur, en við tökur myndarinnar fór Þóra Ellen með honum víða. „Við Egg- ert fórum suður í Herdísarvík, við gengum um svæðið ofan við sumar- bústaðinn hans í Bláskógabyggð, við fórum í Skaftafell og vorum líka undir Eyjafjöllunum. Svo fórum við í Þjórsárver og norður á Tröllaskaga,“ sagði hún meðal annars í nýlegu við- tali við Fréttablaðið. „Mitt mottó í lífinu er svolítið bara þannig að við þurfum að ganga vel um, vera skynsöm í þessum loftslagsmálum og skila þessu í lagi til barnanna okkar og barna- barna. Það er bara stóra málið og ég hef ofsalega mikla trú á ungu kyn- slóðinni.“ Eins og málverk eftir Eggert Pétursson var rúm tvö ár í fram- leiðslu en aðaltökurnar fóru fram síðastliðið sumar. Sjónhending og Axfilms eru aðalframleiðendur í „góðri samvinnu við Kvikmynda- miðstöð Íslands“, eins og Gunn- laugur orðar það og gerir ekki lítið úr vonbrigðunum sem fylgja því að geta ekki leyft myndinni að njóta sín lengur í sínu rétta umhverfi á breiðu tjaldi í bíósal. Horft til haustsins Hann þvertekur þó aðspurður fyrir að það sé freistandi að leggja bara árar í bát við þetta mótlæti. „Nei, þvert á móti. Ég er bara að undir- búa næstu verkefni og sjá hvernig það gengur. Ég er líka í samvinnu við Kvik- myndamiðstöð að reyna að koma myndinni á kvikmyndahátíðir út um allar trissur. En það allt er auð- vitað líka rosalega mikilli óvissu háð allt saman,“ segir Gunnlaugur og bendir á að þar sé heldur ekki á vísan að róa þótt hann bindi vonir við að það rætist úr með haustinu. „Svo náttúrlega er ég búinn að reyna að ýta þessu hingað og þangað í sölu í útlöndum, en maður er bara góður ef maður fær svar einhvers staðar. Það er bara allt í mínus. Það er bara þannig.“ toti@frettabladid.is 2 7 . M A Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.