Fréttablaðið - 30.05.2020, Side 68
Berglind Hreiðarsdóttir hefur unnið að mann-auðsmálum og v ið verkefnastýringu í um tuttugu ár og haldið úti matarbloggi í hjá-
verkum. „Þetta er í raun áhugamál
sem fór aðeins úr böndunum eins
og ég segi stundum, sumir fara til
dæmis í golf en ég fer niður í eld-
hús,“ segir Berglind og brosir. Árið
2012 opnaði Berglind svo vefsíðuna
gotteri.is þar sem hún gefur góð ráð
og uppskriftir.
„Ég geri mikið af því að bjóða
fólki heim, enda finnst mér gaman
að gleðja fólkið í kringum mig með
góðum veitingum. Stærri veislur eru
oftast bundnar við hátíðisdaga eins
og afmæli, útskriftir og þess háttar
en minni veislur má halda við hvaða
tækifæri sem er, hvort sem það er
hrekkjavökupartí, náttfatapartí,
saumaklúbbur, vinkonuhittingur
eða hvað sem er.
Ég hef aðstoðað fjölmarga við
veisluhöld í gegnum árin en nú er
Veislubókin komin út svo símtölum
ætti að geta farið fækkandi,“ segir
Berglind og hlær. Veislubókin, sem
kom út á síðasta ári, er afurð ára-
langrar reynslu Berglindar í veislu-
höldum, matargerð og kökuskreyt-
ingum. „Tilgangurinn er að aðstoða
aðra við veisluhöld, hvort sem það
er við uppskriftir, magn veitinga,
kökuskreytingar eða aðrar skreyt-
ingar fyrir veisluna að ógleymdum
gátlistum og hollráðum. Veislu-
bókin er því miklu meira en hefð-
bundin uppskriftabók, hún er í
raun handbók fyrir alla þá sem vilja
halda veislu.“
Hvert er aðalatriðið þegar kemur
að skipulagningu veislu?
„Skipuleggja veisluna í tíma,
skrifa niður allt sem þarf að gera,
kaupa, hvað á að bjóða upp á, hvað
það má kosta og þess háttar. Síðan
þarf að hliðra til því sem þarf þar til
uppskrift að hinni fullkomnu veislu
er komin á blað. Stundum þarf að
taka út, bæta inn í eða breyta til
þess að allt gangi upp og með góðu
skipulagi geta allir gert enn betri
veislu en annars og það er mikil-
vægt að vera ekki að þessu á síð-
ustu stundu. Það bæði getur kostað
óþarfa álag og fjármuni svo það er
aldrei of snemmt að byrja að plana
veislu sem fyrirhuguð er.
Gott er síðan að tímasetja verk-
efnin og ná utan um allt sem þarf að
gera og mikilvægt er að reyna að fá
aðstoð, það er svo gott að geta deilt
ábyrgðinni. Gott er að skrá þetta allt
saman niður á blað eða í skjal til að
ná betur utan um heildarmyndina.“
Hverju ætti maður helst að koma
í annarra hendur?
„Margir gleyma að það er eitt
að skipuleggja allt fyrir veisluna
sjálfa og fá aðstoð við veitingar og
annað skipulag en síðan að sjá um
þjónustu í veislunni sjálfri. Gott er
að fá aðila til að sjá um áfyllingar
og tiltekt meðan á veislu stendur
svo gestgjafinn nái að njóta sín í
veislunni.
Síðan er það frágangurinn, hvort
sem veislan er heima eða í sal þá er
gott að fá aðila til að sjá um slíkt. Við
hjónin enduðum til dæmis tvö ein
um árið að taka niður svið og skraut
eftir brúðkaupið okkar á leið í smá
brúðkaupsferð innanlands. Það
var ekki alveg óskastaðan en þarna
bara vorum við of upptekin við að
skipuleggja allt fyrir veisluna sjálfa
svo þessi hluti gleymdist!“
Hverju mælirðu með að kaupa og
eiga fyrir veisluhöld?
„Ég er auðvitað löngu kolfallin
fyrir fallegum kökudiskum á fæti.
Litlir, sætir bitar vinsælir
Nú þegar saman renna tilslakanir á samkomubanni, útskriftir og hækkandi sól er næsta víst að fólk mun koma
saman og gera sér glaðan dag. Berglind Hreiðarsdóttir matarbloggari gefur lesendum góð veisluráð.
Berglind mælir með því að eiga fallegan kökudisk á fæti og leika sér að því
að raða veitingum á hann til að brjóta upp veisluborðið. MYND/AÐSEND
Hægt er að setja kökur eða aðrar
veitingar á slíka diska og það gerir
veisluborðið svo fallegt og tignar-
legt að lyfta veitingunum aðeins
upp.
Ég er oft með marga mismun-
andi háa kökudiska hér og þar um
veisluborðið með mismunandi
góðgæti. Síðan er hægt að leigja alls
kyns standa og fallegheit, þetta er
bara spurning um að hugsa aðeins
út fyrir rammann og upp af f lötu
diskunum. Falleg bretti og bakkar
undir osta eru líka eitthvað sem
gaman er að eiga, það er svo fallegt
að hrúga saman alls kyns góðgæti á
fallegan ostabakka.“
Eitthvað sem slær alltaf í gegn?
„Nammi, snakk, ávextir og litlir
bitar um allt slá alltaf í gegn í öllum
veislum. Það er eins og fólki finn-
ist skemmtilegra að borða minni
einingar og smakka á f leiru. Ég
hef verið að blanda litlum sætum
bitum á plexistanda eða kökudiska
undanfarin ár og slíkt er mjög vin-
sælt.“
Hvað er ómissandi i veislu þessi
misserin?
„Það eru plexistandar og diskar
á fæti með alls konar sætum bitum
í bland og helst köku á toppnum.
Já og „Naked cake“, sem er hefð-
bundin kaka, þar sem kremið er
þó skafið af í hliðunum þannig að
aðeins sést í kökuna sjálfa, eru líka
í tísku þessa dagana og drippkökur,
þar sem kremið á toppnum er látið
leka niður hliðarnar.
Það fer síðan auðvitað alveg eftir
eðli veislunnar hvaða veitingar eru
vinsælar, brauðtertur hafa verið
að ryðja sér til rúms að nýju og slá
alltaf í gegn, heitir réttir eru sívin-
sælir, smáréttir, súpur, sætindi og
allt þar á milli. Hér þarf hver og
einn að hugsa hvað hann vill bjóða
upp á og þá verður veislan miklu
skemmtilegri.“
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
Berglind Hreiðarsdóttir veit sínu viti þegar kemur að veisluhöldum og gaf út Veislubókina á síðasta ári sem er stútfull af góðum ráðum og uppskriftum fyrir ólíkar veislur. MYND/AÐSEND
3 0 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð