Víkurfréttir - 04.06.2020, Blaðsíða 10
Háskóli Íslands, Keilir og sveitarfélög á Suðurnesjum hafa undirritað
viljayfirlýsingu um að skipuleggja í sameiningu fagháskólanám í leik-
skólafræðum fyrir leiðbeinendur sem starfa á leikskólum á Suðurnesjum.
Menntavísindasvið mun halda utan um námið af hálfu Háskóla Íslands.
Markmið verkefnisins er í senn
að efla menntun innan leikskóla
á svæðinu og fjölga möguleikum
starfsfólks til starfsþróunar en jafn-
framt að sameina styrkleika form-
legrar menntunar og þeirrar reynslu
sem starfsfólk leikskóla býr yfir.
Um er að ræða 60 eininga starfs-
tengt nám á háskólastigi sem skil-
greint er sem nám með vinnu og er
áætlað að það taki tvö ár. Námið er
þannig byggt upp að allar þreyttar
einingar nýtast þátttakendum til
áframhaldandi náms til diplóma-
gráðu eða B.Ed.-gráðu. Námið er
hugsað fyrir þau sem hafa stúdents-
próf eða uppfylla skilyrði um undan-
þágu til háskólanáms.
Námið verður skipulagt sem
sveigjanlegt nám með starfi. Kenn-
arar í leikskólakennarafræði heim-
sækja nemendur í heimabyggð, í
húsnæði Keilis þar sem þunginn af
náminu fer fram. Nemendur fara
enn fremur í heimsóknir á vettvang
og koma einnig á menntavísindasvið
Háskóla Íslands í Stakkahlíð sem
ber faglega ábyrgð á náminu. Þróun
námsins verður jafnframt unnin í
góðu samstarfi við fræðsluyfirvöld
á Suðurnesjum með stofnun fagráðs
um námið.
Hlutfall menntaðra leikskóla-
kennara á Suðurnesjum er lægra
en víða á landinu og telja aðstand-
endur viljayfirlýsingarinnar til mikils
að vinna að bjóða leiðbeinendum
og öðrum þeim sem vilja sækja sér
meiri menntun tækifæri og aðstöðu
við hæfi.
Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti
menntavísindasviðs Háskóla Íslands,
fagnar viljayfirlýsingunni og segir
að samstarfið við Keili, sveitarfélög
á Suðurnesjum og skólaskrifstofur
hafi einkennst af metnaði fyrir hönd
leikskólastigsins og vilja allra aðila til
að bjóða starfsfólki leikskóla tækifæri
til vaxtar og starfsþróunar með fag-
háskólanámi. „Það er dýrmætt að
námið geti farið fram í heimabyggð
með ríkulegum stuðningi heima-
manna sem þekkja best til starfsað-
stæðna. Keilir er með frábæra aðstöðu
til náms og farsæla reynslu af því að
styðja fólk til mennta með sveigjan-
leika og lausnamiðaða hugsun í fyrir-
rúmi. Skólaskrifstofur og leikskóla-
stjórar hafa verið einkar styðjandi
sem er gríðarlega mikilvægt.“
Unnið er að fjármögnun verkefnis-
ins og er stefnt að því að kennsla
hefjist á hausti komanda.
Frá undirritun viljayfirlýsingarinnar í Háskóla Íslands. Sitjandi frá vinstri: Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar,
Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Jóhann Friðrik
Friðriksson, framkvæmdastjóri Keilis, og Magnús Stefánsson, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar. Standandi frá vinstri: Fannar
Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, Oddný Sturludóttir, aðjunkt og verkefnastjóri um eflingu kennaramenntunar, Rannveig
Björk Þorkelsdóttir, lektor í kennslufræði leiklistar, Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir, lektor í leikskólakennarafræði, Jónína Vala
Kristinsdóttir, forseti deildar kennslu- og menntunarfræði, og Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum á Vatnsleysuströnd.
Vinna saman að fagháskólanámi í leikskólafræðum á Suðurnesjum
10 // VÍKurFrÉttir á SuÐurnESjum Í 40 ár
Fimmtudagur 4. júní 2020 // 23. tbl. // 41. árg.