Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.06.2020, Blaðsíða 65

Víkurfréttir - 04.06.2020, Blaðsíða 65
– Hvenær byrjaðir þú að leika golf? Spilaði smávegis með skólafélög- unum þegar ég var í háskólanum í Bandaríkjunum á árunum 1997– 1999. Tók svo langt hlé og byrjaði aftur árið 2009. – Hvað fékk þig til að byrja í golfi? Þegar við hjónin vorum að skoða möguleikann á að flytja til Grinda- víkur nefndi ég við frúna að þá þyrfti ég að fara á fullt í golfið, sagði henni að það væri tilvalin leið til að kynn- ast bænum og bæjarbúum þar sem ég þekkti fáa í bænum. Konan sam- þykkti það með bros á vör og við fluttum til Grindavíkur árið 2009. – Eru fleiri fjölskyldumeðlimir í golfi með þér? Eins og er hefur bakterían ekki gripið neinn annan en mig. Sex ára sonur minn bað reyndar nýlega um og fékk sínar fyrstu golfkylfur. Hefði óskað þess að ég hefði byrjað svona ungur. Svo má maður alltaf binda vonir við að konan og aðrir fylgi manni út á völl enda er golfið frábær fjölskylduíþrótt. – Ertu góður kylfingur, hvað ertu með í forgjöf? Er ágætur, kem mér frá teig að flöt án þess að skapa mikla hættu fyrir aðra. Er a.m.k. farinn að tapa færri golf- kúlum en áður. Eins og er stendur forgjöfin í 13,6. – Hefurðu sett þér markmið fyrir golfsumarið? Já, er með tvö meginmarkmið ofar- lega í huganum í sumar. Hið fyrra er fyrst og fremst sem formaður langar mig að spila með tuttugu félagsmönnum sem ég hef aldrei áður spilað með [innsk. formaður- inn er kominn með níu félagsmenn], seinna markmiðið er svo langþráður draumur að komast undir tólf í for- gjöf. – Ertu mótaglaður kylfingur? Ég hef lítið tekið þátt í mótum utan Grindavíkur en á heimavelli hef ég verið duglegur að taka þátt í innanfélagsmótum eins og Stiga- mótunum og Tóftabóndanum, svo reynir maður að taka þátt á hverju ári í Meistaramótinu. – Hvað spilarðu oft í viku? Reyni að komast einu sinni til tvisvar í viku en það fer oftast eftir veðri. Rástíminn klukkan 08:40 um helgar er að verða heilagur enda frábært að taka hring snemma í góðum félags- kap og eiga nánast allan daginn eftir með fjölskyldunni. – Hefurðu farið holu í höggi? Ég hef orðið vitni að einu slíku höggi en hef aldrei afrekað það sjálfur. Fór reyndar með hálfa kúluna ofan í í einu höggi á 18. holunni í Grindavík. Eftir það högg er ég búinn að sætta mig við það að fara jafnvel aldrei holu í höggi. – Hver er uppáhaldsholan þín? Á Húsatóftarvelli er það önnur holan, ný par 3 hola. Hingað til hef ég oftar en ekki labbað í burtu með skramba. Þessi 169 metra hola er alvöru, fullorðins golfhola sem refsar slæmu höggi og ef maður kemur sér á rangan stað við flötina getur það reynst erfitt að bjarga parinu. Þannig á golfið að vera. – Hver er uppáhaldskylfan þín? Blendingurinn minn, Diablo Edge. Kylfa sem ég get púttað með eða slegið 100–150 metra nánast eftir þörfum. Þegar járnin klikka er blendingurinn traustur vinur sem getur gert kraftaverk. – Hvert er draumahollið þitt? Fyrir utan að spila Augusta Natio- nal með félögunum í golfklúbbnum Einn yfir Pari væri ég til í að spila átján með Diego Maradona, Larry Bird og Patrick Reed. – Nefndu þrjár uppáhalds- holur (ekki á Húsatóftavelli), eina par 3, eina par 4 og eina par 5: Ég ætla mér að spila fleiri velli í sumar þannig að það er aldrei að vita að uppáhaldsholurnar gætu eitthvað breyst eftir sum- arið. Par 3, það er þriðja holan á Akranesi, séríslensk stemmn- ing að vera umkringdur litlum skógi við teighöggið. Par 4, það er tólfta í Korpunni, skemmtileg hola sem reynir á golfhæfileikana hjá manni. Hérna skiptir máli að halda boltanum á braut. Blint inn- áhögg á flötina er krefjandi högg. Par 5, er sú fjórtánda í Oddinum, hola sem býr yfir áhættum beggja megin við teighöggið og er hún upp- lögð fyrir mitt Baby Draw og komandi högg gefa manni gott tækifæri á fugli – en par á öllum þessum holum er mjög gott. – Hvernig stóð á því að þú tókst að þér formennsku í Golfklúbbi Grindavíkur? Rekstrarlega var klúbburinn ekki á góðum stað og nokkur mál hjá klúbbnum voru búin að dragast á langinn sem þurfti kraft til að klára. „Ef maður er ekki hluti af lausninni er maður hluti af vandamálinu,“ hugsaði ég – og mér fannst engin betri leið til að sýna það í verki en að taka að mér leiðtogahlutverkið og vinna að því að klára þessi mál og að rekstur klúbbsins endurspegli allt það góða sem í honum býr. – Er þetta góður hópur með þér í stjórn? Klárlega. Þessi hópur samanstendur af mörgum ólíkum einstaklingum sem gerir liðsheildina enn sterkari. Við erum með fulltrúa frá báðum kynjum og það er góð blanda af heima- og aðkomumönnum. Sam- stilltur hópur sem hefur það sam- eiginlega markmið að m.a. vera vel upplýstur um rekstur klúbbsins og saman stuðlum við að því að heim- sóknirnar á Húsatóftarvöll sé góð upplifun fyrir bæði félagsmenn og alla okkar gesti. – Hefurðu unnið lengi að félags- málum í klúbbnum? Já, frá árinu 2012 hef ég annað hvort verið í stjórn eða unnið náið með þáverandi stjórn. – Hvernig leggst komandi golf- tímabil í þig? Við höfðum smá áhyggjur af golf- tímabilinu eftir óveðrið í febrúar en dugnaðurinn hjá Helga og öðrum gerði það að verkum að völlurinn var opnaður tímanlega, á sumardaginn fyrsta. Fyrstu vikurnar voru heim- sóknir á völlinn með því mesta í manna minnum og bara gaman að fá að taka þátt í þeirri vertíð. Mikil nýliðun hefur átt sér stað í ár og félagatalið okkar er komið yfir tvö hundruð félagsmenn. Eftir mörg ár í framkvæmdum á vellinum munum við verja tímanum á vell- inum í sumar við að einblína á litlu hlutina sem skipta máli, eins og að fegra völlinn. Klúbburinn er búinn að opna inn á nýju brautirnar og bíða félagsmenn spenntir eftir nýju vallarmati frá Golfsambandinu. Bara spennandi tímar framundan! – Hvernig er starfsmannahaldi háttað hjá Golfklúbbi Grinda- víkur? Í ár var gerð ákveðin breyting á stafs- mannahaldinu og erum við búnir að sameina starf framkvæmda- og vallarstjóra. Þessi blanda hefur reynst vel hjá öðrum klúbbum og hef ég fulla trúa á okkar manni í brúnni, Helga Dan Steinssyni. Að öðru leyti erum við ekki með neina aðra fast- ráðna starfsmenn heldur munum við reiða okkur á sumarstarfsmennina í ár. Klúbburinn er líka mjög hepp- inn að eiga marga góða félagsmenn sem leggja fram mikla vinnu í sjálf- boðavinnu. Fyrir lítinn klúbb eins og okkar eru þessir sjálfboðaliðar algjör fjársjóður. – Aðstoðar Grindavíkurbær ykkur með starfsfólk, leggur hann til mannskap? Aðkoma Grindavíkurbæjar að rekstri golfklúbbsins er ómetanleg og þar höfum við m.a. haft mjög góðan aðgang að vinnuaflinu frá vinnuskólunum í bænum í gegnum árin. Frá því ég flutti í bæinn hefur mér alltaf fundist aðkoma Grinda- víkurbæjar að íþróttastarfseminni í bænum vera algjörlega til fyrir- myndar. Verðið sem barnafjöl- skyldur leggja út fyrir sín börn til að stunda allar þær íþróttir sem eru í boði er stillt í hóf. Það má segja að: Það er gott að búa í Grindavík. Næstum þv í! Boltinn hálfur yfir holunni. „Kemur næst,“ sagði meðspilarinn. – Hvað ertu með í pokanum? Ég er mikill Callaway-maður og í pokanum í dag er ég með frá 9,5 gráðu RazrX driver, 3- og 5-tréin úr sömu RazrX-línu, blendingurinn er 24 gráðu Diablo Edge, járnin 6–AW eru RazrX HL og 56 og 60 gráðu fleygjárnin Jaw X-series. Pútterinn sem kemur vel undan vetri er White-Hot Odyssey. Aldrei að vita ef maður kemst undir tólf í forgjöf að verðlaunin verði smá endurnýjun á pokanum. Fimmtudagur 4. júní 2020 // 23. tbl. // 41. árg. VÍKurFrÉttir á SuÐurnESjum Í 40 ár // 65 Golfklúbburinn Einn yfir Pari. Góður vinahópur sem spilað fótbolta með UMFN og spilar nú golf reglulega saman. Frá V til H: Sverrir, Bjarni Sæmundsson, Sighvatur Gunnarsson og Högni Þórðarson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.