Víkurfréttir - 04.06.2020, Blaðsíða 70
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga frá kl. 09:00 til 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
S t æ r s t a f r é t t a - o g a u g l ý s i n g a b l a ð i ð á S u ð u r n e s j u m
Mundi
Það get’ekki allir
verið gordjöss!
President Prump
Það geisar stríð í Bandaríkjum Norður-Ameríku, borgarastyrjöld sem
er ólík öðrum stríðum sem við þekkjum. Stríð sem snýr að kynþáttafor-
dómum. 45. forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, sem kosinn var til
embættis 20. janúar árið 2017 hefur kallað þetta yfir bandarísku þjóðina
með sínum orðum og athöfnum.
Eftir höfðinu dansa limirnir. Frá því
Trump sór embættiseið sem forseti
Bandaríkjanna hefur hann brugðist
á ofsafenginn hátt gegn öllu sem
honum mislíkar hverri stundu.
Sagan sýnir okkur án nokkurs vafa
að Donald Trump er fullur af kyn-
þáttafordómum og hefur markvisst
egnt saman ólíkum kynþáttum í
eigin þágu. Þessi fullyrðing er ekki
frá sjálfri mér komin. Fjöldi greina
hafa verið skrifaðar í blöð eins og
New York Times, Fortune og fjölda
annarra virtra tímarita sem hafa
rannsakað feril hans undanfarna ára-
tugi. Mynstrið er greinilegt og ekki
fallegt. Heimildir um kynþáttafor-
dóma ná alveg til byrjunar áttunda
áratugarins þegar Trump stóð í laga-
deilu þar sem hann neitaði svörtu
fólki að leigja íbúðir í hans eigu. Á
níunda áratugnum hvatti Trump
opinberlega til upptöku dauðarefs-
ingar í tengslum við mál fimmmenn-
inga sem áttu að hafa nauðgað konu
sem var að skokka í Central Park.
Trump keypti heilsíðuauglýsingar í
blöðum til að koma skoðun sinni á
framfæri. Þessir fimmenningar voru
bæði af suður-amerísku og afrísku/
amerísku bergi brotnir og voru að
lokum hreinsaðir af allri sök eins og
frægt er orðið. Hvet ykkur til þess að
horfa á myndina áhrifaríku „When
They See Us“ sem gerð var um málið.
Trump stóð einnig fyrir herferð gegn
Obama á sínum tíma sem snerist
um að hann væri frá Afríku en ekki
frá Hawaii til að véfengja þjóðerni
hans og grafa þannig undan Obama.
Í aðdraganda eigin kosningabaráttu
rægði hann Mexíkóbúa og boðaði
alls kyns boð og bönn til höfuðs
múslimum.
Ofangreind eru bara örfá dæmi af
löngum lista, mjög löngum. Svo ég
endurtaki mig, eftir höfðinu dansa
limirnir. Ofsinn og hatrið sem
Trump sýnir af sér setur tóninn og
lýsir sér núna síðast með því hvernig
lögreglan myrti George Floyd með
köldu blóði. Á meðan Bandaríkin
velja sér siðblindan kynþáttahatara
sem forseta sem kyndir undir mis-
rétti og valdbeitingu í orðum sínum
og athöfnum þá er erfitt að sjá að það
muni skapast friður innan landsins.
Trump er líklegur til að skapa
áframhaldandi ófrið og ímyndaðar
ógnir í aðdraganda næstu forseta-
kosninga í anda myndarinnar „Wag
the Dog“ til að þjappa þjóðinni
saman gegn ímynduðum óvini og
tryggja sér endurkjör. Maður getur
bara vonað að kjósendur í USA komi
auga á þetta mynstur í gegnum allan
skarkalann og fréttavaðalinn sem
flæðir í gegnum alla miðla eins og
illa lyktandi gas. Í nóvember geta
Bandaríkjamenn breytt þessari
þróun og kosið sér forseta sem kann
að fara með valdið. Forseta sem er
að lágmarki mennskur. Forseta sem
er færari að öllu leyti en Donald
Prump.
LO
KAO
RÐ
INGU BIRNU RAGNARSDÓTTUR
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta