Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.06.2020, Blaðsíða 52

Víkurfréttir - 04.06.2020, Blaðsíða 52
Opnun sumarsýninga í Duus Safnahúsum Sumardagskrá Duus Safnahúsa hefst með opnun fjögurra nýrra sýninga næstkomandi föstudag. Þess má geta að ókeypis aðgangur verður í söfn Reykjanesbæjar í júní, júlí og ágúst. Hlustað á hafið Sýningin fjallar um náin tengsl sjómanna árabátatímans við hafið um- hverfis Reykjanesið. Íbúar þessa svæðis áttu allt sitt undir hafinu og því sem sjórinn gaf. Undir yfirborðinu var gullkistan sem sjómenn sóttu lífs- viðurværið í, án auðugra fiskimiða nærri landi hefði svæðið trauðla hald- ist í byggð. En sóknin á árabátum gat orðið varasöm, ekki síst þegar róið var á vetrarvertíð. Þá urðu formenn bátanna að hlusta á hafið á myrkum morgnum til að meta hvort óhætt væri að róa. Sýningunni er ætlað að veita gestum innsýn í þann heim sem forfeður okkar áttu með hafinu, sem stundum var blítt og létt en kannski oftar úfið og krafðist reglulega mannfórna. Sýningarsalur: Gryfjan. Sýningar Byggðasafns Reykjanesbæjar: Sýningar Listasafns Reykjanesbæjar: Fólkið í kaupstaðnum Á sýningunni gefur að líta sýnishorn af ljósmyndum í eigu Byggða- safns Reykjanesbæjar með sérstakri áherslu á ljósmyndir Heimis Stígs- sonar og Jóns Tómassonar. Þema sýningarinnar er fólk og mannlíf í kaupstaðnum Keflavík og nágrannabænum Njarðvík á árunum 1944 til 1994. Sýningin er jafnframt tileinkuð nýjum ljósmyndavef Byggða- safns Reykjanesbæjar, reykjanesmyndir.is, sem verður opnaður við þetta tilefni. Af hug og hjarta Haraldur Karlsson Á sýningunni Af hug og hjarta er að finna tilraunakennd vídeóverk eftir Harald Karlsson. Frá árinu 2014 hefur Haraldur verið að vinna verk í vídeó sem byggja á segulómmyndum af heila og hann kallar einfaldlega Heili (Brain). Vísindin vita ennþá lítið um heilann en segulómyndirnar eru hluti af vísindarannsókn sem miðar af því að öðlast betri þekkingu á starfsemi heilans og þroska hans. Í gegnum segulómyndirnar hefur Haraldur haldið í sinn eigin listræna könnunarleiðangur um myndefnið þar sem hann nýtir sér myndvinnsluforrit til að ferðast um óþekkt svæði og teikna upp mynstur, brautir og efnahvörf. Nýverið áskotnuðust honum einnig segulómyndir af hjarta sem hann notar á sama hátt og birtast í þessari sýningu með myndum af heilanum. Hluti af innsetningunni í Listasafni Reykjanesbæjar byggir einnig á óhlutbundnu myndefni sem fjallar um sama viðfangsefni en eru unnið beint í myndvinnsluforrit. Verkið er langtímaverkefni, gert í beinu framhaldi af Litla sólkerfinu (2000–2022). Gerðið Steingrímur Eyfjörð Steingrímur Eyfjörð (f. 1954) hóf að starfa í myndlist á áttunda ára- tug síðustu aldar, hann hefur unnið með fjölbreytta miðla og ólík viðfangsefni m.a. menningararfleið Íslendinga, þjóðsögur og hjátrú. Hann var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum árið 2007 með verkið Lóan er komin sem samanstendur af þrettán sjálfstæðum verkum og þar á meðal er Gerðið sem sýnt er á Listasafni Reykjanesbæjar. Gerðið er innsetning og lýsir ferli listamannsins þar sem hann nær tengslum við huldumann í gegnum miðil. Verkið er smíðað eftir leið- beiningum huldumannsins og kaupir Steingrímur einnig af honum huldukind til þess að sýna í gerðinu. Áhorfandinn stendur því gagn- vart nútíma álfasögu þar sem hann þarf að ákveða hverju hann vilji trúa. 52 // VÍKurFrÉttir á SuÐurnESjum Í 40 ár Fimmtudagur 4. júní 2020 // 23. tbl. // 41. árg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.