Víkurfréttir - 04.06.2020, Síða 52
Opnun sumarsýninga í Duus Safnahúsum
Sumardagskrá Duus Safnahúsa hefst með opnun fjögurra nýrra sýninga næstkomandi föstudag.
Þess má geta að ókeypis aðgangur verður í söfn Reykjanesbæjar í júní, júlí og ágúst.
Hlustað á hafið
Sýningin fjallar um náin tengsl sjómanna árabátatímans við hafið um-
hverfis Reykjanesið. Íbúar þessa svæðis áttu allt sitt undir hafinu og því
sem sjórinn gaf. Undir yfirborðinu var gullkistan sem sjómenn sóttu lífs-
viðurværið í, án auðugra fiskimiða nærri landi hefði svæðið trauðla hald-
ist í byggð. En sóknin á árabátum gat orðið varasöm, ekki síst þegar róið
var á vetrarvertíð. Þá urðu formenn bátanna að hlusta á hafið á myrkum
morgnum til að meta hvort óhætt væri að róa. Sýningunni er ætlað að
veita gestum innsýn í þann heim sem forfeður okkar áttu með hafinu,
sem stundum var blítt og létt en kannski oftar úfið og krafðist reglulega
mannfórna. Sýningarsalur: Gryfjan.
Sýningar Byggðasafns Reykjanesbæjar:
Sýningar Listasafns Reykjanesbæjar:
Fólkið í kaupstaðnum
Á sýningunni gefur að líta sýnishorn af ljósmyndum í eigu Byggða-
safns Reykjanesbæjar með sérstakri áherslu á ljósmyndir Heimis Stígs-
sonar og Jóns Tómassonar. Þema sýningarinnar er fólk og mannlíf í
kaupstaðnum Keflavík og nágrannabænum Njarðvík á árunum 1944
til 1994. Sýningin er jafnframt tileinkuð nýjum ljósmyndavef Byggða-
safns Reykjanesbæjar, reykjanesmyndir.is, sem verður opnaður við
þetta tilefni.
Af hug og hjarta Haraldur Karlsson
Á sýningunni Af hug og hjarta er að finna tilraunakennd vídeóverk eftir
Harald Karlsson. Frá árinu 2014 hefur Haraldur verið að vinna verk í
vídeó sem byggja á segulómmyndum af heila og hann kallar einfaldlega
Heili (Brain). Vísindin vita ennþá lítið um heilann en segulómyndirnar
eru hluti af vísindarannsókn sem miðar af því að öðlast betri þekkingu
á starfsemi heilans og þroska hans. Í gegnum segulómyndirnar hefur
Haraldur haldið í sinn eigin listræna könnunarleiðangur um myndefnið
þar sem hann nýtir sér myndvinnsluforrit til að ferðast um óþekkt svæði
og teikna upp mynstur, brautir og efnahvörf. Nýverið áskotnuðust honum
einnig segulómyndir af hjarta sem hann notar á sama hátt og birtast í
þessari sýningu með myndum af heilanum. Hluti af innsetningunni í
Listasafni Reykjanesbæjar byggir einnig á óhlutbundnu myndefni sem
fjallar um sama viðfangsefni en eru unnið beint í myndvinnsluforrit.
Verkið er langtímaverkefni, gert í beinu framhaldi af Litla sólkerfinu
(2000–2022).
Gerðið Steingrímur Eyfjörð
Steingrímur Eyfjörð (f. 1954) hóf að starfa í myndlist á áttunda ára-
tug síðustu aldar, hann hefur unnið með fjölbreytta miðla og ólík
viðfangsefni m.a. menningararfleið Íslendinga, þjóðsögur og hjátrú.
Hann var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum árið 2007 með verkið
Lóan er komin sem samanstendur af þrettán sjálfstæðum verkum og
þar á meðal er Gerðið sem sýnt er á Listasafni Reykjanesbæjar.
Gerðið er innsetning og lýsir ferli listamannsins þar sem hann nær
tengslum við huldumann í gegnum miðil. Verkið er smíðað eftir leið-
beiningum huldumannsins og kaupir Steingrímur einnig af honum
huldukind til þess að sýna í gerðinu. Áhorfandinn stendur því gagn-
vart nútíma álfasögu þar sem hann þarf að ákveða hverju hann vilji
trúa.
52 // VÍKurFrÉttir á SuÐurnESjum Í 40 ár
Fimmtudagur 4. júní 2020 // 23. tbl. // 41. árg.