Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.06.2020, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 04.06.2020, Blaðsíða 20
Frumkvöðlastarfsemi Í Sjávarakademíunni mun nem- endum gefast kostur á að kynnast frumkvöðlastarfsemi sem teng- ist hafinu, læra um sjálfbærni og hvernig bæta megi umhverfi og afurðir hafsins. Aðalkennslan fer fram í Húsi sjávarklasans en einn- ig fer kennsla fram í haftengdum fyrirtækjum og stofnunum á Suður- nesjum. Sjávarakademían býður upp á nám sem stendur yfir í eina önn og hefst námið í haust. Í sumar verður sér- stakt 4 vikna námskeið Sjávaraka- demíunnar þar sem lögð er áhersla á nýsköpun, sjálfbærni og tækifæri í bláa hagkerfinu. Þetta námskeið er ætlað fólki sem hefur áhuga á umhverfismálum og öllu er við kemur hafinu. Sumarnámskeið Á sumarnámskeiði Sjávaraka- demíunnar munu þátttakendur hitta frumkvöðla og kynnast því hvernig þau komu hugmynd í framkvæmd, læra að stofna fyrirtæki, kynnast fjöl- mörgum tækifærum til að nýta betur sjávarauðlindir, læra um sjálfbærni og umhverfismál. Námskeiðið er stutt af Mennta- málaráðuneytinu og er námskeiðs- gjaldi því stillt mjög í hóf. Nám- skeiðsgjald er 3.000 krónur. Tækifæri Íslands „Við viljum vekja áhuga fólks á þeim tækifærum sem Ísland hefur upp á að bjóða í tengslum við hafið. Við þurfum meira af fólki sem mun í framtíðinni vinna við eða skapa störf tengd umhverfismálum á hafinu, markaðssetningu íslenskra vara, sjálfbærni, útflutningi tækni- þekkingar, þörungaeldi og sjávarlíf- tækni svo eitthvað sé nefnt,“ segir Þór Sigfússon stofnandi Sjávar- klasans. „Ísland á að vera í forystu á þessu sviði á heimsvísu og Sjávar- akademían er einn vettvangur sem nýtist í þeim tilgangi.“ Urmull nýrra tækifæra „Nú viljum við breikka aðeins sviðið, benda þátttakendum á urmul nýrra tækifæra sem tengjast hafinu en nýta um leið þá miklu reynslu sem til staðar er hjá nýsköpunar- fyrirtækjum sem þátttakendur munu kynnast,“ segir Berta Daníelsdóttir framkvæmdastjóri Sjávarklasans og kennari á námskeiðinu. Nánari upplýsingar um Sjávar- akademíuna og sumarnámskeið má finna á www.sjávarklasinn.is og hjá Söru Björk Guðmundsdóttir verk- efnisstjóra námsins á sarabjork@ sjavarklasinn.is. Sjávarakademían sett á laggirnar „Ef einhvern tíma var þörf þá er núna nauðsyn að efla áhuga fyrir haf- tengdum greinum. Aldrei áður í sögunni hefur jafn mikið verið rætt um fæðuöryggi hérlendis eins og undanfarna mánuði og tækifærin í þeim efnum í hafinu við Ísland eru mikil. Þetta samstarf milli Sjávarklasans og Fisktækniskólans mun hafa mjög jákvæð áhrif fyrir Suðurnesin,“ segir Ólafur Jón Arnbjörnsson skólastjóri Fisktækniskólans en í vikunni var Sjávaraka- demía Sjávarklasans sett á laggirnar í nánu samstarfi við Fisktækniskóla Íslands. Lilja Dögg Alfreðsdóttir menntamálaráðherra opnaði Sjávaraka- demíuna formlega í Húsi sjávarklasans að viðstöddum gestum. „Mjög jákvæð áhrif og tækifæri fyrir Suðurnesin,“ segir Ólafur Jón Arnbjörnsson skólastjóri Fisktækniskólans Ólafur Jón Arnbjörnsson, skólastjóri Fisktækniskólans. T I L H A M I N G J U M E Ð D A G I N N S J Ó M E N N REYKJANESBÆR vinalegur bær 20 // VÍKurFrÉttir á SuÐurnESjum Í 40 ár Fimmtudagur 4. júní 2020 // 23. tbl. // 41. árg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.