Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2020, Qupperneq 38
38 14. febrúar 2020STJÖRNUSPÁ
M
ikið mæðir á Viðari Þor
steinssyni, fram
kvæmdastjóra
Eflingar, í
skugga yfirgrips
mikilla verkfalls
aðgerða í Reykja
víkurborg. DV ákvað
því að leggja tarot fyr
ir Viðar og sjá hvað
framtíðin ber í skauti sér.
Lesendur geta síðan dreg
ið sín eigin tarotspil á vef
DV.
Leitar ráða
Fyrsta spil sem kemur upp er
Æðsti prestur. Viðar er í vanda
staddur og veit ekki alveg hvernig
hann á að beita sér í þessum aðgerð
um. Hann leitar því hjálpar hjá fag
manni. Kennari, lögfræðingur, skyld
menni eða vinur mun leiðbeina honum
næstu daga og er honum ráðlagt að taka
mark á ráðum viðkomandi. Viðar þarf að
hlusta gaumgæfilega á ráðin en einnig
huga að sinni eigin framtíð. Hann þarf
að koma sér í réttan gír, tileinka sér
annað hugarfar og halda áfram veg
inn. Hvort hann er á réttum stað
þarf hann að gera upp við sig, en
honum eru allir vegir færir ef hann
vill feta nýja slóða.
Stökkbreytingar
Næst er það 8 stafir. Spilið tákn
ar jafnvægi, félagslegt ör
yggi og veraldleg gæði
sem Viðar getur notið.
Viðar þarf að treysta
á sjálfan sig og ekki
gleyma innsæinu,
sem segir honum
að í framtíðinni sé honum ætl
að stærra hlutverk en það sem hann
sinnir í dag. Varðandi núverandi verkfallsað
gerðir þá virðist enginn endir í sjónmáli en málið
tekur stökkbreytingum á stuttum tíma og allt leys
ist. Hlutirnir verða eins og Viðar vill hafa þá og allar
óskir hans verða uppfylltar.
Góð laun og öryggi
Loks er það 9 mynt. Viðar er þannig manneskja
að hann kýs að vera einn endrum og eins. Eiga
stundir með sjálfum sér. Hann er alls ekki þjak
aður af einmanaleika og kann vel að meta gæða
stundir með sjálfum sér þegar þessari holskeflu
verkfalla er lokið. Hann hefur lagt mikið á sig til
að komast á þann stað sem hann er á í dag.
Nú þarf hann að njóta og ekki eyða
tíma í óþarfa áhyggjur. Hugsanlega
breytir hann um starfsvettvang
í nánustu framtíð, en það tæki
færi felur í sér góð laun og ör
yggi. n
Lesið í tarot Viðars
stjörnurnar
Spáð í Afmælisbörn vikunnar
Naut - 20. apríl–20. maí
Fiskur - 19. febrúar–20. mars
Vatnsberi -
20. janúar–18. febrúar
Steingeit -
22. desember–19. janúar
Bogmaður -
22. nóvember–21. desember
Sporðdreki -
23. október–21. nóvember
Vog - 23. sept.–22. október
Meyja - 23. ágúst–22 .sept.
Ljón - 23. júlí–22. ágúst
Krabbi - 22. júní–22. júlí
Tvíburi - 21. maí–21. júní
Stjörnuspá vikunnar
Gildir 16.–22. febrúar
Það styttist í vorið og það gleður, því að
þú þolir ekki dimmuna og kuldann. Þú
færð óvænt símtal frá gömlum félaga
sem segir þér aðeins meira en þú vildir
vita. Þessar upplýsingar koma veröld
þinni í uppnám.
Það er fjölskyldumeðlimur í vanda og
þig langar að hjálpa. Þú veist bara ekki
nákvæmlega hvernig þú ferð að því.
Stundum er bara best að vera til staðar
og hlusta. Of mikil afskiptasemi getur
komið í kollinn á þér.
Það hefur verið einhver ládeyða í lífi þínu.
Þú hefur ekki viljað fara mikið út á meðal
fólks og finnst best að vera ein/n. Þú
finnur ekki fyrir einmanaleika, en í þessari
viku finnur þú fyrir þörf til að láta ljós þitt
skína.
Mikil þreyta hefur þjakað þig undanfarið,
sem er afar ólíkt þér. Þú þarft að rífa þig
upp á afturfótunum og jafnvel breyta
einhverju í mataræðinu til að koma þér
aftur á gott ról. Þetta er bara leiðinda-
tímabil en það líður hjá.
Þú hefur tekið mikið af stórum
ákvörðunum hratt undanfarið og það
gerir þig stressaða/n. Þú hefur áhyggjur
af fjárhagnum og finnst líkt og maki þinn
sé ekki að segja alla söguna. Vertu á
varðbergi.
Þú losar þig við eitthvert verkefni eða því
um líkt, sem er þvílíkur léttir. Þér finnst
líkt og heimsins byrðar séu horfnar af
herðum þínum og þér líður sem þú sért
frjáls. Njóttu þess og settu sjálfa/n þig í
fyrsta sæti.
Þú hefur verið að leita að neistanum
svo lengi þegar kemur að vinnunni og nú
loksins er hann í sjónmáli. Þú ert komin/n
í gott umhverfi með skapandi fólki og það
er hlustað á þig og þínar skoðanir. Þú ert á
grænni grein.
Þú æðir áfram þessa dagana og nærð
ekki að gera neitt vel. Þú ert frekar týnd/
ur og gerir fátt annað en að kvarta yfir
örlögum þínum. Bráðum hættir fólk að
nenna að hlusta á þig. Finndu innri ró og
hafðu smá gaman af lífinu.
Það styttist í mikil tímamót í þínu lífi,
tímamót sem þú veist ekki enn að eru
að fara að eiga sér stað. Þessi tímamót
neyða þig til að hugsa þinn gang og
kanna hvað það er í fari þínu sem virkar
stuðandi.
Þú kemst að leyndarmáli og eins og
sannri steingeit sæmir segir þú engum
frá. Þessi trúnaður og traust sem þú
heldur svo fast í á eftir að koma sér vel í
aðstæðum sem eru svo klikkaðar að þú
trúir þeim varla.
Þessi mánuður hefur verið óvenjugóður
og seinni hlutinn af honum verður enn
betri. Þú ert æðrulaus sem aldrei fyrr
og opin/n fyrir framtíðinni, sem geymir
aðeins birtu og hlýju. Ástin lætur á sér
kræla áður en þú veist.
Óvæntur tölvupóstur kemur öllu í
uppnám á vinnustaðnum eða í skólanum
og það fellur í þinn hlut að reyna að miðla
málum. Það gengur verr en við var búist
og þú þarft að horfast í augu við að það er
ekki hægt að gera öllum til geðs.
Hrútur - 21. mars–19. apríl
Stúlka fædd - Svona
eiga foreldrarnir saman
T
ónlistarmaðurinn Sverrir Bergmann
og lögfræðingurinn Kristín Eva Geirs
dóttir eignuðust sitt fyrsta barn saman
fyrir stuttu, gullfallega stúlku sem vó
tæpar þrettán merkur. DV fannst því kjörið
að líta í stjörnumerkin og sjá hvernig nýbak
aðir foreldrar eiga saman.
Kristín er vog en Sverrir er sporðdreki.
Þessi tvö merki mynda nánast samstund
is djúp tilfinningatengsl. Sporðdrekinn get
ur týnst í eigin tilfinningum en þá er gott að
hafa á kantinum vogina, sem þráir fátt meira
en samhljóm og jafnvægi.
Vogin og sporðdrekinn passa vel saman og
hafa svipaðar þarfir þegar kemur að ástinni.
Vogin er hamingjusömust þegar hún er í tra
ustu sambandi og sporðdrekinn þrífst í heil
brigðu sambandi með mikilli nánd.
Þessi tvö geta vel tekist á við verkefni
saman og hentar það þeim mjög vel að vinna
saman. Þegar þau sameina krafta sína, gáfur
og sköpunarhæfileika þá myndast hér ofur
par sem nánast ómögulegt er að sundra. Þau
elska bæði að taka áhættu og þetta samband
verður aldrei leiðinlegt eða hversdagslegt. n
Kristín
Fædd:
17. október 1988
Vog
n málamiðlari
n samstarfsfús
n örlát
n félagsvera
n óákveðin
n forðast deilur
Sverrir
Fæddur:
13. nóvember 1980
Sporðdreki
n úrræðagóður
n hugrakkur
n ástríðufullur
n þrjóskur
n afbrýðisamur
n dulur
n 16. febrúar Vala Flosadóttir stangarstökkvari, 42 ára
n 17. febrúar Magnús Ólafsson leikari, 74 ára
n 18. febrúar Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona, 45 ára
n 19. febrúar Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor, 67 ára
n 20. febrúar Páll Hreinsson hæstaréttardómari, 57 ára
n 21. febrúar Heiða Björg Hilmisdóttir stjórnmálakona, 49 ára
n 22. febrúar Ragna Ingólfsdóttir badmintonstjarna, 37 ára