Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2020, Blaðsíða 2
Græna ljósið og fögru fyrirheitin
Þegar COVID-19 far-aldurinn er búinn ætla ég að …“ Þessa setningu
hefur Svarthöfði heyrt skrill-
jón billjón sinnum á undan-
förnum vikum og lýkur henni
vanalega á fögrum fyrir-
heitum.
Nú hafa allir fengið góðan
tíma til kristilegrar ígrund-
unar og markmiðasetningar,
á meðan samfélagið allt hefur
setið fast á rauðu ljósi vegna
faraldursins. Þessi ætlar loks-
ins að ganga á Esjuna, hinn
ætlar að byrja að leggja til
hliðar fyrir framtíðina, Gúndi
úti í bæ ætlar loksins að segja
Guggu í ræktinni hvernig
honum líður.
Svarthöfði sogaðist inn í
þetta æði og lofaði öllu fögru
og meiru til. Svarthöfði skyldi
loksins passa í markmiðsfötin
og læra að leggja í hliðar-
stæði. En síðan runnu á Svart-
höfða fleiri grímur en prýða
hann vanalega.
Hvað er það í rauninni sem
þessi loforð eru? Jú, þetta eru
að sjálfsögðu nýju áramóta-
heitin. Og rétt eins og ára-
mótaheitin verðum við fljót
að renna á rassgatið með þau.
Vöðvaminnið í fólki er sterkt
og vaninn ekki auðveldlega
brotinn á bak aftur. Því þó
að þetta ástand hafi varað nú
mánuðum saman erum við
ekki að nýta þennan tíma til
að búa okkur til betri venjur
eða tileinka okkur nýtt hugar-
far. Við erum bara búin að
vera að lifa af og bíða.
Samfélagið hefur verið á
rauðu ljósi og nú hefur gula
ljósið verið tendrað. Um leið
og kviknar á því græna þá
munum við öll bruna af stað
og halda okkar fyrirfram
ákveðnu leið.
Nú gætu sumir sagt: „Svart-
höfði, mikið djöfull geturðu
verið svartsýnn og leiðin-
legur.“ En þetta er bara sann-
leikurinn. Við getum ekki ætl-
ast til þess að heimsfaraldur
einn og saman eigi eftir að
breyta lífi okkar og persónum
alveg sjálfkrafa. Ef það væri
svo auðvelt þá væru líklega
einhverjir gúrúar úti í eyði-
mörkum farnir að prufa sig
áfram með smitsjúkdóma og
einangrun.
Þetta er því bara rétt eins og
með áramótaheitin. Það verða
tvær, þrjár vikur teknar með
trompi en að endingu mun
einn gefast upp á bílastæðinu
fyrir framan Esjuna, því að
veðrið er ekki gott, eða því
það eru svo margir bílar, eða
annað álíka slappt bull. Ann-
ar mun fatta að veskið hans
er götótt og því gefst ekkert
svigrúm til að spara, enda
bráðnauðsynlegt að kaupa nýj-
ustu tískumálninguna í Slipp-
félaginu fyrir fúlgur fjár og
Gúndi heldur áfram að mæna
á Guggu, því hún lítur út fyrir
að vera í svo vondu skapi, því
hann lítur svo asnalega út í
ræktinni, eða því hann áttar
sig á að Gúndi og Gugga á
eftir hljóma hallærislega á
sameiginlegu jólakorti.
Svarthöfði henti því bæði
markmiðsbuxunum og mark-
miðsfermingarjakkafötunum,
og henti út smáforritinu sem
átti að kenna listina að leggja í
hliðarstæði. Þegar Svarthöfði
verður tilbúinn í lífsstíls-
breytingu þarf engan heims-
faraldur til að koma honum í
gang. Hvenær það svo verður
veit nú enginn. En það mun
allavega ekki gerast á meðan
hann er fastur á rauðu ljósi. ■
SVART HÖFÐI
Í TÆKINU Ekki vera fáviti
Þ
að hafa flestir lent í því á lífsleiðinni
að vera sagt upp. Hvort sem það er af
bestu vinkonunni í 5. bekk, heitu kær-
ustunni með háu kinnbeinin í Versló eða
á seinni stigum lífsins í framtíðarstarfi
eða hjónabandi. Það er vont að vera
hafnað. Alveg sama þó að mörg þúsund manns hafi
verið hafnað sama dag. Það er samt vont. Hrikalega
vont. Kvíði, pirringur, taugaveiklun, hræðsla og alls
kyns aðrar tilfinningar fylgja, fyrir utan fjárhags-
áhyggjur sem smita út frá sér inn í fjölskylduna.
Og hvað svo? Setja bara undir sig hausinn og halda
áfram?
Nei, erum við ekki hætt því? Að bæla tilfinningar
og burðast með þær áratugum saman svo að áföllin
erfist áfram til næstu kynslóðar með vöðvabólgu og
kvíðaröskun?
Hvernig væri að leyfa sér að fara aðeins
inn í tilfinningarnar, leita til þeirra sem
eru að upplifa það sama og um leið gera
umburðarlyndi að möntru sinni? Það
eiga margir um sárt að binda í þessu
ástandi svo örlítil eftirgjöf og
þolinmæði gagnvart náunganum
myndi ekki drepa okkur.
Já, og fyrst fólk ætlar á annað
borð að girða sig í brók og tileinka
sér mannasiði væri fínt að ökumenn
færu líka að stoppa fyrir fót-
gangandi. Ég hef oftar en einu
sinni staðið með barn, poka,
óléttumaga og alls konar, en
sjaldnast er stoppað til að
hleypa manni yfir götuna.
Varúð, nú leyfi ég mér
að nöldra um skort á
mannasiðum.
Fyrir nokkrum árum
ofbauð mér þessi dóna-
skapur svo að ég ákvað
að gera tilraun. Þóttist
vera með bilaðan bíl úti í
vegkanti í Garðabæ. Ég var með
gleraugu og tagl, í íþróttagalla
og á gömlum bíl.
Það stoppaði einn bíll og bauð
mér aðstoð á 20 mínútum! Það
var töluverð umferð um götuna en flestum virtist
vera sama enda visi fólk ekki að ég var með falda
myndavél.
Þá ákvað ég að ná í nýbónaðan Audi, skella mér í
kjól og háa hæla með slegið hár og varalit. Þá byrjaði
ballið og það stoppaði bíll eftir bíl. Ég var eins og
starfsmaður í lúgusjoppu og hafði ekki undan að af-
þakka pent í gegnum bílrúður.
„Nei, takk, ég þarf ekki aðstoð ég er bara að kanna
hvort fólk sé fífl!“ ■
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir
RITSTJÓRI: Þorbjörg Marinósdóttir, tobba@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Erla Hlynsdóttir, erlahlyns@dv.is AUGLÝSINGAUMSJÓN: Ruth Bergsdóttir, ruth@dv.is
PRENTUN: Torg prentfélag DREIFING: Póstdreifing | DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. DV, Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík Sími: 550 7000.
Aðalnúmer: 550 5060
Auglýsingar: 550 5070
Ritstjórn: 550 5070
FRÉTTA SKOT
550 5070
abending@dv.is
Jón Gnarr, „altmuligmand“
með meiru, hefur gert garð-
inn frægan sem grínisti, rit-
höfundur, leikskáld, borgar-
stjóri, útvarpsmaður, leikari,
leigubílstjóri og svona mætti
áfram telja. Þó að hann hafi
einnig sungið og samið lög
þá er tónlist ekki það fyrsta
sem fólki dettur í hug þegar
það heyrir nafn hans. Svo DV
sló á þráðinn til að forvitnast
um hvað Jón okkar Gnarr
væri eiginlega að hlusta á.
MYND/GETTY
1 Crass
„Ég hlusta ekki á tónlist eins
og fólk gerir. Ég hef bara
hlustað á eina hljómsveit og
það er breska pönkhljóm-
sveitin Crass og sú hlustun
gengur öll út á texta, ég
hlusta á þá.“
2 Born Standing Up
„Ég er að hlusta á
bókina Born Stand-
ing Up, eftir Steve
Martin. Hún er ágæt.“
3 Futility Closet
„Svo er ég að hlusta á hlað-
varpið Futility Closet, sem
eru mjög athyglisverðir
þættir. Þetta eru nördahjón
sem fjalla um alls konar
skrítna og athyglisverða
hluti.“
2 1. MAÍ 2020 DV