Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2020, Síða 6
1. MAÍ 2020 DV
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
RÍKISSTYRKTAR UPPSAGNIR
Andrés Ingi Jónsson telur „ríkisstyrktar uppsagnir“ ekki farsæla lausn á vandanum.
Forsætisráðherra segir aðgerðirnar lið í því að tryggja rétt launafólks.
T ilkynnt var um stærstu uppsögn Íslandssögunn-ar daginn eftir að ríkis-
stjórnin kynnti aðgerðir til
að styðja við greiðslur launa-
kostnaðar á uppsagnarfresti.
Icelandair hefur sagt upp um
2.100 manns og gaf forstjóri
fyrirtækisins út að aðgerða-
pakki stjórnvalda hefði haft
áhrif á útfærslu uppsagnanna.
Ríkið hvetji til uppsagna
Andrés Ingi Jónsson, óháður
þingmaður, gerði þessar að-
gerðir stjórnvalda að umtals-
efni á Alþingi í gær. Hann
sagði ríkisstjórnina greini-
lega komna í neyðargírinn
fyrst verið væri að kynna hug-
myndir sem ekki væri búið að
útfæra að fullu en sagðist þó
hafa ákveðinn skilning á að-
stæðum enda stór vandi sem
þurfi að leysa.
„Loks má spyrja sig hvort
ríkisstyrktar uppsagnir sé
það sem best leysir vandann.
Vissulega voru uppsagnir
byrjaðar og fleiri á leiðinni, en
þær verða fleiri en ella vegna
þess að ríkisstjórnin býðst til
að niðurgreiða hverja upp-
sögn um 2,5 milljónir króna.
Á meðan hlutabótaleiðinni var
ætlað að styðja fyrirtæki til að
halda fólki í vinnu, þá á nú að
hvetja fyrirtæki til að segja
því upp,“ sagði Andrés.
Birgir Þórarinsson, þing-
maður Miðflokks, var á svip-
uðum nótum og sagði ríkis-
stjórnina hafa komið með
skýr skilaboð til fyrirtækja:
„Nú getið þið sagt upp starfs-
fólkinu ykkar án kostnaðar. Í
stuttu máli er ríkið að greiða
starfsfólkinu uppsagnarfrest
en þetta leysir ekki neinn
vanda og eykur í raun bara
skuldir ríkissjóðs. Í raun er
ríkið að hvetja til uppsagna,“
sagði Birgir í pontu í gær.
Markmið að afstýra
gjaldþrotum
DV spurði Katrínu Jakobs-
dóttur forsætisráðherra
hvort hér væri ekki einmitt
um ríkisstyrktar uppsagnir
að ræða, og segir hún í skrif-
legu svari: „Aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar miða að því að
verja störf með framhaldi
hlutastarfaleiðarinnar sem
mun skipta verulegu máli fyr-
ir mörg fyrirtæki sem munu
nú rétta úr kútnum eftir því
sem faraldurinn gengur yfir.
Hins vegar liggur fyrir að
mörg fyrirtæki standa ekki
nægjanlega vel til að geta nýtt
sér hlutastarfaleiðina og er þá
horft til fyrirtækja sem orðið
hafa fyrir 75% tekjufalli eða
meira. Þá eru töluverðar líkur
til að fyrirtækin fari í þrot og
greiði engum laun á uppsagn-
arfresti. Okkar aðgerðir miða
að því að búa til skjól með því
að einfalda fyrirtækjum fjár-
hagslega endurskipulagningu,
afstýra fleiri gjaldþrotum en
færri en tryggja um leið rétt-
indi launafólks.“
Fyrir þau fyrirtæki sem
nýta sér þessa leið greiðir
ríkið að hámarki 663 þúsund
krónur á mánuði í allt að þrjá
mánuði auk orlofs og er há-
markshlutfall ríkisins 85%.
Leiðin er í boði frá 1. maí til
30. september.
Um hádegisbilið í gær stað-
festi Unnur Sverrisdóttir, for-
stjóri Vinnumálastofnunar,
í samtali við RÚV að þeim
hefði verið tilkynnt um rúm-
lega 3.700 uppsagnir á tveim-
ur dögum, og eru uppsagnir
hjá Icelandair þar meðtaldar.
Kvöldið áður var hún í kvöld-
fréttum RÚV spurð hvort að-
gerðir stjórnvalda væru til
þess fallnar að auðvelda fyrir-
tækjum að segja upp starfs-
fólki og svaraði: „Já, örugg-
lega.“ n
Erla Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is
Okkar aðgerðir
miða að því að
búa til skjól.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra
Dæmi um styrki ríkisins vegna uppsagna
Laun Ríkið Fyrirtæki Hlutur ríkisins
300.000 255.000 45.000 85%
500.000 425.000 75.000 85%
700.000 595.000 105.000 85%
900.000 633.000 367.000 70%
Andrés Ingi
Jónsson
segist hafa
skilning á
vanda stjórn-
valda en þó
sé nauðsyn-
legt að útfæra
björgunarað-
gerðir vel áður
en þær eru
kynntar.
MYND/EYÞÓR
6 FRÉTTIR