Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2020, Blaðsíða 25
Með því að stunda kynlíf með
honum hafi Jodi útilokað sig
frá því að geta orðið eigin-
kona hans.
Morðið
Þann 9. júní 2008 fóru tveir
áhyggjufullir vinir Travis
heim til hans en þeir höfðu
ekki náð sambandi við hann
í fimm daga. Þeir fóru inn á
heimili hans og fundu hann
liggjandi í sturtuklefanum.
Hann hafði verið skotinn í
andlitið og skorinn á háls
auk þess að vera stunginn 27
sinnum í bringuna og bakið.
Lögreglan sagði að ummerki
á vettvangi hefðu bent til að
átök hefðu átt sér stað.
„Það fyrsta sem mér datt
í hug var að mikil slagsmál
hefðu átt sér stað þarna og
að þau hefðu verið mjög
persónuleg. Einhver þekkti
hann. Einhver vildi hann
feigan. Einhver vildi ganga
úr skugga um að hann væri í
raun látinn,“ sagði lögreglu-
maðurinn Esteban Flores um
aðkomuna.
Lögreglan reyndi strax
að hafa uppi á Jodi en það
var eins og hún hefði horfið
af yfirborði jarðar. Það var
ekki fyrr en fjórum dögum
síðar sem lögreglunni tókst
að hafa uppi á henni heima
hjá afa hennar og ömmu. Hún
var ákærð fyrir morð og varð
aðalumfjöllunarefni banda-
rískra götublaða. Jodi ræddi
við marga fjölmiðla um málið
og sagði við einn að hún hefði
ekki einu sinni verið á staðn-
um þegar Travis var myrtur.
Skömmu síðar breytti hún
frásögn sinni og sagðist hafa
verið á staðnum en að grímu-
klæddir menn hefðu ruðst
inn í húsið og drepið Travis.
Hún hefði sjálf náð að flýja
heil á húfi. Lögreglan trúði
ekki þessari sögu og þegar
hún var spurð í yfirheyrslu af
hverju hún hefði ekki hringt
í lögregluna sagðist hún hafa
verið of hrædd til þess.
Sérfræðingar lögreglunn-
ar fundu mörg fingraför og
lófaför í blóðinu í sturtuklef-
anum. Einnig fundust löng
brún hár á sturtuveggnum. Í
þvottavélinni fannst mynda-
vél Travis. Á minniskortinu
voru myndir af honum og
Jodi að stunda kynlíf. Mynd-
irnar voru teknar skömmu
fyrir morðið. Á minniskort-
inu voru einnig myndir af
Travis í sturtu, teknar nokkr-
um sekúndum áður en hann
var skotinn. Á einni mynd-
inni virðist hann ekki vita að
verið er að mynda hann en á
annarri horfir hann beint inn
í linsuna. Einnig var mynd af
blóðpollinum á minniskort-
inu. Jodi stóð enn fast á að
hún væri saklaus.
„Enginn kviðdómur getur
sakfellt mig. Ég er saklaus.
Guð veit að ég er saklaus.
Travis veit að ég er saklaus,“
sagði hún en lögreglan trúði
henni ekki. Eftir margar og
ítarlegar yfirheyrslur ját-
aði hún síðan að hafa myrt
Travis. Rannsókn lögregl-
unnar hafði þá leitt í ljós að
Travis var skotinn í andlitið
með skammbyssu sem hvarf
af heimili afa og ömmu Jodi
viku áður.
Dómurinn
Þegar réttarhöldin yfir henni
hófust mættu mörg hundruð
manns í dómhúsið til að sýna
henni stuðning. Lögreglan
varð að vera með mikinn við-
búnað til að halda fólki utan
við bygginguna. Málið hafði
vakið mikla athygli fjölmiðla
og voru um 100 fréttamenn
viðstaddir réttarhöldin.
Jodi viðurkenndi fyrir dómi
að hafa myrt Travis en sagði
það hafa verið í sjálfsvörn.
Hún sagði hann hafa brjálast
þegar hún missti mynda-
vélina á gólfið. Hún sagði
einnig að hann hefði beitt
hana ofbeldi eftir að hún stóð
hann að því að fróa sér yfir
barnaklámi. Ekki var lagður
trúnaður á þessar skýringar
hennar.
Saksóknari fór fram á
dauðadóm yfir henni og hélt
því fram að Jodi hefði myrt
Travis eftir að hún komst að
því að hann var ástfanginn
af konu úr mormónasöfnuð-
inum og hefði haft í hyggju að
flytja til Mexíkó með henni.
Aðeins nánustu vinir og ætt-
ingjar hans höfðu fengið að
vita af þessu því hann var
mjög hræddur við Jodi og
hvað hún kynni að gera ef
hún frétti þetta.
Dómur féll í málinu 2013
og var Jodi dæmd í lífstíðar-
fangelsi. Þar sem kviðdómur
náði ekki einróma niðurstöðu
varð að taka málið aftur fyrir
dóm síðar og lauk þeim rétt-
arhöldum 2015. Aftur var hún
dæmd í lífstíðarfangelsi. n
Travis var
strang-
trúaður
mormóni.
Kynlíf fyrir
hjónaband
var því
algjörlega
forboðið.
MYND/
TRAVIS
ALEXANDER/
MYSPACE
Jodi tók skírn og gerðist mormóni í von um að Travis myndi vilja giftast henni. MYND/ TV2.NO
Enginn kvið-
dómur getur sak-
fellt mig. Ég er
saklaus. Guð veit
að ég er saklaus.
Travis veit að ég
er saklaus.
FÓKUS 25DV 1. MAÍ 2020