Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2020, Page 28
28 MATUR 1. MAÍ 2020 DV
það er þannig í öllu í lífinu.“
Nú hefur samkomubann og
takmarkanir vegna COVID-19
sett strik í reikninginn hjá
mörgum menntaskólanemum.
Elenora lét það þó ekki stoppa
sig í því að baka. Þvert á móti
bakar hún nú sem aldrei fyrr.
„Heldur betur. Það er í
raun það eina sem heldur
mér gangandi. Ég er rosa
„aktíf“ manneskja og fannst
mjög skrýtið að þurfa að
vera heima, geta lítið farið og
vera ekki í vinnu þar sem ég
elska vinnuna mína og fólkið
mitt þar. Ég elska að vakna
snemma, stilla á góða tónlist
og baka eitthvað gott og fara
svo og færa einhverjum sem
mér þykir vænt um. Ég hef í
raun bakað nær daglega. Ég
er kannski í fríi frá vinnu en
vil samt nýta þennan tíma í að
kafa dýpra og læra meira.“
Leyndardómsfull
bakstursósk
Elenoru hefur einnig tekist
að láta gott af sér leiða með
bakstrinum. Árið 2017 var
Elenora kosin Suðurnesingur
ársins og bakaði af miklum
móð í þágu góðra málefna.
„Ég fæddist með sjaldgæfan
fæðingargalla sem kallast
Omphalocele. Ég þurfti þar
af leiðandi oft á hjálp Barna-
spítalans að halda. Seint árið
2016 ákvað ég að helga árið
2017 því að baka og selja kök-
ur og safna pening til styrktar
Barnaspítalanum. Þetta var
eitthvað sem ég ákvað alveg á
eigin spýtur og fór allur ágóði
óskertur til styrktar spítal-
anum til að þakka þeim fyrir
alla þá hjálp sem ég fékk frá
þeim. Fólkið þar er það besta
í heimi og ég hef alltaf líkt
fólkinu þar við engla í dular-
gervi. Seint árið 2018 hélt ég
svo viðburð til styrktar minn-
ingarsjóði Einars Darra. Í
bæði skiptin var þetta algjör
hvatvísi hjá mér, hugmynd
sem ég fékk og framkvæmdi
strax en er svo þakklát fyrir
að hafa látið verða af.
Ég fékk símtal, einmitt
þegar ég var inni í Allt í köku,
þar sem ég var beðin um að
baka köku fyrir mann ársins
en fékk aldrei að vita hver það
væri, bara að ég ætti að hafa
mig til því ég þyrfti að fara
í smá viðtal líka. Í viðtalinu
var ég svo beðin um að skrifa
nafnið mitt því ég væri maður
ársins. Ég átti mjög bágt með
mig og brast í grát, uppfull
af þakklæti. Minning sem ég
geymi fast í hjartanu mínu.“
En hvað ber framtíðin í
skauti sér fyrir þessa efni-
legu konu?
„Ef allt fer samkvæmt
áætlun útskrifast ég á næsta
ári, 2021, sem bakarasveinn.
Mig langar í framhaldi af því
út í pastrynám. Eftir fimm
ár sé ég mig útskrifaða bæði
sem bakara og pastrychef,
búin að búa erlendis og mögu-
lega vinna þar. Ég verð komin
heim, í góðri vinnu og von-
andi að stefna á að opna mitt
eigið fyrirtæki, hvort það yrði
bakarí, veisluþjónusta eða
Sumartart
Tartdeig
300 g hveiti
150 g smjör við stofuhita
100 g flórsykur
1 egg
1 eggjarauða
Allt sett saman í skál og hnoðað þar
til þetta er orðið að deigi.
Deigið er sett inn í kæli í hálftíma til
að það sé auðveldara að rúlla það út.
Forhitið ofninn í 160°C.
Rúllið deigið út. Setjið í bökunarform
og þrýstið vel niður í alla kanta.
Byrjið á að baka tartskelina í 20 mín-
útur. Takið hana svo úr ofninum og
penslið hana að innan með eggja-
rauðu. Setjið hana svo aftur inn í
ofninn í 10-15 mínútur í viðbót eða
þar til skelin er gullinbrún. Þetta
mun hindra að það sem við setjum
inn í tartið leki í gegn.
Hindberjakompot
200 g frosin hindber
50 g sykur
30 g vatn
15 g sítrónusafi
3 mintublöð
Allt sett saman í pott og látið bull-
sjóða í 5 mínútur á meðan þið hrærið
stanslaust.
Eftir þessar 5 mínútur er hitinn undir
pottinum lækkaður og látið léttsjóða
í 10 mínútur í viðbót og hrært í öðru
hvoru.
Eftir 10 mínúturnar er þetta sett í
gegnum sigti þar til aðeins mintu-
blöðin og fræin eru eftir.
Sítrónukrem
5 eggjarauður
2 egg
Börkur af einni sítrónu
130 g sítrónusafi
110 g sykur
60 g ósaltað kalt smjör
Setjið allt nema smjörið í skál og
hitið yfir vatnsbaði á vægum hita.
Þetta þarf að hræra stanslaust með
písk í um 5-7 mínútur eða þar til
áferðin er orðin eins og sósa.
Takið skálina af vatnshitabaðinu og
bætið smjörinu saman við. Hrærið
þar til allt er komið saman.
Samsetning
Takið tartskelina varlega úr forminu.
Setjið hindberjakompotið í botninn á
skelinni og dreifið jafnt úr því. Setjið
svo sítrónukremið ofan á hindberja-
kompotið og dreifið vel.
Skreytið eins og þið viljið. Kælið í
2-4 tíma og berið tartið síðan fram
eins og það er eða til dæmis með
góðum ís.
Þrátt fyrir ungan aldur stefnir Elenora hátt . MYND/AÐSEND
Framhald af síðu 26
eitthvað annað kæmi þá í ljós
seinna.“
Það er þó lítið gagn í því að
baka bara út í loftið. Hvern er
skemmtilegast að baka fyrir
og hvers vegna?
„Þá sem kunna að meta
vinnuna sem maður setur í
það sem maður er að baka
og eru þakklátir fyrir það.
Ég reyni að gefa aldrei neitt
nema ég sé ánægð með það.
Yfirleitt fer mikil vinna í það
sem maður bakar og þess
vegna er ekkert leiðinlegra en
að afhenda vanþakklátu fólki
eitthvað sem maður er stoltur
af og eyddi miklum tíma í.
En skírnarkökur eru algjört
uppáhald. Það er eitthvað
svo dýrmætt við það að vita
nafnið á litlu barni á undan
öðrum.“
Svona að lokum: Hvaða
myndir þú vilja gefa þeim
sem hafa áhuga á bakstri
og vilja skara fram úr á því
sviði?
„Að hafa trú á sjálfum sér.
Ég er komin svo langt, en
væri komin svo miklu lengra
ef ég hefði ekki alltaf hlustað
á neikvæð ummæli frá öðrum.
Ef maður vill skara fram úr
og vera góður í því sem maður
gerir er gott sjálfstraust lykil-
atriði. Að treysta sjálfum sér,
leyfa sér að gera mistök en
læra af þeim, að standa með
sjálfum sér og hvetja sjálfan
sig áfram.
Og ef þú vilt skara fram úr
þá verðurðu að vinna fyrir
því. Taktu þátt í því sem þér
stendur til boða, farðu skref-
inu lengra en þú þarft, lestu
þér til á netinu, fáðu innblást-
ur úr öllum áttum og hlustaðu
vel þegar fólk er að kenna þér
og leiðbeina. Þú munt aldrei
skara fram úr nema þú sért
tilbúinn að leggja vinnuna í
það.“ n