Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2020, Qupperneq 34
F
ru
m
kv
öð
ul
l á
h
áu
m
h
æ
lu
m
Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir hefur
afrekað ótrúlega hluti í viðskiptaheiminum. Hún
á langan feril að baki sem fyrirsæta, fyrirtækja-
eigandi og frumkvöðull, svo fátt eitt sé nefnt.
Á sdís Rán var gift fót-boltamanninum Garð-ari Gunnlaugssyni.
Þau skildu árið 2012 eftir níu
ára samband og eiga saman
þrjú börn. Ásdís flutti fyrst
til Búlgaríu árið 2008 þegar
Garðar skrifaði undir samn-
ing við fótboltalið í Sofíu, höf-
uðborg Búlgaríu. Hún flutti
til Íslands árið 2017 en flutt-
ist aftur til Búlgaríu í febrúar
síðastliðnum. Við ákváðum að
líta yfir langan og annasaman
viðskiptaferil Ásdísar.
Stoltust af IceQueen
Við ræddum við Ásdísi um
viðskiptaævintýrin og spurð-
um hana hvað stæði upp úr á
ferlinum. Hún segir að besta
viðskiptaævintýri hennar sé
án efa IceQueen-vörumerkið.
„Ég byrjaði á því að hanna
snyrtivörur undir IceQueen.
Svo fór ég út í húðvörur,
sundföt og kjóla. Ég hannaði
verslun í Búlgaríu sem leit út
eins og íshellir sem var hand-
gerður af fremstu óperusviðs-
listamönnum Evrópu. Búðin
var stórkostlega fallegt lista-
verk,“ segir Ásdís Rán.
„ Þ et ta var ótrú lega
skemmtilegt nokkurra ára
tímabil og ég mokaði út vörum
bæði erlendis og á Íslandi. En
svo kom kreppa hér í Búlg-
aríu. Meðeigandi minn, Ruja
Ignatova sem var í fréttunum
í fyrra, fór á hausinn. Verslun-
armiðstöðin sem verslunin var
í fór einnig á hausinn ásamt
því að markaðurinn hrundi.
Til að bæta gráu ofan á svart
var ég að skilja á sama tíma
og einhvern veginn fór allt í
vaskinn út af utanaðkomandi
aðstæðum sem ég réð ekki
við. En þetta var yndislegt
ævintýri sem ég á eftir að
geta sagt barnabörnunum frá í
framtíðinni,“ segir Ásdís Rán
með bros á vör.
„Svo er ég alltaf mjög stolt
af þyrluflugmannsréttindun-
um og þeim áfanga. Varðandi
fyrirsætuferilinn þá gæti ég
ekki verið stoltari, ég gerði
allt sem mig dreymdi um að
gera og átti frábæran feril. Sat
fyrir á öllum þeim forsíðum
sem mig dreymdi um, kom
fram í auglýsingaherferðum,
sjónvarpsþáttum og mörgu
öðru.“
Ekki góð í bókhaldi
Ásdís Rán segir að það sé
vissulega margt sem hún hefði
viljað sleppa.
„En þetta er hluti af skóla
lífsins held ég. Ég er aðallega
frumkvöðull og hönnuður.
Mín sterka hlið er að búa til
og skapa allt milli himins og
jarðar. Ég er hins vegar frek-
ar óskipulögð, áhyggjulaus og
mundi ekki treysta mér í eitt-
hvað sem snýst um bókhald.
Ég er miklu betri í að eyða
peningum,“ segir hún.
Snýst um að þora
Ásdís Rán sýnir gott fordæmi
þegar hún fylgir draumum
sínum og lætur þá rætast. Hún
er mikið fyrir að hvetja unga
frumkvöðla áfram. „Ég vil
hvetja fólk til að elta drauma
sína og taka áhættur í lífinu.
Framkvæma hugmyndir og
læra af reynslunni. Það er
ekkert nema jákvætt að mínu
mati. Það er fullt af fólki sem
velur það að lifa í ramma, gera
það sama alla daga og vinna
fyrir einhvern allt sitt líf. Það
er eitthvað sem ég gæti aldr-
ei gert en það er auðvitað líka
gott og þokkalega „öruggar“
aðstæður.
Það eru lög og reglur um að
fólk verði að vera með and-
litsgrímur hér í Búlgaríu og
verður væntanlega fram á
sumar. Ég hef reyndar sent
slatta af grímum til Íslands
en mér finnst frekar skrítið
að það séu ekki harðar reglur
um andlitsgrímur þar eins og
í öllum öðrum löndum, ekki
bara fyrir manneskjuna með
grímuna heldur fyrir alla í
kring. Mér finnst þetta for-
gangsatriði á tímum eins og
þessum,“ segir Ásdís Rán og
bætir við:
„Þetta hefur verið mjög erf-
iður tími fyrir mig en sólin
er að koma og þjóðfélagið að
lifna við. Vonandi verður þetta
búið fljótlega en þar til verð
ég í dvala eins og svo margir
aðrir.“ n
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is Ég gerði allt sem
mig dreymdi um
að gera.
Ásdís Rán situr aldrei auðum höndum. Nýjasta verkefni hennar eru handsaumaðar andlitsgrímur með blúndum og gimsteinum. MYND/BRYNJA
34 STJÖRNUFRÉTTIR 1. MAÍ 2020 DV