Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2020, Qupperneq 38
ARON EINAR GUNNARSSON
Aron Einar og eiginkona hans
Kristbjörg Jónasdóttir hafa
getið sér gott orð í viðskiptum
hér á landi síðustu ár. Þau
eiga um tíu prósenta hlut í
Bjórböðunum sem slegið
hafa í gegn á meðal erlendra
ferðamanna, Íslendingar hafa
einnig baðað sig í bjórnum
á Árskógssandi. Það var svo
undir lok síðasta árs sem
þessi öflugu hjón fóru að
framleiða húðvörur. AK Pure
Skin er húðvörulína þróuð
af þeim hjónum í samvinnu
við Pharmarctica. Húðvörur
sem henta bæði konum og
karlmönnum. Óhætt er að
segja að vörurnar hafi slegið í
gegn og verið mjög áberandi í
íslensku samfélagi.
EMIL HALLFREÐSSON
Þó að hér sé rætt um
Emil Hallfreðsson
landsliðsmann
í sambandi við
viðskipti þá er
óhætt að segja að
eiginkona hans
Ása Reginsdóttir
hafa verið allt í öllu
þegar kemur að
því að markaðssetja
vörur þeirra hjóna
hér á landi. Ása hefur
notið mikilla vinsælda
á samfélagsmiðlum með
vörurnar. Olifa olíurnar hafa
notið gríðarlegra vinsælda
og Allegrini og di Lenardo
rauðvínið hefur selst vel
í ÁTVR. Hjónin hafa átt í
fleiri viðskiptum hér á landi,
þau hafa flutt inn pasta frá
Ítalíu og Ása hefur framleitt
fallegar vörur fyrir börn í
gegnum fyrirtæki þeirra
Pom Poms & co. Hjónin hafa
lengi búið á Ítalíu og færa
nú Íslendingum gæðavörur
þaðan.
ÓLAFUR INGI SKÚLASON
Ólafur Ingi hefur ásamt
félögum sínum slegið í gegn
með smáforritið Sportabler.
Mörg íslensk íþróttafélög hafa
tekið smáforritið í gagnið
og hefur það fengið góðar
viðtökur. Íþróttafélög geta
komið öllum skilaboðum í
gegnum forritið til iðkenda
og foreldra. Allar æfingar á
komandi vikum liggja fyrir
og foreldrar eiga auðveldara
með skipulag. Þeir sem þekkja
til telja að forritið mun innan
tíðar fara á erlendan markað
en félög í Þýskalandi hafa
áhuga á að taka Sportabler til
notkunar.
RÚRIK GÍSLASON
Eftir að hafa orðið
heimsfrægur á
heimsmeistaramótinu í
Rússlandi hefur Rúrik slegið í
gegn í viðskiptum. Á síðasta
ári setti hann á markað
Glacier Gin sem hefur verið
áberandi síðan. Áfengið
hefur verið einkar vinsælt á
meðal ferðamanna. „Þetta
selst eins og heitar lummur
í Fríhöfninni. Útlendingurinn
og Íslendingurinn virðast
vera að taka mjög vel í þetta.
Þetta er náttúrulega íslenskt
vatn, flaskan er ótrúlega
flott og það eru mikil gæði
í þessu,“ sagði Rúrik þegar
ginið var komið á markað.
Hann hefur svo haldið áfram í
viðskiptum og er nú að hasla
sér völl á fatamarkaðnum
með fyrirtækið Bökk, sem
framleiðir peysur og húfur.
GYLFI ÞÓR SIGURÐSSON
Þessi besti knattspyrnumaður
Íslands hefur verið
nokkuð umsvifamikill í
íslensku viðskiptalífi, hann
hefur verið stórtækur á
fasteignamarkaðnum hér á
landi og fjallað hefur verið
um það. Þá er Gylfi eigandi
í Blikabergs ehf. sem er
útgerðarfyrirtæki í Sandgerði.
Fyrirtækið á hann ásamt föður
sínum Sigurði Aðalsteinssyni.
Þeir fiska sem róa en Gylfi
fylgist mikið með veiðunum
ef marka má liðsfélaga hans
í landsliðinu. „Gylfi er nú
nokkuð góður herbergisfélagi.
Það er helst þegar hann er
að fylgjast með fiskibátnum.
Að horfa á sjómennina veiða,
það er svolítið þreytt. Það er
hræðilegt, ekkert að frétta
þarna,“ segir Sverrir Ingi
Ingason um Gylfa Þór.
MYND/ANTON BRINK
38 SPORT 433 1. MAÍ 2020 DV
Á EFTIR BOLTA KEMUR BRASK
Hetjurnar á vellinum kunna líka
að koma hlutum í framkvæmd
þegar kemur að viðskiptum.
Í slenskir landsliðsmenn í fótbolta hafa látið að sér kveða í íslensku viðskipta-
lífi síðustu ár. Allt frá því að
framleiða húðvörur í að starfa
í sjávarútvegi, þá hafa leik-
mennirnir sem þjóðin hefur
fylgst með á skjánum gert það
gott í viðskiptalífinu. Knatt-
spyrnumennirnir ásamt harð-
duglegum eiginkonum sínum
hafa komið á fót fyrirtækjum
sem Íslendingar hafa tekið
vel, þegar mennirnir hætta að
elta bolta bíður þeirra vinna
frá níu til fimm.
Ofurparið Aron Einar og Kristbjörg fá góðar hugmyndir í Katar. MYND/ANDRI MARINÓ
Kátir voru karlar á kútter Haraldi, til
fiskiveiða fóru frá Akranesi. MYND/EYÞÓR
Rúrik fær sér í glas í fötum sem hann framleiðir. MYND/EYÞÓR