Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2020, Page 8
8 FRÉTTIR 15. MAÍ 2020 DV
SIGURÐUR REYNALDSSON HJÁ HÖGUM
AÐSTÆÐUR MINNA Á HRUNIÐ 2008
„Þessar aðstæður minna svolítið
á stöðuna í hruninu 2008, þar féll
gengið líka og má segja að verið sé
að fella gengið á kostnað neytenda
til að hjálpa útflutningi þjóðarinnar.
Þetta er eitthvað sem stjórnvöld
þurfa að svara fyrir,“ segir Sigurður
Reynaldsson, framkvæmdastjóri
þróunarsviðs Haga. Hann segir
kostnaðarverðshækkanir frá birgj-
um hafa verið miklar að undanförnu,
bæði frá innlendum og erlendum
birgjum.
„Gengisfall íslensku krónunnar
hefur verið mjög mikið á skömmum
tíma, sem hefur leitt til kostnaðar-
verðshækkana. Auk þess hefur
Covid-ástandið hækkað verð á
ákveðnum vöruflokkum, meðal
annars vegna þess að framleið-
endur hafa þurft að grípa til kostn-
aðarsamra aðgerða við uppskeru
eða framleiðslu og minna framboð
í ákveðnum vöruflokkum hefur leitt
af sér hærra verð. Það er jákvætt
að í augnablikinu hefur hægst á
verðhækkunum. Við vonum að það
sé kominn stöðugleiki á gengið svo
neytendur þurfi ekki að horfa upp á
frekari verðhækkanir.“
HJALTI ÓSKARSSON HJÁ HAGSTOFUNNI
HAGSTOFAN MEÐ PUTTANN Á PÚLSINUM
„Ef við tökum bara mat síðustu tvo
mánuði. Það er 1,3 prósenta hækkun
á mat og drykkjarvöru á milli apríl
og mars og ef við tökum breytingu
frá febrúar fram í apríl er breytingin
1,8 prósent,“ segir Hjalti Óskarsson,
sérfræðingur hjá Hagstofu Íslands.
Hann segir stofnunina ekki hafa
orðið vara við að almennar hækkanir
næmu 10-20 prósentum, en dæmi er
um slíkar hækkanir hjá verslunum á
síðustu vikum.
Samkvæmt upplýsingum frá Hag-
stofunni geta umtalsverðar verð-
hækkanir á neysluvöru, eðlilega,
haft áhrif á vísitölu neysluverðs.
Hins vegar vegi þá þyngra almennar
hækkanir en ekki hækkanir á ein-
staka vörum. Hagstofan fær upp-
lýsingar um verð ýmist frá söluað-
ilum, stundum koma upplýsingarnar
af heimasíðum söluaðila og í öðrum
tilvikum er falast eftir upplýsingum
með símtölum frá Hagstofu.
MYND/AÐSEND
NÝLEGAR VERÐHÆKKANIR
Nokkuð hefur borið á því að fyrirtæki hafa hækkað verð hjá sér og rétt-
lætt það með vísun í gengisbreytingu. Getur slík hækkun verið nokkuð
mikil og er þá einkum miðað við 10 prósent hækkun eða meira. Hér fyrir
neðan má líta nokkur nýleg dæmi sem athygli hafa vakið á samfélags-
miðlum:
Hókus Pókus stóll hjá Ólafíu og Óli-
ver hækkaði úr 29.990 upp í 47.990
krónur.
Garminbúðin hækkaði verð á úri
um 10.000 krónur.
Elko hækkaði verð á rafmagns-
hlaupahjóli um 10.000 krónur.
Hókus pókus stóll hjá Ólafíu og Óliver. MYND/SKJÁSKOT
MYND/SKJÁSKOT
Margir velta fyrir sér hagkvæmum
leiðum til að gera sér glaðan dag
eða kaupa sér nauðsynjavörur. Þá
eru eftirfarandi Facebook-hópar
og afsláttarleiðir sniðugar að hafa
í huga.
Facebook-hópar
• Sparnaðar tips
• Fjármálatips
• Vertu á verði – eftirlit með
verðlagi
Tilboð fjarskiptafyrirtækjanna
• 2f1 hjá Nova
• 2f1 hjá Símanum
• VIP tilboð hjá Vodafone
Aðrar tilboðsleiðir
• Hópkaup
• Aha.is
• Einkaklúbburinn
• 2Fyrir1.is
• Afslættir fyrir námsmenn:
student.is
• Afslættir fyrir eldri borgara
og öryrkja: Kannið afslætti hjá
söluaðila/þjónustveitanda.
GOTT AÐ HAFA Í HUGA
MATUR OG DRYKKUR HÆKKAÐI MEST
Verðbólga var 2,2% í apríl sem er undir
verðbólgumarkmiðum Seðlabankans.
Vísitala hækkaði um 0,48% frá fyrri
mánuði (apríl).
HÆKKANIR Í APRÍL
Mat- og drykkjarvara 1,37%*
Brauð- og kornvörur 0,90%
Kjöt 0,60%
Ávextir 5,06%
Grænmeti 9,14%
Húsgögn 2,50%
Stór heimilistæki 3,27%
Lyf 3,63%
Flugfargjöld innanlands 18,00%
Bílar 2,29%
Bjór 2,38%
LÆKKANIR Í APRÍL
Bensín og olíur -4,54%*
Föt -0,65%
Borðbúnaður, glös, eldhús- og heimilsáhöld -4,47%
*Vegur þyngst til hækkunar (+0,2%)
*Vegur þyngst til lækkunar á vísitölunni (-0,15%)
Við vonum að það sé kominn
stöðugleiki á gengið svo neyt-
endur þurfi ekki að horfa upp
á frekari verðhækkanir.
Almennar
hækkanir
vega þyngra
en hækkanir á
einstaka vörum.
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt