Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2020, Qupperneq 4
4 27. mars 2020FRÉTTIR
Helvítis fokkíng bangsinn
S
varthöfði sá fyrir sér betra
og einfaldara líf með
auknum fjölda fólks í sótt-
kví, hertara samkomu-
banni og almennri uppsprettu
kærleiks í samfélaginu. Loks-
ins mætti slaka á, taka sér frí frá
lífsgæðakapphlaupinu og vera í
núinu. Taka sér frí frá því að þurfa
að vera sætur, fínn, í góðu formi
og frábær manneskja. Eyða tíma,
stundum aðeins of miklum tíma,
með þeim sem maður elskar og
finna leiðir til að hafa ofan af fyrir
sér og sínum í nærumhverfinu.
Einfaldara líf án pressu.
En nei, auðvitað þurftum við
að eyðileggja það. Svarthöfða
hreinlega blöskrar hvað við
getum verið asnalega vitlaus
stundum. Svarthöfða finnst í
raun meiri pressa fólgin í að vera
heima í sjálfskipaðri sóttkví en
að lifa eðlilegu lífi án COVID-19.
Svarthöfði á að gera heimaæf-
ingar og reyna að hafa uppi á
ketilbjöllum sem ganga kaup-
um og sölu á svarta markað-
inum eins og sjaldgæfasta
ródíum. Svo þarf hann
líka að hreyfa sig úti,
sama hvernig veðrið er.
Svarthöfði á líka að hafa
þolinmæði til að kenna
börnum allt milli
himins og
jarðar – hvort
sem það er
stjörnufræði eða
bakstur. Þetta
þarf hann
að gera
samvisku-
samlega hálf-
an daginn, svo börnin fari ekki
út af sporinu og lendi í bölvuðu
rugli. Svarthöfði þarf líka að vera
myndarlegur í eldhúsinu, elda
úr því sem til er, elda hollt til að
berjast gegn veirunni,
láta sykurinn eiga sig
og forðast alla matar-
sóun eins og heitan
eldinn. Hann þarf
að hægelda, hæg-
steikja, hægsjóða
gjörsamlega allt. Svo á
Svarthöfði að vera þakk-
látur fyrir allt og ekkert.
Hann má alls ekki fest-
ast í jogginggallanum
allan daginn heldur
taka sig til. Svo þarf
hann náttúrlega að
vinna, guð hjálpi okk-
ur! Helst 150 prósent
vinnu því maður kemur
svo miklu í verk heima. Og til að
toppa þetta allt saman er sam-
félagið að krefjast þess að hann
setji fokkíng bangsa út í glugg-
ann. Bangsa!
Svarthöfði er svo bugaður að
hann kemur engu í verk. Hann
kann ekkert í stjörnufræði og er
arfaslakur kokkur. Hann skilur
ekki hvað ketilbjalla er en finnst
hann tilneyddur að eyða stór-
fé í slíkt apparat – því það eiga
það allir. Svarthöfði endar núna
flesta daga eins og haugur uppi í
sófa, með snakkslóðina á eftir sér
og tómatsósu í munnvikunum
eftir að hafa boðið heimilisfólk-
inu upp á pulsur með öllu, sjö-
unda daginn í röð, og hugsar um
helvítis masókistann sem fannst
þessi bangsar-í-glugga hugmynd
sniðug. Svarthöfði mun finna þig
einn daginn … n
Svarthöfði
Það er
staðreynd að…
Megnið af rykinu heima hjá þér
samanstendur af dauðum húðfrumum
þínum.
Jójóið er næstelsta leikfang í heimi á
eftir brúðunni.
Orðið pasta þýðir deig á ítölsku.
Flestar bakteríur í líkamanum
leynast á milli tánna.
Hnéskeljar myndast ekki fyrr en við
náum sex ára aldri.
Hver er
hún
n Hún er fædd í
júní árið 1961.
n Hún ólst upp á
Siglufirði, yngst sex
systkina.
n Hún starfaði sem sérfræðingur
við Háskólasjúkrahúsið í Lundi í
Svíþjóð á árunum 1993 til 2002.
n Hún er fyrsta konan sem starf-
aði sem þyrlulæknir Landhelgis-
gæslunnar.
n Hún er jafnframt fyrsta konan
sem gegnir núverandi starfi, sem
hún tók við árið 2018.
SVAR: ALMA MÖLLER
„Ég mæli með þessu
ef ykkur leiðist“
Stefán og Andrea létu faraldurinn ekki stöðva hjónavígsluna
L
eikaraparið Stefán Benedikt Vilhelmsson og
Andrea Ösp Karlsdóttir gengu í hjónaband á
dögunum í óhefðbundinni athöfn, í skugga
COVID-19. Parið tilheyrir Leikhópnum Lottu og
hefur verið í sambandi í þrjú ár en þekkst í um tuttugu
ár. Í samtali við DV segir Stefán að athöfnin hafi verið
ótrúlega falleg, að vel hafi tekist til þótt nauðsynlegt
hefði verið að breyta áætlunum töluvert vegna kórónu-
veirunnar.
Stefán segir hugmyndina að hjónavígslunni hafa
komið upp þegar þau voru í Kína í fyrrahaust, ekki
löngu áður en faraldurinn hófst.
„Við fengum hugmyndina fyrst um hvað okkur lang-
aði til að gera. Það var ekkert hefðbundið bónorð, held-
ur var þetta sameiginleg ákvörðun,“ segir Stefán.
„Við ætluðum að vera komin út til Mexíkó á þess-
um tíma, í góða afslöppun, með millistopp í Banda-
ríkjunum. Við vorum líka búin að sérpanta hringa frá
gullsmiðju. Þá lenti gullsmiðurinn í bölvuðum vand-
ræðum, því sá sem steypir gullhringana fyrir hann
var settur í sóttkví. Síðan var öllum flugferðum aflýst,“
bætir Stefán við, og því gekk það ekki þrautalaust að
skipuleggja þennan stærsta dag í lífi margra.
Að sögn Stefáns var COVID-19 faraldurinn visst lán
í óláni, enda fór athöfnin vel fram og varð að lítilli og
notalegri athöfn, sem varð jafnvel einstakari og nánari
fyrir vikið eftir breytt skipulag. Í upphaflega planinu
ætluðu þau Stefán og Andrea ekki að ljóstra neinu
upp um brúðkaupið fyrr en þau væru komin í þaul-
skipulagða brúðkaupsferð í Cancún í Mexíkó, en þar
sem allt fór úr skorðum út af COVID-19 gengu turtil-
dúfurnar í það heilaga hér heima á Íslandi. Þau opin-
beruðu hjónabandið á Facebook fyrir nokkrum dögum
og tekur Stefán fram að enginn hafi vitað af þessu.
„Það voru engir gestir viðstaddir, bara við og
stelpurnar okkar. Við létum ekkert stoppa okkur, held-
ur náðum við að aðlaga okkur nýjum og breyttum að-
stæðum. Mestu máli skipti hvað við vorum að gera,
ekki hvernig. Ég mæli sterklega með þessu ef ykkur
leiðist,“ segir Stefán hress um hjónavígsluna.
„Að lokinni vel heppnaðri athöfn skelltum við okkur
svo með stelpurnar í brúðkaupsferð um allt Ísland á 30
mínútum með FlyOver Icleland en það bauð upp á enn
frekari tilfinningasveiflur því við komu þangað þurfti
að fresta „fluginu“ vegna tæknibilunar,“ segir Stefán, í
skýjunum með ástina, lífið og tilveruna á tímum kór-
ónuveirunnar. n
„Mestu máli
skipti hvað
við vorum að gera,
ekki hvernig.
LJ
Ó
SM
Y
N
D
: R
A
G
N
H
EI
Ð
U
R
A
R
N
A
R
D
Ó
T
TI
R
Nýgift Andrea og Stefán
tilheyra bæði Leikhópnum Lottu.
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is