Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2020, Page 40
27. mars 2020
13. tölublað 111. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Karlmenn
dansa
ekki!
Harpa / Skeifan 6 / 5687733
Styðjum íslenska hönnun!
15% afsláttur af allri íslenskri gjafavöru fram til 5. apríl,
bæði í verslunum okkar og vefverslun. www.epal.is
#minnhönnunarmars
Jesús, djöfullinn og Björn
M
ikil leynd hvíldi yfir tökum nýjustu kvikmynd-
ar bandaríska leikstjórans Terrence Malick, en
tökur fóru að stórum hluta fram hér á landi og
á Ítalíu. Eftirvinnsluferli myndarinnar er enn
í fullum gangi, þrátt fyrir faraldurinn sem nú geisar,
en tökur fóru fram sumarið 2019. Afraksturinn ber
heitið The Last Planet og fjallar um viðburðaríka
ævi Jesú Krists.
Íslenska leikaranum Birni Thors bregður fyrir í
myndinni í ótilgreindri rullu en helstu leikarar eru
Sir Ben Kingsley, Joseph Fiennes, Aidan
Turner, Douglas Booth og ungverski
leikarinn Géza Röhrig, sem fer með
burðarhlutverkið. Þar að auki fer
Óskarsverðlaunahafinn Mark
Rylance með hlutverk kölska,
sem sýndur verður í fjórum mismunandi gervum.
The Last Planet er sögð taka djarfan og drunga-
legan vinkil á þekktar dæmisögur um Krist úr
Biblíunni og verður myndin útfærð með
ljóðrænum brag, líkt og fyrri verk leik-
stjórans. Á löngum ferli hefur Malick
hlotið gífurlegt lof fyrir verk sín, hvað
mest fyrir kvikmyndirnar Badlands, The
Thin Red Line og The Tree of Life, sem
skartaði meðal annarra leikurunum Brad
Pitt og Sean Penn.
Ekki er enn vitað hvort fram-
vinda COVID-19 hafi áhrif á út-
gáfu kvikmyndarinnar, en að
öllu óbreyttu eru sýningar fyrir-
hugaðar næsta haust.
Dansa til
að gleyma
S
amfélagsmiðillinn Tik
Tok hefur vakið gríðar-
lega lukku hjá yngri
kynslóðinni, sérstak-
lega hjá krökkum á aldrinum
8 til 15 ára, en aðaltrendið á
miðlinum er stutt dansmynd-
bönd. Aldurssamsetning not-
enda á Íslandi hefur breyst
lítið eitt eftir að kórónaveiran
setti allt úr skorðum og nota
áhrifavaldar á aldrinum 25 og
40 nú miðilinn grimmt til að
stytta sér stundir. Í þeim hópi
eru til að mynda fyrrverandi
fegurðardrottningarnar Tanja
Ýr Ástþórsdóttir og Manuela
Ósk Harðardóttir, sem og
Ernuland, sem berst fyrir
bættri líkamsímynd landans.
Samkvæmt erlendum miðl-
um borgar Tik Tok áhrifavöld-
um 500 dollara, um 70 þúsund
krónur, fyrir að ganga til liðs
við miðilinn en óvíst er hvort
það á við um íslensku áhrifa-
valdana.
S
úkkulaðiframleiðendur
víða um heim hafa
opnað dyr sínar á staf-
rænu hátíðinni #Stay-
HomeWithChocolate. Hátíðin
hófst 24. mars og lýkur 28. mars.
Öllum viðburðum hefur verið
streymt beint á Instagram. Full-
trúi Íslands á hátíðinni er Om-
nom. Kjartan Gíslason, einn
af stofnendum Omnom, segir
í samtali við Forbes að sala á
súkkulaði hafi hrunið í skugga
kórónuveirufaraldurs og því
fagni hann framtakinu.
Stafræn súkkulaðiveisla