Íþróttablaðið - 01.08.1977, Qupperneq 7
i blaðinu
Hann Guðmundur Annað efni:
Allir sem fylgzt hafa með frjálsum íþróttum hérlendis á
undanförnum árum þekkja Guðmund Þórarinsson,
hinn óþreytandi og duglega þjálfara (R-inga. Hefur
starf Guðmundar vakið verðskuldaða athygli, og þá
ekki sízt unglingaþjálfun hans, þar sem lagður hefur
verið grunnurinn að frjálsíþróttastórveldi ÍR. íþrótta-
blaðið spjallar nú við Guðmund Þórarinsson og segir
frá störfum hans.
Sigur — Sigur — Sigur
Þeir sem viðstaddir eru leiki belgíska knattspyrnu-
liðsins Standard Liege, hrópa gjarnan framanskráð
einum rómi. Sá er verið er að hylla er íslendingurinn
Ásgeir Sigurvinsson, sem nú er tvímælalaust kominn í
röð fremstu knattspyrnumanna Evrópu. Kom snilli
hans vel fram í landsleikjum íslendinga við Belgíu-
menn og Hollendinga á dögunum, og þrátt fyrir að í
liðum þessara þjóða væri hver öðrum betri, var það
samt sem áður Ásgeir Sigurvinsson sem vakti mesta
athygli.
Sviðið er Diisseldorf
Nýlega fór fram í Dusseldorf í Vestur-Þýzkalandi hin
svonefnda heimsbikarkeppni í frjálsum íþróttum —
sennilega mesti frjálsíþróttaviðburður þessa keppn-
istímabils. Þar voru stórstjörnur á ferð, en ekki fór þó
allt eins og ætlað var, svo sem lesa má í grein
íþróttablaðsins um þetta mikla mót.
Heldur „húsbyggingunni“ áfram
Vilmundur Vilhjálmsson, spretthlaupari úr KR, er einn
þeirra ungu frjálsíþróttamanna sem vakti mikla athygli
í sumar. Vilmundur er harður keppnismaður sem
stefnir á toppinn, er harður við sjálfan sig, og gerir sér
grein fyrir því að leiðin að settu marki næst ekki
fórnalaust. íþróttablaðið birtir nú viðtal við Vilmund,
þar sem hann fjallar um feril sinn og framtíðaráform.
Tom Watson
Einn bezti kylfingur í heimi um þessar mundir er
Bandaríkjamaðurinn Tom Watson. Hann fékk áhuga
á íþróttinni er hann var aðstoðarmaður föður síns,
sem var áhugagolfleikari. I sumar vann Watson það
frækilega afrek að sigra í brezku golfkeppninni, en
þar voru meðal þátttakenda flestir beztu golfleikarar
heimsins.
Endurhæfingin
Páll B. Helgason, sérfræðingur í orku- og endurhæf-
ingarlækningum ritar mjög athyglisverða grein í
Iþróttablaðið að þessu sinni um endurhæfingu fatl-
aðra og þátttöku þeirra í íþróttum. Nefnist grein Páls:
„Endurhæfingin hefur náð hátindi þegar hinn fatlaði
fer að taka þátt í íþróttum."
Meðal annars efnis í íþróttablaðinu að þessu sinni má
nefna grein í greinaflokknum ,,0tilíf“, þar sem fjallað
er um byssuíþróttina og veiðimennsku. Greint er frá
fyrsta fundi sambandsstjórnar ÍSÍ, og þátttöku ís-
lendinga í Stoke Mandvilleleikunum í Bretlandi. Og
Iþróttablaðið bregður einnig upp svipmyndum í litum
frá Reykjavíkurleikunum í frjálsum íþróttum.
Forsíðan:
Óþarfi mun að kynna kappann sem mynd er af á for-
síðu blaðsins, Hrein Halldórsson — Strandamanninn
sterka. Myndin var tekin á Reykjavíkurleikunum er
Hreinn sigraði marga af beztu kúluvörpurum heims í
keppni.