Íþróttablaðið - 01.08.1977, Side 19
spurðum Guðmund hvað þyrfti að breytast
hér á landi til að hægt væri að búast við
fleiri toppmönnum og betri árangri.
— Frumskilyrðið er og verður náttúru-
lega það að menn æfi mikið og reglulega.
En það þarf fleira að koma til. Við þurfum
nauðsynlega á betri innanhússaðstöðu að
halda. Hún er mjög takmörkuð og bágborin
miðað við það sem mætti kalla lágmarks-
aðstöðu. Eins og er held ég að engin plön
séu um að byggja viðunandi aðstöðu fyrir
frjálsíþróttir í landinu. Við þurfum einnig
fleiri þjálfara og betur lærða. Þá þurfum við
að efla og auka samvinnu innan alls þess
hóps sem vinnur að frjálsíþróttamálum og
stundar frjálsar íþróttir. Loks verðum við að
framlengja okkar stutta sumar með því að
fara til annarra landa áður en sumar byrjar
hér og eftir að því er lokið hér, þ.e. í apr-
íl/maí og í september. Það er fullt af
keppnum hingað og þangað erlendis lengi
eftir að við verðum að hætta keppni hér, og
nauðsynlegt er að vera ytra í smá tíma áður
en keppnirnar byrja fyrir alvöru.
Eitt af því sem er nauðsynlegt að
breytist er fjöldi þjálfara. Það háir starfinu
mjög í dag að þeir eru alltof fáir. Við þurf-
um að fjölga þjálfurum verulega til að hver
þeirra geti einbeitt sér að minni hópum og
miklu afmarkaðri verkefnum. Það gæti
hjálpað okkur verulega til að ná fram meiri
framförum, því um leið og fleiri menn
kæmu inn í starfið myndu þeir skipta því á
milli sín. Þannig er háttað hjá fR að ég er
einn með alltof stóran hóp. Er það ekkert
vafamál að ef ég fengi 1—2 menn með mér í
ÍR þá mundum við skipta þeim mikla fjölda
sem þar er á milli okkar. Það er engum
akkur í að vera að reyna að gína yfir öllum
og reyna að fást við alla. Það hefur ekki
verið mín meining, maður hefur einungis
orðið að gera þetta, sagði Guðmundur og
það var alvara og sannfæring í orðum hans.
Fjölmiðlar mikilvægir
Þeir eru fjölmargir sem finna fjölmiðlum
ýmislegt til foráttu, og má segja að íþrótta-
menn og forystumenn íþróttamála hafi
marga söguna að segja í því sambandi, því
ósjaldan geta menn ekki fellt sig við það
sem fært er í letur í fjölmiðlunum, sérstak-
lega ef það varðar þá sjálfa. Þar sem
íþróttablaðið hefur oft spurt fólk um af-
stöðu þess til fjölmiðla var Guðmundur
spurður um það einnig.
— Fjölmiðlar hafa geysimiklu hlutverki
að gegna, að mínu viti, og ég verð að segja
að mér finnst þeir oft ekki standa undir sínu
hlutverki. Þeir eru afskaplega fljótir að geta
um neikvæðar hliðar og oft sér maður að
vinnubrögðin eru óvönduð. Þetta gerist
bæði hér og erlendis.
Gagnrýni í umfjöllun þeirra um íþróttir
er oft af lítilli þekkingu og afar sjaldan hef-
ur maður séð jákvæða gagnrýni. Stundum
er gagnrýnin byggð á misskilningi, stundum
á atvikum sem eru undantekningar í starf-
inu. Og oft er málum slegið upp án þess að
viðkomandi séu spurðir beint um málsat-
vik, en í staðinn leitað álits óviðkomandi
aðila. Fjölmiðlar hafa þó stundum reynt að
taka sig á og er það kærkomið og til virð-
ingar. Þeir hafa jú líka hjálpað við að auka
áhuga fólks fyrir hinum ýmsu íþróttagrein-
um og það er einnig vei. Ep það sem ég held
sé nauðsynlegast í sambandi við fjölmiðla
og íþróttir er að góð samvinna ríki þar ætíð
á milli beggja aðila. Báðum er það fyrir
beztu og báðum til framdráttar.
Svo mörg voru þau orð, gagnleg umræð-
unni um fjölmiðla og íþróttir.
Giftur frjálsíþróttum!
Það er skoðun þess sem þessar línur ritar
að þeir sem taka að sér einhvern starfa verði
að einhverju leyti að starfinu og trúlofist
starfinu, ef þannig mætti að orði komast.
Nú er það þannig að Guðmundur hefur
varið geysimiklum tíma til frjálsíþróttanna
og er það næstum hans líf, að því er kunn-
áttumenn segja. Allan tímann er hann að
einhverju leyti að snúast í hinu og þessu sem
varðar þjálfun og málefni frjálsíþrótta-
deildar ÍR en mikið hefur Guðmundur
einnig lagt félagsstarfinu að mörkum, að
sögn. Eru margir á því að fórnfýsi
Guðmundar hafi gengið út fyrir það sem
nokkur annar maður mundi geta lagt á sig í
þessum efnum, en slík ummæli ættu að bera
óbilgirni persónuleikans góðan vott. Að
lokum var Guðmundur spurður hvort segja
mætti að hann væri ekki beint trúlofaður
frjálsíþróttunum. heldur miklu fremur gift-
ur þeim. Við þessari spurningu hló
Guðmundur í kampinn og svaraði á sama
máta og spurt var: „Það má kannski taka
svo til orða og segja að ég sé giftur frjáls-
íþróttinni. Alla vega hafa þær komið í stað
konunnar!!“
PÓSTKRöFU-
_
FRÍMERRI í STAÐ
FERÐAR í BÆINN
LEVÍS
GALLABUXUR
SNID 522
Vinsamlegast sendið mér Levi’s gallabuxur í beirri stærð
sem merkt er við.—
MITTIS MÁL 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 36
Q Q tn LL LU CC * 34
36
NAFN:
HEIMILISF:
laugavegi 89-37
hafnarstræti 17
10353 12861 13303