Íþróttablaðið - 01.08.1977, Blaðsíða 24
Úr félagsheimili Standard Liege,
stórar myndlr hanga uppi af leik-
mönnum liðsins og á þessari
mynd sjást 5 af máttarstólpum
liðsins, Nikel, frá V-Þýzkalandi,
Visnyei frá Ungverjalandi, Sigur-
vinsson frá íslandi og belgísku
landsliðsmennirnir Piot og Ren-
að var athyglisvert að fylgjast
með íslenzka landsliðinu í
knattspyrnu í leikjum þess í
Belgíu og Hollandi á dögunum.
Árangur landsliðsins var í sjálfu sér
svipaður og reikna hefði mátt með, er
frammistaða eins af íslenzku landsliðs-
mönnunum í þessum leikjum var öll
önnur, en jafnvel þeir bjartsýnustu
höfðu búizt við. Ásgeir Sigurvinsson átti
þarna tvo sannkallaða stórleiki, hann
var allt í öllu hjá íslenzka landsliðinu.
Hann var íslenzka landsliðið að hálfu
leyti — kannski rúmlega það.
Fyrir mörgum árum sá undirritaður
leik í þriðja flokki, lið ÍBV lék þá gegn
jafnöldrum sínum úr Víkingi. Einn
maður á vellinum vakti sérstaka athygli
viðstaddra. Hann tók öll útspörk Vest-
mannaeyjaliðsins, hann sá um innköst-
in, aukaspyrnurnar og hornin. Að sjálf-
sögðu var hann fyrirliði liðs sins og þó
Víkingarnir reyndu að gæta hans
reyndist það þeim erfitt, Ásgeir Sigur-
vinsson var einfaldlega of góður fyrir þá.
Það eru sennilega 7 ár síðan þetta var
og aðstæður eru breyttar. Ásgeir Sigur-
vinsson lék að vísu ekki sama hlutverkið
með landsliðinu og með þriðja flokki
ÍBV um árið — en allt að því. Eyjapeyj-
inn er nú orðinn 22ja ára og sannkallað
stórveldi í evrópskri knattspyrnu. Hann
vekur athygli hvar sem hann fer með
sínu þekkta liði Royal Club Standard frá
Liege í Belgíu. Með íslenzka landsliðinu
var hann sá sem byggði upp og skipu-
lagði, var heilinn í öllum leik liðsins. Það
var ekki að undra þó hollensk og belgísk
blöð fjölluðu mikið um þennan snjalla
leikmann, sem er orðinn vel kunnur í
löndum þeirra.
Belgía 4 —
Sigurvinsson 0
í einu blaðanna mátti lesa að Belgía
hefði unnið Sigurvinsson með 4 mörk-
um gegn engu og þótti þeim mikið koma
til frammistöðu Ásgeirs. Það var hann
sem mest rúm fékk í blöðum ytra, jafn-
vel meira en mestu uppáhaldsleik-
mennirnir í viðkomandi landsliðum.
Ruud Krol lét hafa það eftir sér að
Sigurvinsson væri sá leikmaður. sem
Ajax vantaði og ætti þessi fyrirliði silf-
urliðsins frá síðustu Heimsmeistara-
keppni að vita hvað hann segir. Var
fyrirsögn þessa efnis þanin yfir 6 dálka í
einu af belgísku stórblöðunum og fyrir
neðan var birt stór mynd af þeim
bræðrum Ásgeir og Ólafi og sagt eitt-
hvað á þá leið að þó þeir séu ekki alveg
eins í útliti þá fari það ekki á milli mála
að þeir séu í sömu fjölskyldu.
Halda mætti áfram að telja upp um-
sagnir um Ásgeir í belgískum og hol-
lenskum blöðum fyrir þennan leik.
Einnig var mikið talað við Ásgeir fyrir
leikinn og kunnasta knattspymutímarit
Hollands birti opnumynd í litum af Ás-
geiri og var myndin tekin á Laugarvatni
í sumar. í stað þess að velta hollenskum,
frönskum og flæmskum frösum um
snilli Ásgeirs yfir á íslenzku skulum við
24