Íþróttablaðið - 01.08.1977, Blaðsíða 38
p
eftír að reí
Spjallað
við
sprettharðasta
íslendinginn,
Vilmund
Vilhjálmsson
Einn af hápunktum Reykjavíkurleik-
anna í frjálsum íþróttum í sumar var
keppni í 100 metra hlaupi. Þar var
meðal keppenda þeldökkur Banda-
ríkjamaður, sem kominn var langa leið að
til þess að spretta úr spori
og sýna snilli sína á Laugardalsvellinum.
Blökkumaður þessi hafði náð mjög góðum
árangri í 100 metra hlaupi, hlaupið á 10,1
sek. fyrr í sumar og skipað sér þar með í röð
fremstu spretthlaupara í heiminum. Var því
að vonum að hann var álitinn mjög sigur-
stranglegur í keppninni á Laugardalsvellin-
um, þótt vitanlega hefðu íslendingar
nokkra von að okkar bezti maður,
Vilmundur Vilhjálmsson, myndi velgja
honum undir uggum.
Hlaupararnir röðuðu sér upp við rás-
markið. Bandaríkjamaðurinn fremur lág-
vaxinn og kvikur í hreyfingum, Vilmundur
líkari kastara sem villst hafði að rásmark-^
inu, en spretthlaupara, hávaxinn og vöðva-
stæltur. Svo reið skotið af. Aðeins á fyrstu
metrunum var vafi um hvernig fara myndi.
Síðan stikaði Vilmundur fram úr blökku-
manninum, löngum fjaðurmögnuðum
skrefum og í markinu skildu 3 sekúndubrot
að, sem er mikill munur í svo stuttu hlaupi.
Frækilegt afrek hjá Vilmundi, sem sýndi að
38