Íþróttablaðið - 01.08.1977, Side 59
f r
Fréttir frá ISI
^ sl. vori voru liðin rétt 50 ár frá því
fyrsta Fimleikamót íslands fór
fram. Fyrsti fimleikameistari ís-
lands varð Magnús Þorgeirsson.
Fimleikasambandið efndi til samsætis af
þessu tilefni og við það tækifæri var Magn-
ús sæmdur fyrsta gullmerki Fimleikasam-
bandsins. Ásgeir Guðmundsson form. FSÍ
ávarpaði Magnús og konu hans, rifjaði upp
nokkur atriði úr sögu fimleikanna á árunum
1920—1940, en á þessu tímabili var mikil
gróska í fimleikaiðkun hér á landi og fim-
leikahópar, sem héldu utan til sýninga,
hlutu lofsamlega dóma. Jafnframt þakkaði
formaður FSÍ Magnúsi dyggilegan stuðning
og framlag við að halda uppi merki fin>
leikanna, ekki aðeins sem góður iðkandi,
heldur einnig með ýmiskonar stuðningi á
síðari árum.
Á efri myndinni er Magnús ásamt fim-
leikameisturum íslands 1977, talið frá
vinstri: Magnús Þorgeirsson, Karólína Val-
týsdóttir, Björk, Hafnarf.; Berglind Péturs-
dóttir, Gerplu, Kópav., og Sigurður T.
Sigurðsson KR.
Á neðri myndinni þakkar Magnús þann
heiður, sem honum var sýndur en með
honum á myndinni eru f.v.: Ástbjörg
Gunnarsdóttir varaform. FSl, Ásgeir
Guðmundsson form. FSl og Ingibjörg J.
Kaldal eiginkona Magnúsar.
Fyrsti fundur
sambands-
stjórnar ÍSÍ
Iþróttaþingi 1976 var gerð sú
Æ% skipulagsbreyting á starfi fþrótta-
sambandsins. að eftirleiðis er sam-
B M bandsstjórn skipuð formönnum
héraðssambandanna og sérsambandanna
auk framkvæmdastjórnar ÍSÍ. Koma fundir
sambandsstjórnar í stað funda sambands-
ráðs og formannafunda, er áður voru
haldnir. Sambandsstjórnin er æðsti aðili
milli íþróttaþinga og hún skal halda fundi
sína árlega að vori til.
Fyrsti fundur nýskipaðrar sambands-
stjórnar var haldinn 23. apríl sl. vor. Mörg
mál lágu fyrir fundinum, þ.á m. skipting á
útbreiðslustyrk ISÍ til sérsambandanna að
upphæð 9.0 millj. króna, skipun Ólympíu-
nefndar fyrir næsta Ólympíutímabil,
skýrsla Trimm-nefndar kjörinni af íþrótta-
þingi 1976 og rætt var all ýtarlega um
skýrslugerðir félaga og félagsmanna- og
iðkendatal. Einnig ræddi fundurinn hinn
mikla og sívaxandi ferðakostnað og hvernig
væri hugsanlegt að lækka hann.
Myndin á síðunni hér til hliðar er af full-
trúum á þessum fyrsta fundi Sambands-
stjómar ÍSÍ, en þar voru mættir fulltrúar
nær allra þeirra samtaka, er skipa fulltrúa í
sambandsstjórn.
59