Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 5

Íþróttablaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 5
i blaóinu íþróttafjölskyldan: íþróttablaðið brá sér í heimsókn til íþróttafjölskyld- unnar Ágústu Þorsteinsdóttur, Guðjóns Ólafssonar og Guðnýjar Guðjónsdóttur. Ágústa var á sínum tíma ókrýnd sunddrottning íslands og setti hvert íslands- metið af öðru í sundi. Guðjón var landsliðsmarkvörð- ur í handknattleik og nú fetar dóttirin, Guðný, ífótspor móður sinnar og er orðin ein fremsta sundkona landsins. Hreinn Halldórsson Hinn frábæri frjálsíþróttamaður Hreinn Halldórsson, hefur átt við meiðsli að stríð að undanförnu, en er nú að ná sér á strik og segir í viðtali við íþróttablaðið að hann vonist eftir því að geta orðið meðal þátttakenda á Evrópumeistaramótinu sem fram fer í Prag íTékkó- slóvakíu í sumar. Er vonandi að Hreinn nái sér á strik því víst má telja að hann verði í fremstu röð í Prag ef hann gengur sæmilega heill til skógar. Ingi Björn skrifar: Ingi Björn Albertsson skrifar um menn og málefni knattspyrnuíþróttarinnar eins og í síðasta blaði. Fjall- ar Ingi Björn aðallega um landsleikinn við Dani á dögunum og um 1. deildar keppni íslandsmótsins. Kemur fram í grein hans m.a. það álit að óþarfi sé að sækja leikmenn til annarra landa til þess að leika landsleiki. Segir Ingi Björn að það séu aðeins tveir leikmenn sem leika erlendis sem séu sjálfsagðir í landsliðið, þeir Ásgeir Sigurvinsson og Jóhannes Eðvaldsson. Ragnar Ólafsson skrifar: Ftagnar Ólafsson, einn fremsti íslenzki kylfingurinn mun í sumar skrifa greinar um íþrótt sína fyrir íþróttablaðið og birtist fyrsta grein hans að þessu sinni. í henni fjallar Ragnar almennt um stöðu golf- íþróttarinnar og það sem framundan er hjá íslenzkum kylfingum á þessu keppnistímabili. Þeir gömlu — frægu: Þeir lögðu heiminn að fótum sér, nefnist grein um nokkra fræga knattspyrnukappa er mikið bar á fyrir um það bil áratug. Má þar nefna menn eins og Uwe Seeler, Jashin og fleiri. Þetta voru kappar sem komu oft við sögu þegar fjallað var um afreksíþróttamenn þessa tímabils, og vafalaust muna margir eftir þeim enn þann dag í dag. Akureyri Iþróttablaðið kynnir nú íþróttamannvirki og íþrótta- aðstöðu á Akureyri og er það hinn kunni íþróttafröm- uður þar, Hermann Sigtryggsson sem aðstoðaði blaðið við þessa grein. íþróttir hafa jafnan staðið í miklum blóma í höfuðstað Norðurlands, og mikið hefur verið þar gert til þess að hlú að íþróttaæskunni og skapa henni aðstöðu. Heimsmeistarakeppnin: Heimsmeistarakeppninni í Argentínu er nú lokið með sigri heimamanna. Var keppnin stundum kölluð þriöja heimsstyrjöldin og milljónir manna — ef ekki tugmill- jónir fylgdust með því sem gerðist í Argentínu. Því er við hæfi að fþróttablaðið drepi á nokkra atburði sem gerðust í keppninni og kynni helztu stjörnur hennar. Annað Af öðru efni í blaðinu má nefna grein Jóhannesar Sæmundssonar um almenningsíþróttir og er ástæða til þess að hvetja sem flesta til þess að kynna sér hana, og kynnast líkamsástandi sínu með tilliti til þeirra taflna sem fram koma í greininni. Þá er og viðtal við Sigurð Geirdal, framkvæmdastjóra UMFf, örn Eiðsson, formann Frjálsíþróttasambandsins og fleira efni er svo í blaðinu. 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.