Íþróttablaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 66
Vaxandi áhugi
Framhald af bls. 21
hefur gefið leyfi til að hlaða og skyttan
er komin í örugga skotstöðu.
Haglabyssusvæðið
Á haglabyssusvæðinu er afmarKaður
völlur fyrir flugskífuæfingar, sem er al-
þjóðleg íþrótt. Segja má að tilgangur
hennar sé tvíþættur, annars vegar að
æfa menn í að hitta bráð á hreyfingu
með tilliti til veiðiskapar, hinsvegar sem
sjálfstæð íþrótt sem nær tilgangi sínum
með því að æfa skyttur í að ná leikni í
þeim þrautum sem hún hefur upp á að
bjóða og reyna skotfimi sína við kepp-
endur á þeim vettvangi eftir föstum
reglum. Nefnd kjörin á aðalfundi
(haglabyssunefnd) hefur umsjón og
stjórn með æfingum þessum og auglýsir
hún æfingatímana meðal annars í
sportvöruverzlunum.
Hreinn
Framhald af bls. 13'
ekkert þarf að gera annað en að æfa og
keppa.
— En hvað um köstin hér heima í
sumar?
— Óskar Jakobsson er sá sem mest
athygli beinist að. Hann hefur tekið
geysilegum framförum í kringlukast-
inu, sem hann hefur sem aðalgrein, og
ég hef það á tilfinningunni að hann
nálgist íslandsmetið í sumar. En Er-
lendur Valdimarsson verður ekki á því
að láta sinn hlut. Hann hefur einnig æft
mjög vel og er í góðu formi, ef meiðsli
há honum ekki. Ef þeir Óskar og Er-
lendur eru báðir heilir má eiga von á
mikilli keppni og góðum afrekum af
þeirra hálfu.
Örn Eiðsson
Framhald af bls. 23
baráttuna í sumum greinum, a. m. k. að
komast í úrslit í þeim.
— Verða sett mörg íslandsmet í
sumar, spurðum við Örn Eiðsson?
— Það er ekki gott um að segja, en ég
held að þetta verði bezta keppnistíma-
bil í sögu frjálsra íþrótta á íslandi frá
upphafi. Það sem er hvað ánægjulegast
er hve breiddin er orðin mikil, hvað
unga fólkið er áhugasamt og sækir á, og
keppni í einstökum greinum á hverju
móti er að verða skemmtileg.
Búumst við
Framhald af bls. 41
herðum þeirra H.S.K. manna og myndi
ég ætla að nú væri meiri ástæða til
bjartsýni í þeim efnum en oft áður. Því
Selfoss er bær sem er afar vel í sveit
settur; skotvegur er þangað frá
Reykjavík og ætla má að fjölmargir
Reykvíkingar muni notfæra sér þessa
hagkvæmu staðsetningu og hin góðu
vegaskilyrði.
Það er staðreynd að landsmóti verður
ekki lýst með orðum. Það þekkja þeir
sem hafa verið á landsmóti. Þar er svo
margt um að vera á sama tíma, spennan
sem fylgir öllum þessum keppnisgrein-
um er ólýsanleg og andrúmsloftið sem
myndast á landsmótum er með öllu ó-
gleymanlegt. Því segi ég: til þess að
þekkja landsmót, verður maður að fara
á það. Því vil ég eindregið hvetja alla þá
er heimangengt eiga til þess að líta við á
Selfossi dagana 21.—23. júlí.
GLÆSILEGUR VEITINGASTAÐUR
við þjóðveginn í Mosfellssveit
Matur við
allra hæfi
Heitur og kaldur matur
Grill-réttir
Smurt brauð
Nestispakkar og snittur
Heitir og kaldir drykkir
Hestamenn! íþróttamenn! Tökum aðokkuralls konar veislumat
Opið alla daga vikunnar.
Yfir sumarmánuðina frá 8—21.00
og yfir vetrarmánuðina frá 8—18,00 Rúmgott og vandað bílastæði
66