Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 54

Íþróttablaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 54
Sorgin kom líka við sögu Sá leikmaður argentínska heimsmeistaraliðsins sem vakti hvað mesta athygli í HM var Leopoldo Luque. Öllum bar saman um að þar væri frábær leikmaður á ferðinni — leikmað- ur sem bæði er fljótur og hefur góða tækni, enda gerði hann vörnum andstæðinganna oft erf- itt fyrir í keppninni. Um tíma var útlit á að Luque myndi ekki leika marga leiki með Argentínu- mönnum. Daginn eftir fyrsta leik Argentínu fékk hann svo slæmar fréttir að hann ákvað að draga sig í hlé. Bróðir hans, Oscar Luque fórst í bílslysi skammt frá Buenos Aires, en mjög gott samband var milli þeirra bræðra og kærleikur. Þegar Leopoldo fékk að vita um slysið fékk hann taugaáfall og varð að gefa honum róandi sprautu. — Knattspyrna og heimsmeistara- keppni skipta mig ekki lengur máli, sagði Leopoldo, — ég ætla að draga mig í hlé. En argentínski þjálfarinn fékk hann síðar til að skipta um skoðun. Jarðar- förinni var flýtt og Leopoldo missti að- eins tvo leiki úr. — Ég held, að það hafi verið rétt ákvörðun að leggja áherzlu á það við Leopoldo að hann tæki áfram þátt í keppninni, sagði þjálfarinn, — það dreifði huga hans og gerði sorg hans ekki eins þungbæra. Sorg ítalanna ítölsku knattspyrnumennirnir urðu einnig fyrir þungbæru áfalli fljótlega eftir að heimsmeistarakeppnin hófst. Góður vinur allra leikmanna liðsins, 12 ára drengur sem hét Humberto Renato lézt. Drengurinn var sonur Omars Si- vori, sem var á sínum tíma einn þekkt- asti og vinsælasti knattspyrnumaðurinn á Ítalíu, lék með Juventus. Omar Sivori býr í Argentínu og var það fyrsta verk ítölsku landsliðsmann- anna er þeir komu þangað að heim- sækja hann og fjölskyldu hans. Þar hittu þeir drenginn sem var langt Leopoldo Luque leiddur af krabbameini og varð hann strax góður vinur þeirra og báru leik- mennirnir mikla umhyggju fyrir hon- um. Ákváðu þeir að gera hann að lukkudreng sínum í keppninni og hétu honum fallegum gjöfum fyrir hvern leik sem þeir sigruðu í. ítalirnir voru svo á æfingu fyrir leik sinn við Argentínu er þeim barst frétt um að drengurinn væri látinn. Þjálfar- inn stöðvaði æfinguna um tíma og leikmennirnir gengu um völlinn niður- lútir og hryggir, enginn þó eins og þjálfarinn, Énzo Bearzot, en hann hafði verið náinn vinur Omars Sivoris. Sundlaug Akureyrar OPIN ALLA DAGA. Mán. — föstud. frá kl. 7—21,00 laugardag frá 8—18,00 sunnudag frá 8—11,00 nema júní og júlí til 15,00. Gufubað, setlaug, tennisvöllur og góð sólskýli á staðnum. 54
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.