Íþróttablaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 16
um íslenzka liðið, val þess og leikaðferð
í landsleiknum. Ef gerð er úttekt á
leiknum með fáum orðum má segja að
leikmenn íslenzka liðsins hafi hvorki
staðið sig vel eða illa í landsleiknum.
Þetta var miðlungsleikur. Ég gerði það
að gamni mínu að gefa landsliðsmönn-
unum einkunn fyrir frammistöðu
þeirra í leiknum, og miðaði þá við 10
sem hæstu mögulega einkunn. Varð
niðurstaða mín í þessari einkunnargjöf
þessi:
Árni Stefánsson 7
Gísli Torfason 7
Jóhannes Eðvaldsson 6
Jón Pétursson 6
Árni Sveinsson 5
Karl Þórðarson 6
Janus Guðlaugsson 5
Atli Eðvaldsson 6
Guðmundur Þorbjörnsson 6
Pétur Pétursson 5
Teitur Þórðarson 4
Einn leikmaður til viðbótar, Hörður
Hilmarsson, kom við sögu í leiknum, en
hann var það skamman tíma inni á
vellinum, að ekki var unnt að leggja
neitt mat á frammistöðu hans.
Ég tel. að leikurinn hafi bersýnilega
staðfest að það er algjör óþarfi fyrir
okkur að sækja menn til Svíþjóðar til
þess að leika með íslenzka landsliðinu,
og það er raunar ofvaxið minum skiln-
ingi hvernig á því stendur. í fyrra lék
t.d. Matthías Hallgrímsson, Akurnes-
ingur með sænsku liði og átti þar mis-
jöfnu gengi að fagna. Þá þótti hann
ómissandi maður í íslenzka landsliðið.
Nú er hann kominn heim og hefur
staðið sig ágætlega með liði sínu í sum-
ar — verið í markaham og er markhæsti
leikmaðurinn í 1. deild. En nú kom
hann ekki til greina í landsliðið. Var
ekki einu sinni í tuttugu manna hópn-
um!
Ég er þeirrar skoðunar að við höfum
átt hér heima leikmenn sem gátu fylli-
lega tekið þær stöður sem leikmenn-
irnir frá Svíþjóð skipuðu. Jón Þor-
björnsson og Þorsteinn Bjarnason gátu
hiklaust tekið stöðu Árna Stefánssonar,
Jón Gunnlaugsson eða Dýri Guð-
mundsson stöðu Jóns Péturssonar og
Sigurlás, Guðmundur Þorbjörnsson
eða Arnór Guðjohnsen stöðuna sem
Þrír „útlendinganna“ Jóhannes, Árni og Jón í baráttu í landsleikn
um við Dani.
16