Íþróttablaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 41
Búumst við 25þúsund
gestum á landsmótið
— sagði Sigurður Geirdal, framkvæmdastjóri UMFI
Nú styttist óðum í það, að 16.
landsmót Ungmennafélags ís-
lands verði haldið. Að þessu sinni
verður það haldið á Selfossi dag-
ana 21.—23. júlí og er það H.S.K.
sem heldur mótið nú.
Við fórum á fund Sigurðar
Geirdal, framkvæmdastjóra
U.M.F.Í. og báðum hann að segja
okkur frá aðdraganda og undir-
búningi þessa móts.
Undirbúningur landsmóta hefst fyrir
alvöru ári áður en mótin eru haldin. En
í sambandi við mannvirki og staðsetn-
ingu þá er byrjað að undirbúa þremur
árum áður en mótin fara fram, eða
næsta landsmótsár á undan.
Þetta landsmót, til að mynda, áttu
U.M.S.E. að halda, en í fyrra varð ljóst
að mannvirki þau er reisa þurfti fyrir
mótið yrðu ekki tilbúin í tíma. Þá sótti
U.M.S.E. um frest til 1979. Allt slíkt er
afar illa séð hjá okkur og því var afráðið
í fyrrahaust að H.S.K. héldi mót þetta,
því Selfoss var eini staðurinn á landinu
sem gat tekið að sér að halda mótið
fyrirvaralaust. U.M.S.E. frestar því sínu
landsmótshaldi um þrjú ár og heldur
mótið 1981.
Undirbúningur fyrir mót sem þetta
er gífurlegur og leggja þar margir hönd
á plóginn. Úti í samböndunum eru það
framkvæmdastjórar hvers sambands
um sig, landsmótsnefndir eða stjórnir
sambandanna sem skipuleggja undir-
búninginn og fá þá hina ýmsu menn til
liðs við sig. Á vegum landsmótsnefndar
vinnur fjöldinn allur af fólki að ýmis-
konar undirbúningsstörfum og hafa
sumir starfað að undirbúningi síðan í
fyrrasumar. Á mótið sjálft þarf svo að
sjálfsögðu óhemju marga starfskrafta,
því að við reiknum með því að allt að
25000 manns muni koma austur á Sel-
foss yfir mótsdagana. Allir þeir starfs-
kraftar sem munu starfa á mótinu
munu vinna sín verk í sjálfboðavinnu
og menn geta reynt að gera sér í hugar-
lund hversu gífurlegan spamað slíkt
hefur í för með sér fyrir okkur.
Mótið verður sett kl. 20 föstudaginn
21. júlí. Setningarathöfnin fer fram á
íþróttavellinum og hefst hún með hóp-
göngu rúmlega 1000 þátttakenda inn á
íþróttasvæðið.
Mót þetta kemur til með að verða
mikil íþróttahátíð, því þar verður keppt
í frjálsum íþróttum, blaki, körfuknatt-
leik, handknattleik, knattspymu, sundi,
borðtennis, starfsíþróttum, skák og
glímu. Auk þessa verður júdó sýning-
argrein á mótinu.
Fjöldi keppenda liggur ekki endan-
lega fyrir, en að þátttakendum í for-
keppnum meðtöldum, (þeir eru auð-
vitað ekki allir sem koma á mótið og
keppa til úrslita, heldur aðeins þeir sem
sigruðu forkeppnirnar) má reikna með
að fjöldi keppenda sé í kring um 2000.
Keppni í hinum ýmsu greinum á að
vera lokið kl. 18 mótsdagana og á
kvöldin verða síðan kvöldvökur og
dansleikir.
Aðstaða fyrir mót sem þetta er ein-
staklega góð á Selfossi. Má í því sam-
bandi nefna nýtt íþróttahús, nýja úti-
sundlaug, tvo íþróttavelli (annar er
malarvöllur og hinn er grasvöllur),
góðar hlaupabrautir og góða aðstöðu
fyrir áhorfendur.
Öll fjárhagsleg ábyrgð verður á
Framhald á bls. 66
Sigurður Geirdal, framkvæmdastjóri UMFt
41