Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.06.1978, Page 13

Íþróttablaðið - 01.06.1978, Page 13
sigtinu stað með íslenzka kastlandsliðinu til keppni í Danmörku, en þaðan ætluðu svo landsliðsmennirnir í keppnisferða- lag til Finnlands og Svíþjóðar. - Þetta er allt í áttina hjá mér, sagði Hreinn Halldórsson. - Reyndar verður ekki annað sagt en að ósköp hægt miði og ég geri mér grein fyrir því að það mun taka langan tíma að byggja aftur upp kraftinn í fótunum. Við vissar hreyfingar finn ég til mikils sársauka og það verður ekki fyrr en ég losna við hann sem ég get beitt mér af fullum krafti. Þótt meiðslin sem slík eigi ekki að há mér þegar ég er að kasta, þá er það svo, að ég hlífi mér ósjálfrátt. Hreinn var frá æfingum um langan tíma í vetur vegna meiðslanna, og sagði hann að það hefði ekki verið fyrr en í lok febrúarmánaðar sem hann gat farið að æfa köst aftur, þá án atrennu. — Ég kastaði þá um 15 metra, atrennulaust, sagði hann, — en smátt og smátt fór þetta að koma og í apríllok tók ég til gamans þátt í innanhússmóti og kastaði þá 18,98 metra. Fyrst eftir að ég fór að kasta aftur með atrennu voru köstin um 17 metrar. Framfarirnar síðan hafa verið hægar, en þó nokkrar. Um möguleika í þátttöku í Evrópu- meistaramótinu sagði Hreinn: — Ég verð að játa að ég hef þetta mót svolítið í sigtinu, þrátt fyrir allt, en ætla hins vegar ekki að fara á það nema ég sé alveg öruggur um að kasta 20—20,5 metra. Nái ég ekki þeim árangri hef ég ekkert erindi á mótið. Eins og horfurnar eru núna ætti að vera mögulegt að ég næði þessum árangri, a.m.k. ef þróunin verður áfram hjá mér sú hin sama og verið hefur undanfarna mánuði. Hreinn sagði, að til þess að kornast áfram á Evrópumeistaramótinu þyrfti að varpa kúlunni a.m.k. 19,5 metra. Þeir átta sem varpa lengst í undan- keppninni keppa svo til úrslita um Evrópumeistaratitilinn. Þá var Hreinn að því spurður hvort hann teldi sig hafa fengið eins góða meðhöndlun og mögulegt hefði verið. — Það veit ég satt að segja ekki, sagði Hreinn, — ég veit ekkert hvað er unnt að gera við slík meiðsli erlendis, en ég er hins vegar viss um að ég fékk allt það bezta sem unnt var að gera hér heima. Hitt er svo annað mál að varla er á því vafi að ég hefði náð mér betur á strik hefði ég getað einbeitt mér að því að þjálfa mig upp. Það var ekki um það eitt að ræða að bíða eftir því að verða góður, heldur þurfti stöðugt að taka léttar æfingar og vinnunar vegna gat ég ekki sinnt þessu eins vel og skyldi. — Verður sett nýtt kúluvarpsheiins- met í ár? - Ég hef trú á því að Austur-Þjóð- verjinn Bayer fari nálægt heimsmetinu í sumar, ef hann slær það þá ekki. Hann setti Evrópumet innanhúss í vetur, varpaði 21,10 metra og í fyrra varpaði hann kúlunni 21,77 metra og var því ekki langt frá metinu. Ég hef hins vegar ekkert heyrt frá honum í vor. Þetta er geysilega sterkur kastari sem hefur allt til þess að setja heimsmet — maður sem Framhald á bls. 66 13

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.