Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.06.1978, Side 21

Íþróttablaðið - 01.06.1978, Side 21
lagsins segir að tilgangur félagsins sé að vinna að eflingu skotíþróttarinnar á hinn fjölhæfasta hátt. Hér er ekki ein- ungis átt við það að fá sem flesta til að skjóta heldur einnig og jafnvel fremur að menn auki hæfni sína með þátttöku í skipulegum æfingum með aðstoð reyndra manna. Rík áherzla er lögð á öryggis- og umgengnisþáttinn. Þeir sem stunda æfingar félagsins verða að fylgja ströngum öryggisreglum, sem verða fljótlega ósjálfráðar hvar sem menn handleika skotvopn. Starfsemi Skotfélags Reykjavíkur Skotfélag Reykjavíkur hefur um árabil haft til afnota dalverpi við Graf- arholt sem heitir Leirdalur. Er þetta einkasvæði fyrir félaga Skotfélagsins, og aðgangur að því ekki heimilaður öðrum en félögum. Þarna er sæmileg aðstaða til iðkunar skotfimi, en nokkuð hefur umgengni á svæðinu verið á- bótavant undanfarin ár. Hafa Skotfé- lagsmenn fullan hug á að gera þar bragarbót og hafa aukið mjög aðhald. Starfsemi á útisvæðinu skiptist í tvær deildir. Annars vegar er haglabyssu- svæðið, þar sem kastvélar fyrir flug- skífur eru. Hins vegar er rifflasvæðið með grindum fyrir skífur á 25—300 metra færi, ásamt skotborðum og upp- hækkuðum grasbakka til að liggja á. Þessi svæði eru aldrei notuð samtímis og óheimilt er með öllu að skjóta annars staðar á svæðinu, eða í aðrar áttir. Æf- ingar með haglabyssum eru auglýstar sérstaklega á ákveðnum tímum. Á öðr- um tímum er rifflasvæðið opið, en ekki er þó heimilt að skjóta þarna eftir kl. 23.00, vegna nágrannabyggðar. Rifflasvæðið Yfirleitt eru ekki haldnar skipulegar æfingar á rifflasvæðinu, heldur koma menn að eigin frumkvæði. Æfinga- stjórar þar eru meðlimir rifflanefndar eða stjómar. Séu þeir ekki á svæðinu skulu menn ávallt koma sér saman um æfingarstjóra. Á æfingarsvæðinu er ávallt skylt að hafa vopnið óhlaðið og lás þess opinn nema rétt á meðan verið er að skjóta. Ekki má hlaða í skotgeymi heldur skal nota öll skotvopn sem einskota. Ekki má hlaða skotvopn fyrr en æfingarstjóri Framhald á bls. 66 21

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.